Mynd: Harpo

Harmur hertogahjónanna

Í reynslu Meghan Markle end­ur­óma kunn­ug­leg stef úr sögu bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar. Berg­málið úr lífi Díönu prinsessu, blandað ras­isma í ofaná­lag, varð að end­ingu svo hávært að aðeins ein leið var fær: Út.

Brúð­kaupið var óvenju­legt á ýmsa lund. Banda­rískur predik­ari og gospel-kór léku til að mynda stórt hlut­verk. Þó að vand­ræða­legum svip hafi brugðið fyrir í and­litum fjöl­skyldu brúð­gumans, fólki sem er alið upp í form­festu og alda­gömlum siðum, sveif bjart­sýni og jákvæðni yfir vötnum. Einstakt tæki­færi hafði komið upp í hendur fjöl­skyld­unnar: Að sýna öllum heim­inum að nútím­inn hefði bankað upp á hall­ar­dyrnar. Og að honum hefði verið boðið inn í gull­brydd­aða sal­ina á sama tíma og ungri fal­legri konu með ást­ar­blik í auga.

Frá­skil­inni, banda­rískri, svartri konu.

Í eitt augna­blik virt­ist sem breska kon­ungs­fjöl­skyldan ætl­aði að grípa hið ein­staka tæki­færi. Segja skilið við hina myrku for­tíð marg­vís­legrar mis­mun­unar í eitt skipti fyrir öll. Bjóða Meghan Markle, eig­in­konu Harrys prins, vel­komna. Hlusta á hana. Styðja hana. Og verja.

En annað kom fljótt á dag­inn. Meghan átti eftir að upp­lifa ein­angrun, afskipta­leysi og for­dóma innan veggja hall­ar­innar. Og þegar verst lét vildi hún ekki lifa lengur. Þá var hún ólétt. Bað um aðstoð. En fékk hana ekki.

Utan veggja hall­ar­innar var hún hökkuð í spað og pakkað svo snyrti­lega inn í slúð­ur­blöðin. Hún var sögð fín með sig. Upptekin af sjálfri sér. Að hún kynni ekki gott að meta. Væri fjand­sam­leg í garð ann­arra í fjöl­skyld­unni og legði starfs­fólk hall­ar­innar í ein­elti. Hvað hélt hún eig­in­lega að hún væri? Hún var að minnsta kosti engin Ösku­buska – sú hóg­væra og blíða sem heill­aði prins­inn – svo mikið væri víst. Hafði hún ekki frekar hneppt hann í ein­hvers konar álög? Ég meina, ekki tæki hann upp á því sjálfur að fara burt? Nei, hún var aug­ljós­lega flagð undir fögru skinni, „vonda stjúpan“ holdi klædd. Skúrk­ur­inn í ævin­týr­inu.

Fjöl­skyldan vildi ekki nýta sam­böndin við fjöl­miðla til að „þagga niður í varð­hund­unum“ sem glefsuðu stöðugt í hana. Svona er þetta bara, var sagt. Það er engin ástæða til að leið­rétta allt bullið og vit­leys­una sem sót­svartur almúg­inn kyngir vand­ræða­laust.

En fyrst við erum að ræða saman: Hversu dökkt gæti barnið ykkar orðið?

Hjóna­band Meghan Markle og Harrys prins árið 2018 mark­aði tíma­mót í bresku sam­fé­lagi. Loksins hafði svört kona gifst inn í kon­ungs­fjöl­skyld­una. Loks kæmu til sög­unnar prinsar og prinsessur með afrískt blóð í æðum.

Breska heims­veldið var í aldir byggt upp á vinnu svartra, blóði þeirra og svita. Þrælkun þeirra. Loksins, loks­ins var einn úr þeirra hópi kom­inn alla leið að dyngju drottn­ingar. Heyra mátti brot­hljóð óma um allt sam­veldið er gler­þök og gler­veggir voru möl­brotnir eins og hendi væri veifað. Svört kona í höll­inni! Nánast ekk­ert var ómögu­legt héðan í frá. Bók­staf­lega allt gat gerst.

Fengi hún að vera hún sjálf? Tala máli svartra? Svartra kvenna jafn­vel?

Svarið við þessum spurn­ingum er ein­fald­lega nei.

Tæki­færið til að milda ásýnd kon­ungs­fjöl­skyld­unnar, til að draga hana inn í 21. öld­ina, sýna heims­byggð­inni að innan hennar væri fram­sýnt og rétt­sýnt fólk, var ýtt út af borð­inu. Ekki nýtt.

Það er þó hvorki ein mann­eskja né heil fjöl­skylda sem það ákvað heldur var það fremur með­vituð eða ómeð­vituð nið­ur­staða þeirrar íhalds­sömu stofn­unar sem kon­ungs­fjöl­skyldan og allt sem henni fylgir er. Því þegar fjöl­skylda verður stofnun eða fyr­ir­tæki, líkt og Filippus prins hefur kallað fjöl­skyldu sína, lýtur mennskan í lægra haldi fyrir hefðum og siðum.

Forsíður bresku blaðanna voru undirlagðar af fréttum um viðtalið.
Forsíður bresku blað­anna voru und­ir­lagðar af fréttum um við­talið.

Þetta kom ber­lega í ljós í orðum her­toga­hjón­anna, Meghan og Harry, í hinu sögu­lega við­tali við Opruh Winfrey sem sýnt var vest­an­hafs á sunnu­dags­kvöldið. Stofn­unin, fyr­ir­tækið, fjöl­skyldan – eða hvaða nafni sem breska kon­ungs­fjöl­skyldan kann að nefn­ast – ákvað ekki aðeins að skilja Meghan og Harry eftir ein á ber­angri til að verja sig heldur í ein­hverjum til­vikum að fóðra varð­hundana. Efa­semda­menn­ina. Þegar fréttir voru nýverið sagðar af því að Meghan hefði lagt starfs­menn hall­ar­innar í ein­elti brást höllin við og til­kynnti þegar í stað að ásak­an­irnar yrðu rann­sak­aðar.

Þegar Meghan sagði frá ras­isma sem hún og ófætt barn hennar hefðu orðið fyrir frá fólki í fjöl­skyld­unni var því hins vegar mætt með þrúg­andi þögn klukku­stundum saman. Og ekki stakt orð barst frá höll­inni í tvo sól­ar­hringa um þá höfnun og það afskipta­leysi sem Meghan upp­lifði, örvingluð og ótta­slegin, er hún bað um aðstoð vegna yfir­þyrm­andi van­líð­unar. Ekki heyrð­ist heldur múkk hvað varðar stöðu Archie litla, sonar her­toga­hjón­anna, innan fjöl­skyld­unnar. Hann átti ekki að verða prins líkt og frændur hans, synir Vil­hjálms, og þar með ekki að fá örygg­is­gæslu. Vernd gegn varð­hund­unum.

Slík gæsla var líka tekin af Harry um leið og hann flutti til Kanada með litlu fjöl­skyld­una sína. Hann sem hafði fæðst inn í það fang­elsi sem kon­ungs­fjöl­skylda getur verið. Hið gríð­ar­lega áreiti sem því getur fylgt. Og svo var líka klippt á fram­færsl­una. Starfs­krafta hans og eig­in­kon­unnar er ekki lengur óskað.

Í gær og dag voru að sögn haldnir krísufundir í höll­inni. Fjöl­skyldan ætl­aði ekki að láta „ýta sér út í“ að tjá sig um efni við­tals­ins. Það gerði hún svo nú undir kvöld í yfir­lýs­ingu sem send er frá höll­inni fyrir hönd drottn­ing­ar­innar. Þar segir að þau atriði sem her­toga­hjónin vöktu athygli á í við­tal­inu „veki áhyggjur“ – sér­stak­lega þau sem snúi að kyn­þætti. Þá segir einnig að þó að „minni allra af atburðum“ sé ekki alltaf það sama verði þessi mál tekin alvar­lega og um þau fjallað innan fjöl­skyld­unnar. „Harry, Meghan og Archie verða alltaf elskuð.“

Konungsfjölskyldan er sögð liggja undir feldi og íhuga viðbrögð við viðtalinu.
Kon­ungs­fjöl­skyldan er sögð liggja undir feldi og íhuga við­brögð við við­tal­inu.

Síðasta árs verður ekki aðeins minnst í sögu­bók­unum fyrir að hafa markað upp­haf heims­far­ald­urs heldur einnig árs­ins þegar fólk ákvað, að gefnu til­efni, að sitja ekki lengur þegj­andi undir kerf­is­bund­inni kúgun svartra í Banda­ríkj­unum. Mót­mæla­aldan náði víða um heim, m.a. til Bret­lands. Það var komið að upp­gjöri við for­tíð­ina. Hin alltum­lykj­andi kon­ungs­fjöl­skylda hefur ekki verið sak­laus áhorf­andi að því mis­rétti í gegnum tíð­ina. Hún var höfuð ríkis sem var stór­tækt í þræla­verslun í meira en tvær aldir. Ríkis sem söls­aði undir sig tugi þjóða og þjóð­ar­brota í Afríku og víðar sem enn í dag til­heyra jafn­vel hinu svo­kall­aða breska sam­veldi. Sambandi ríkja þar sem mik­ill meiri­hluti er dökkur á hör­und.

Í við­tal­inu við Opruh var afhjúpað hversu grunnt er á rasískum við­horfum innan kon­ungs­fjöl­skyld­unnar. Harry hafði verið spurður, oftar en einu sinni, hversu dökkt á hör­und barn hans og Meghan gæti orðið. Barni sem síðar var neitað um titil sem hefði fært því öryggi.

Morðinu á George Floyd var mótmælt um allan heim á síðasta ári.
Morðinu á George Floyd var mót­mælt um allan heim á síð­asta ári.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem með­limir kon­ungs­fjöl­skyld­unnar, jafn­vel hátt­settir, hafa orðið upp­vísir að rasískum ummælum. „Ef þið dveljið hérna mikið lengur verðið þið ská­eygðir,“ sagði Filippus prins, afi Harrys og eig­in­maður Elísa­betar drottn­ingar, við breska náms­menn í Kína árið 1986. Það er þó ekki hann sem spurði Harry hversu dökkt barn hans og Meghan gæti orðið. Það stað­festi Harry sjálfur við Opruh. Og ekki var það heldur Elísabet amma hans, drottn­ingin sjálf. Aðrir í fjöl­skyld­unni liggja því allir sem einn undir grun.

Karl prins, sá sem næstur mun erfa bresku krún­una, sagði við blaða­kon­una Anitu Sethi fyrir nokkrum árum að hún „liti ekki út fyrir að vera frá Manchester“. Sethi spurði hann á móti hvort að honum þætti hennar brúna húð vera „óbresk“?

Michael, prinsessan af Kent, sem er gift frænda Elísa­betar drottn­ingar, lét svarta gesti á veit­inga­stað í New York heyra það árið 2004 og sagði þeim að fara „aftur heim í nýlend­urnar“.

Kali Nicole Gross, sem er pró­fessor í sögu svartra við Emory-háskóla í Banda­ríkj­unum, segir að við­talið hafi minnt okkur á hversu rót­gró­inn ras­ismi er í vest­rænu sam­fé­lagi. Og að hann hverfi ekki á einni nóttu. Ekki einu sinni þegar svört kona gift­ist prinsi. „Þegar ég horfði á við­talið rann það upp fyrir mér hversu barna­legt það var af mér að halda að eitt­hvað annað en nákvæm­lega þetta myndi ger­ast,“ segir hún.

Allar konur sem hafa gift sig inn í bresku kon­ungs­fjöl­skyld­una hafa fengið að finna fyrir því í fjöl­miðlum. En í til­felli Meghan var umfjöll­unin lituð af kyn­þátta­for­dómum. Banda­ríska tenn­is­stjarnan Serena Williams er meðal þeirra sem hafa komið Meghan til varnar eftir við­talið. Hún seg­ist þekkja það af eigin raun hvernig það er að vera svört kona í sviðs­ljós­inu. Hvernig fjöl­miðlar gera lítið úr þeim og reyna allt hvað þeir geti til að brjóta þær niður. „Dóttir Meghan, dóttir mín og dætur ykkar eiga það skilið að búa í sam­fé­lagi þar sem þær njóta virð­ingar.“

Slúð­ur­pressan hefur sagt Meghan „næstum“ tengj­ast glæpa­gengjum, að hún hafi birt djarfar myndir af sér á klám­síðu (frétt sem var síðar dregin til baka) og að hún snerti kvið­inn á sér óeðli­lega mikið á meðan hún var ólétt. Að hún sé frekja. Ráðrík. Og að barnið hennar lík­ist simpansa. Þetta er auð­vitað aðeins brot af því sem hún hefur þurft að þola.

Ald­ar­fjórð­ungur er síðan að Díana prinsessa, móðir Harrys, rauf þögn­ina og sagði frá lífi sínu innan kon­ungs­fjöl­skyld­unnar. Reynsla hennar og Meghan er ekki ósvipuð. Sumir myndu segja lík­indin slá­andi. Bæði hvað varðar upp­lifun þeirra af slúð­ur­press­unni sem og af líf­inu innan hall­ar­múr­anna. Þegar Díana týndi lífi í bílslysi sem rakið er til eft­ir­farar ljós­mynd­ara voru allir sam­mála um að breyt­inga væri þörf. Að virða þyrfti einka­líf fólks, líka þeirra sem væru opin­berar per­sónur. En það virð­ist hafa verið aðeins of freist­andi að fjalla frá öllum mögu­legum og ómögu­legum hliðum um þessa fram­andi konu sem nælt hafði í hjarta Harrys.

Þau höfðu ekki verið gift lengi þegar Harry sá sig knú­inn til að biðla til fjöl­miðla að halda sig fjarri. Að slaka á. Sagðist ótt­ast um líf konu sinnar. Að hann teldi sög­una hæg­lega getað end­ur­tekið sig. Hin hræði­legu enda­lok móður hans væru honum ofar­lega í huga. Hún hafði einnig liðið vít­isk­valir, verið ein­angruð og afskipt. Ekki viljað lifa lengur. Sam­lík­ing­unni líkur ekki þar því báðar ósk­uðu eftir hjálp. En fengu ekki.

Í við­tal­inu sagði Harry að árás­irnar á eig­in­kon­una hefðu verið enn hættu­legri þar sem þær væru sumar hverjar af rasískum toga. Á tíma þar sem sam­fé­lags­miðlar ráða ríkjum. Þar sem allt er hægt að birta sam­stundis.

Ýmis líkindi eru með reynslu Meghan Markle og Díönu prinessu.
Ýmis lík­indi eru með reynslu Meghan Markle og Díönu prinessu.

Það sem helst skilur sögu þeirra að er að hjóna­band Díönu sprakk í loft upp. Var frá byrjun slæmt. Hún taldi sig engan stuðn­ing hafa í eig­in­manni sínum. Því er þver­öf­ugt farið í til­felli Meghan. Harry stendur eins og klettur við hlið hennar. Díana var tví­tug þegar hún gift­ist Karli. Meghan var 36 ára þegar hún og Harry gengu í hjóna­band. Hún var þroskaðri og sjálf­stæð­ari. Díana var alin upp í bresku yfir­stétt­inni og öllu sem því fylgdi. Meghan hefur unnið fyrir sér frá því að hún var ung­lingur. Hún er banda­rísk. Hikar ekki við að segja hvernig sér líði. Biðja um hjálp. Og fara sínar eigin leiðir.

Þær eiga það svo sam­eig­in­legt að á hvor­uga þeirra var hlustað þegar mest lá við. Þá skipti hvorki stétt þeirra né reynsla máli. Rödd þeirra heyrð­ist ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kóngafólk

Mest lesið undanfarið ár