Sannleikur Harrys og Meghan – frá þeirra eigin sjónarhorni

Harry og Meghan fundu sig knúin til að segja „sinn eigin sann­leika“ af sam­skiptum þeirra við kon­ungs­fjöl­skyld­una og ákvörðun þeirra að segja skilið við allar kon­ung­lega skyldur. Sann­leik­ur­inn er nú aðgengi­legur á Netflix en sitt sýn­ist hverjum.

Meghan og Harry kynntust á Instagram. Hljómar kannski ekki eins og ævintýri, enda hafa þau sagt skilið við slík, að minnsta kosti konungleg ævintýri.
Meghan og Harry kynnt­ust á Instagram. Hljómar kannski ekki eins og ævin­týri, enda hafa þau sagt skilið við slík, að minnsta kosti kon­ung­leg ævin­týri. Mynd: Skjáskot: Netflix

2,4 millj­ónir horfðu á fyrsta þátt­inn um Harry og Meghan í nýrri heim­ild­ar­þátta­röð sem sýnd er á Netflix og kom út í gær, fleiri en horfðu á fyrsta þátt­inn í nýj­ustu Crown-þátta­röð­inni, dag­inn sem fimmta þátta­röðin kom út.

Kon­ungs­sinnar jafnt sem þau sem hafa óbeit á bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unni hafa beðið í ofvæni eftir heim­ild­ar­þátt­unum Harry og Meghan þar sem þau greina frá „sann­leik­anum þeirra“ á öllu því sem átti sér stað frá því að þau kynnt­ust sum­arið 2016 þar til þau sögðu skilið við allar kon­ung­legar skyldur innan bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar í mars 2020 og fluttu til Kali­forníu.

Spennan hefur verið svo mikil að þegar fyrri hluti þáttar­að­ar­innar, sem heitir ein­fald­ega Harry and Meghan, birt­ist á Netflix í gær voru bæði BBC og The Guardian með beina texta­lýs­ingu á því sem fyrir sjónir bar.

Fljót­lega fór þó að bera á von­brigðum og gagn­rýnendur virð­ast vera sam­mála um eitt: Þætt­irnir stand­ast ekki þær vænt­ingar sem gerðar voru til þeirra. En. Þetta er bara fyrri helm­ing­ur­inn.

Ekki nógu afhjúpandi

Helsta gagn­rýnin snýr að því að það kemur í raun og veru ekk­ert fram í þátt­unum. Viðtal Opruh Winfrey við hjónin hafi verið meira afhjúp­andi en nú þegar þau sjálf fá alfarið að ráða ferð­inni. Eðlilega kannski?

Í þátt­unum þremur sem eru komnir út fara hjónin yfir hvernig þau kynnt­ust, á Instagram. Fyrsti þátt­ur­inn er því ágætis aug­lýs­ing fyrir sam­fé­lags­mið­il­inn. Að auki er rætt við hina og þessa vini hjón­anna sem segja frá upp­lifun sinni af fyrstu kynnum Harrys og Meghan.

Gagn­rýnendur eru sam­mála um að þætt­irnir stand­ast ekki sam­an­burð við afhjúp­andi við­töl sem aðrir úr kon­ungs­fjöl­skyld­unni hafa veitt, til að mynda við­talið við Karl í Dimbleby, við­talið við Díönu í Panorama og hvað þá við­talið við Andrew prins í Newsnight þar sem hann var spurður út í tengsl sín við Jeffrey Epstein.

Verra en Kardashian-fjölskyldan

„Leið­in­legt, fyr­ir­sjá­an­legt, klisju­kennt, algjör­lega smjað­urs­kennt.“ Þannig lýsir fjöl­miðla­mað­ur­inn Piers Morgan, sem virð­ist þurfa að hafa skoðun á öllu þessa dag­ana, þátt­unum og það ætti ekki að koma á óvart að hann er ekk­ert sér­stak­lega hrif­inn. Morgan var, líkt og stærstu bresku miðl­anir, með beina texta­lýs­ingu um þætt­ina, en not­aði Twitter þar sem hann er með rúm­lega átta millj­ónir fylgj­enda.

[adspot]„Þetta er verra en Keeping Up With the Kar­dashi­ans. Eitthvað sem ég hélt að væri mann­lega ómögu­legt,“ skrif­aði Morgan meðal ann­ars og vís­aði þannig í raun­vera­leika­þætt­ina um Kar­dashian-Jenner fjöl­skyld­una.

Morgan sak­aði hjónin einnig um að sýna Elísa­betu Eng­lands­drottn­ingu, ömmu Harrys, óvirð­ingu með því að gera grín að því að hafa þurft að hneigja sig fyrir henni.

Gefur lítið fyrir fullyrðingar um kynþáttafordóma

Morgan segir Harry og Meghan ein­fald­ega vera leið­in­leg og gaf lítið fyrir full­yrð­ingar þeirra um kyn­þátta­for­dóma í kon­ungs­fjöl­skyld­unni.

[links]Í við­tali við Opruh Win­frey í mars í fyrra greindu Harry og Meg­han frá því að kyn­þátta­for­dómar innan kon­ungs­hall­ar­innar hefðu haft áhrif á ákvörðun þeirra um að segja skilið við kon­ung­un­legar skyldur sínar og flytja til Kana­da, og síðar Banda­ríkj­anna.

Í við­tal­inu kemur fram að þegar Meg­han sagði frá kyn­þátta­for­dómum sem hún og ófætt barn hennar hefðu orðið fyrir frá fólki í fjöl­­skyld­unni var því hins vegar mætt með þrúg­andi þögn klukku­­stundum sam­­an. Og ekki stakt orð barst frá höll­inni í tvo sól­­­ar­hringa um þá höfnun og það afskipta­­leysi sem Meg­han upp­­lifði, örvingluð og ótta­s­leg­in, er hún bað um aðstoð vegna yfir­­­þyrm­andi van­líð­un­­ar.

Harry segir í þátt­unum að hann sé sífellt að læra eitt­hvað nýtt um sjálfan sig, meðal ann­ars hvað varðar kyn­þátta­for­dóma og hvernig þeir lýsa sér. Hann seg­ist vera stoltur af því að börn hans séu af blönd­uðum upp­runa (e. mixed race).

Löngu skipulagður sannleikur

Harry og Meghan hófu að halda skipu­lagðar mynd­bands­dag­bækur i mars 2020, þegar þau sögðu sig frá öllum kon­ung­legum skyldum. En það var nokkrum mán­uðum áður en til­kynnt var um samn­ing þeirra við Netflix, í sept­em­ber sama ár.

Þetta er því þeirra sann­leikur í höndum Netflix-reynslu­bolta sem sjá til þess að fram­leiðslan sýni frá­sögn pars sem varð ást­fangið og þurfi að fórna öllu á meðan þau börð­ust við kerfið, það er kon­ungs­fjöl­skyld­una, sam­skipta­reglur og kyn­þátta­for­dóma.

En sög­unni er ekki lokið. Seinni hluti þáttar­að­ar­innar, þrír þættir til við­bótar, kemur út 15. des­em­ber. Í þeim munu Harry og Meghan fara dýpra í ástæður þess af hverju þau sögðu skilið við kon­ungs­fjöl­skyld­una og hvernig „Megxit“-atburða­rásin var í raun og veru. Hvort það verði jafn hægeldað og fyrri þrír þætt­irnir á eftir að koma í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kóngafólk

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár