Stjórnarandstaðan klofnaði um Hvammsvirkjun

„Frekju­stjórn­mál Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna sigr­uðu í þetta sinn,“ sagði Vigdís Hauks­dóttir. Stjórn­ar­liðar vildu færa fleiri virkj­ana­kosti í nýt­ing­ar­flokk en höfðu ekki erindi sem erf­iði.

Breyt­ing­ar­til­laga um­hverf­is­ráð­herra við ramm­a­áætl­un var sam­þykkt með 41 at­kvæði gegn átta á Alþingi í vik­unni. Þannig fær­ist Hvamms­virkjun úr bið­flokki í nýt­ing­ar­flokk, en þetta er í sam­ræmi við til­lögu verk­efna­stjórnar ramma­á­ætl­unar.

Allir þing­menn Vinstri grænna og einn þing­maður Bjartrar fram­tíðar, Róbert Marshall, lögð­ust gegn til­lög­unni. Hins vegar greiddu átta stjórn­ar­and­stæð­ingar atkvæði með henni. Þetta eru þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar, þau Árni Páll Árnason, Oddný G. Harð­ar­dóttir, Helgi Hjörvar, Val­gerður Bjarna­dóttir og Össur Skarp­héð­ins­son; úr Bjartri fram­tíð þau Bryn­hildur Pét­urs­dóttir og Eldar Ást­þórs­son og loks Jón Þór Ólafsson úr Pírötum. Birgitta Jóns­dóttir og Helgi Hrafn Gunn­ars­son Píratar sátu hjá, auk Óttars Proppé úr Bjartri fram­tíð.  

„Við höfum fall­ist á þau rök sem færð hafa verið fram um flutn­ing Hvamms­virkj­unar í nýt­ing­ar­flokk. Það er mik­ill sigur fyrir þá umgjörð sem við höfum byggt með lögum hér í land­inu um vernd og nýt­ingu nátt­úru­verð­mæta sem felst í því að stjórn­ar­meiri­hlut­inn skuli hafa dregið til baka breyt­ing­ar­til­lögur sem hann reyndi að hnoða hér í gegn þvert á lög­bundna ferla trekk í trekk síð­ast­lið­inn vetur,“ sagði Árni Páll Árnason for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, þegar greidd voru atkvæði um málið. 

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, sagð­ist hins vegar leggj­ast gegn flutn­ingi Hvamms­virkj­unar í nýt­ing­ar­flokk, enda teldi hún að nátt­úran ætti að njóta vafans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár