The Crown: „Barmafylli af vitleysu sem seld er fyrir dramatísk áhrif“

Aðdá­endur The Crown hafa margir orðið fyrir von­brigðum með nýj­ustu ser­í­una, þá fimmtu. Gagn­rýnendur segja nóg komið og val á leik­urum hefur fengið fólk til að klóra sér í koll­inum, ekki síst yfir hraust­legum og sjóð­heitum Karli Breta­prins.

Elizabeth Debicki og Dominic West fara með hlutverk Díönu og Karls í fimmtu seríu The Crown. West þykir helst til heillandi fyrir hlutverk Karls.
Elizabeth Debicki og Dominic West fara með hlut­verk Díönu og Karls í fimmtu seríu The Crown. West þykir helst til heill­andi fyrir hlut­verk Karls. Mynd: EPA

Fimmtu þáttar­að­ar­innar af The Crown, sögu­lega dramanu um bresku kon­ungs­fjöl­skyld­una, hefur verið beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu. Nú þegar hún er loks komin í loftið á Netflix eru við­brögðin blendin. Gagn­rýnendur breskra fjöl­miðla kepp­ast raunar um að rífa þátt­inn niður og mörgum finnst hrein­lega komið nóg.

Það var við­búið að sýn­ingar á nýj­ustu ser­í­unni myndu sæta gagn­rýni. Eftir því sem þátt­unum vindur fram fær­ast atburð­irnir sem túlk­aðir eru í þeim nær okkur í tíma. Fimmta ser­ían ger­ist á tíunda ára­tug síð­ustu aldar þannig að stór hluti þeirra ein­stak­linga sem eru til umfjöll­unar sem fólk sem er enn á lífi og veit hvað er satt og hvað logið.

Áhorf­endur muna líka margir hverjir vel eftir því tíma­bili í lífi kon­ungs­fjöl­skyld­unnar sem er þætt­irnir beina sjónum að, árunum 1991 til 1997. Á þessum árum skildu Andrés prins og Sarah Ferguson, upp komst um lang­líft fram­hjá­hald Karls og Kamillu, Anna prinsessa skildi við eig­in­mann sinn og fann sér nýjan og kon­ungs­fjöl­skyldan, mögu­lega fyrir utan Díönu prinsessu, var ekki sér­lega vin­sæl.

Það að þætt­irnir séu að fær­ast nær í tíma setur þá óneit­an­lega í annað sam­hengi. Þetta er ekki lengur eitt­hvað sem „gerð­ist í gamla daga“ heldur atburðir sem flestum sem höfðu aldur til að fylgj­ast með fjömiðlum á tíunda ártugnum eru enn í fersku minni, sér­stak­lega í Bret­landi.

Fyrrverandi forsætisráðherrar segja samtölin bull

Líkt og í fyrri ser­íum koma for­sæt­is­ráð­herrar Bret­lands tölu­vert við sögu í þátt­unum. Bæði John Major og Tony Blair, sem gegndu emb­ætt­inu á tíunda ára­tugnum, hafa lýst frati á þessa nýj­ustu þátta­röð. Þeir segja ein­fald­lega að þeirra inn­koma í þátt­unum sé algjör­lega skálduð. Engar heim­ildir séu til sem styðji túlkun og fram­setn­ingu höf­unda þátt­anna á því sem við kemur sam­skiptum stjórn­mála­leið­tog­anna og hátt settra með­lima kon­ungs­fjöl­skyld­unnar.

Blair segir það „tóma steypu“ (e. complete and utter rubb­ish) sem kemur fram í þátt­unum um sam­töl hans við Karl Breta­prins, nú kon­ung, um að sá síð­ar­nefndi hafi á sínum tíma viljað koma móður sinni frá og taka við sjálfur.

Major er ekki síður ómyrkur í máli og sendi skrif­stofa hans frá sér sér­staka til­kynn­ingu í aðdrag­anda útgáfu fimmtu ser­í­unnar, þegar ýmis­legt hafði spurst út um efni þátt­anna.

„Sir John hefur ekki átt sam­starf af neinu tagi við The Crown og aldrei hefur verið haft sam­band við hann í því skyni að tryggja að rétt sé farið með stað­reyndir í hand­riti þátt­ar­ins,“ segir meðal ann­ars í til­kynn­ing­unni. Áréttað er að sam­töl sem fóru fram á sínum tíma milli drottn­ingar og for­sæt­is­ráð­herra eru leyni­leg og að Major muni aldrei upp­lýsa um neitt sem þeim fór á milli í einka­sam­tölum. „Engin af þeim sam­tölum sem sýnd eru í þátt­unum byggja á raun­veru­legum atburðum. Þau eru ósköp ein­fald­lega skáld­skapur.“

Meiðandi og illviljaður skáldskapur

Aðstand­endur þátt­anna, stjórn­endur Netflix, hafa svarað þess­ari gagn­rýni með því að benda á að aldrei hafi verið farið í graf­götur með það að þætt­irnir séu aðeins byggðir að hluta á sögu­legum heim­ildum, en þeir séu ekki að öllu leyti sann­leik­anum sam­kvæmt. Telur Netflix enga ástæðu til að taka það sér­stak­lega fram, aðvara áhorf­endur eða skýra nánar frá því hvað er satt og hvað skáldað.

Major reyndi bein­línis að koma í veg fyrir að sumt af því sem kemur fram í þátt­unum færi í loftið. „Verði þær senur sem lýst hefur verið settar í loftið eru þær ekk­ert annað en meið­andi og ill­vilj­aður skáld­skapur. Barma­fylli af vit­leysu [e. barrel-load of non­sense] sem áhorf­endum er seld af engri annarri ástæðu en að skapa hámarks dramat­ísk áhrif,“ var haft eftir Major áður en þætt­irnir fóru í loftið.

Gerð krafa um skáldskaparviðvörun

Hin hörðu orð fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herr­ans höfðu þó ekki áhrif, The Crown fór í loftið þrátt fyrir að mein­ingar um að þætt­irnir séu byggðir á sögu­legum atburðum virð­ist æ þoku­kennd­ari.

Þetta er alls ekki í fyrsta sinn í sögu þátt­anna, sem hófu göngu sína árið 2016, sem fundið er því að skilin milli skáld­skapar og raun­veru­leika séu óljós. Í lok fjórðu seríu lagði Oliver Dowden, þá menn­ing­ar­mála­ráð­herra Bret­lands, það til að þátt­unum fylgdi ein­hvers konar við­vörun um að ekki skyldi rugla þeim skáld­skap sem The Crown byggir á saman við sögu­lega atburði. „Ég ótt­ast að kyn­slóðir áhorf­enda sem lifðu ekki þessa atburði muni rugla saman skáld­skap og stað­reyndum,“ sagði Dowden.

Margir tóku undir gagn­rýn­ina en Netflix gaf það skýrt út þá, og árétt­aði nú við útgáfu fimmtu ser­í­unnar, að þætt­irnir yrðu ekki merktir sér­stak­lega með við­vörun af neinu taki. Það liggi hins vegar ljóst fyrir að margt sé skáldað.

Óviðeigandi læknisheimsókn

Við­kvæmnin vegna útgáfu fimmtu ser­í­unnar var mikil, enda ekki nema örfáar vikur síðan Elísabet önnur Eng­lands­drottn­ing, mann­eskjan sem þætt­irnir byggja öðru fremur á, féll frá. Upp­hafs­at­riði fyrsta þáttar, þegar drottn­ingin liggur á bekk hjá lækn­inum, hefur farið fyrir brjóstið á mörgum Bretum. Þykir það sér­lega ónær­gætið að hefja þætt­ina á þessu atriði í ljósi and­láts hennar.

Gagn­rýn­andi The Tel­egraph telur fimmtu ser­í­una ekki nema tveggja stjörnu virði og hefur ýmis­legt við leik­ara­val og sögu­þráð að athuga. Dómur The Guardian hljóðar upp á jafn­margar stjörnur og vandar höf­undum ekki kveðj­urnar, telur að margir þættir hefðu átt betur heima í rusl­inu. The Crown hafi ein­fald­lega aldrei átt minna erindi en nú. Annar skríbent hjá sama miðli telur að rétt­ast væri að hefja hvern þátt á orð­unum: „Eft­ir­far­andi atburðir áttu sér aldrei stað í raun og veru.“

Litlaus sam­töl og lang­dregnar senur ein­kenna fimmtu ser­í­una að mati gagn­rýnenda. En helsta bit­beinið, bæði hjá gagn­rýnendum og áhorf­endum, er leik­ara­valið. Það segir sig sjálft að það er vanda­samt að velja í hlut­verk sem ganga út á að túlka fólk sem er raun­veru­lega til, en er ekki skáld­aðar sögu­hetjur. Sumt þykir vel valið en annað ekki.

Þriðja leikkonan í hlutverki drottningar

Hin reynslu­mikla Imelda Staunton er þriðja leik­konan til að túlka Elísa­betu drottn­ingu og hún fær víð­ast lof fyrir sína frammi­stöðu. Staunton hefur komið víða við á ferl­inum og leikið í sjón­varpi, á svið og á hvíta tjald­inu, en margir muna eftir henni úr Harry Potter mynd­unum sem Dolores Umbridge. Hún þykir ná að fanga flókna til­veru þjóð­höfð­ingj­ans á erf­iðum tímum í lífi fjöl­skyld­unnar í The Crown. Þó hefur verið gagn­rýnt að höf­undar leggi helst til miklar byrðar á drottn­ing­una, af sögu­þræð­inum megi ætla að hin fjöl­mörgu feil­spor með­lima kon­ungs­fjöl­skyld­unnar séu mikið til á hennar ábyrgð, sem sé mögu­lega ekki að öllu leyti sann­gjarnt.

En þótt skandalar og skiln­aðir innan fjöl­skyld­unnar hafi sett mark sitt á fjöl­skyld­una í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins þá upp­lifði drottn­ingin ekki síður mikið áfall þegar elds­voði braust út í Windsor-kast­ala. Nokkrum dögum eftir elds­voð­ann, þann 24. nóv­em­ber 1992, fyrir nær sléttum 30 árum, hélt drottn­ingin fræga ræðu þar sem hún lýsti árinu 1992 sem annus horri­bilis, hræði­legu ári. Tölu­verður munur er þó á þeirri ræðu sem Staunton fór með í þátt­unum og ræð­unni sem Elísabet hélt. Fyrir þá sem vilja sann­reyna það má sjá mynd­band af drottn­ing­unni flytja ræð­una á sínum tíma.

Fyrr­ver­andi kon­ung­legur frétta­rit­ari BBC, Jennie Bond, stillir text­anum í ræð­unum, þeirri sem flutt var á sínum tíma og þeirri sem Staunton fer með í þátt­unum, upp í grein sem hún ritar í til­efni af fimmtu ser­í­unni og sýnir að í raun er aðeins ein máls­grein úr upp­runa­legu ræð­unni sem skilar sér í The Crown. Bond segir ekki heila brú í end­ur­sögn af þess­ari þekkt­ustu ræðu í valda­tíð Elísa­betar og lýkur grein­inni á að segja að nú sé komið nóg, The Crown þurfi að taka endi.

Margt er á reiki um sann­leiks­gildi einka­sam­tala í þátt­unum. Þótt ósætti og síðar skiln­aður Karls og Díönu hafi að nokkru leyti verið fyrir opnum tjöldum þá verður að telj­ast lík­legt að einka­sam­töl þeirra tveggja séu að mestu leyti hug­ar­fóstur höf­unda, sem­sagt skálduð. Leik­konan sem fer með hlut­verk Díönu heitir Elizabeth Debicki og er áströlsk.

Debicki er fædd árið 1990 og man því eflaust ekki mikið eftir þeim atburðum sem þætt­irnir fjalla um. Hún fær almennt fína dóma fyrir frammi­stöðu sína sem Díana prinsessa, þykir ná góðum tökum á hlut­verk­inu og vera sann­fær­andi sem súper­stjarnan Díana sem gengur í gegnum skilnað við Karl. Sitt sýn­ist þó hverjum um hand­ritið sem henni er fengið, en Díana sjálf er auð­vitað ekki til frá­sagnar svo lík­lega verður aldrei til lykta leitt hvort nokkuð af því sem henni og Karli fer á milli er sann­leik­anum sam­kvæmt.

Of heitir leikarar?

Víkur þá sög­unni að Karli, sem nú er orð­inn kon­ungur en var óham­ingju­sam­lega giftur dáð­ustu prinsessu heims á þeim tíma sem þætt­irnir sýna. Í þátt­unum á hann sam­töl við þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, John Major. Athuga­semdir Major, eins og lýst var framar, snúa að sann­leiks­gildi sam­tal­anna. En athuga­semdir sem lesa má frá aðdá­endum þátt­anna til dæmis á sam­fé­lags­miðlum hafa lítið með sam­töl þeirra tveggja að gera.

Jonny Lee Miller túlkar John Major, sem var for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands á árunum 1990 til 1997, en Dominic West fer með hlut­verk Karls Breta­prins. Bæði hlut­verkin eru burð­ar­hlut­verk í þess­ari seríu. Það sem er þó helst fundið að hjá þessu leik­urum er þó ekki endi­lega slök frammi­staða heldur eru þeir ein­fald­lega taldir taka við­fangs­efnum sínum fram í huggu­leg­heitum, enda hafa hvorki John Major eða prins­inn af Wales, sem nú er orð­inn kon­ungur, nokkru sinni verið taldir til mestu hjartaknús­ara ver­aldar.

Frægð­ar­sól Miller skein skært á tíunda ára­tugnum, um það leyti sem þætt­irnir í fimmtu ser­í­unni eiga sér stað, þegar hann brill­er­aði í kvik­mynd­inni Tra­in­spott­ing og var giftur stór­stjörn­unni Angelinu Jolie. Líklega hefur hann ekki grunað þá að örfáum ára­tugum síðar yrði hann beð­inn að leika John Major.

Dominic West er þekkt­astur fyrir hlut­verk sitt í þátt­unum The Wire. Pistla­höf­undur Vogue segir West allt of heitan (e. entirely too hot) til að leika Karl, óör­yggið sem gjarnan ein­kenni Karl í fasi ein­fald­lega vanti. Karl, í túlkun West sé öruggur með sig og hafi yfir sér „Kennedy-legan“ sjarma frekar en að ná að koma hinum ósátta og fremur vand­ræða­lega prinsi — sem fær ekki að verða kóngur þá og fær ekki að eiga kon­una sem hann þráir — til skila. Sagn­fræð­ingar og aðrir sem annt er um að rétt sé farið með stað­reyndir benda einnig á að klæða­burður West sé á köflum úr takti við það sem Karl hefði verið í, til dæmis hefði prins­inn aldrei látið sjá sig í frá­hnepptri stutt­erma­skyrtu eins og í þátt­unum. Skyrta, tví­hnepptur jakki og bindi eru málið, jafn­vel í sum­ar­fríi á snekkju.

Tugir milljóna vilja meira

Þrátt fyrir heil­mikla gagn­rýni, hvort sem sú rýni snýr að útliti leik­ara eða meintum skáld­uðum sam­tölum, þá eru þætt­irnir meðal mest áhorfða sjón­varps­efnis í ver­öld­inni. Eftir að drottn­ingin féll frá hófu áskrif­endur Netflix að horfa á nýju á eldri þætt­ina. Við lok fjórðu seríu upp­lýsti efn­isveitan um að þætt­irnir hefðu náð inná 73 millj­ónir heim­ila út um heim allan frá upp­hafi. Ljóst er að sú tala hefur hækkað frá því þær tölur voru birtar, árið 2020.

The Crown nýtur mestra vin­sælda á Íslandi og 87 öðrum löndum af öllu efni á Netflix um þessar mundir og sam­kvæmt áhorfs­mæl­ingum í Bret­landi horfði um 1,1 mill­ljón á fyrsta þátt­inn í ser­í­unni dag­inn sem hann kom út. Þær tölur eiga þó aðeins við um þá sem horfðu í sjón­varps­tæki, en nær ekki yfir tölvur og snjall­tæki. Búist er við að frek­ari áhorfs­tölur verði birtar á næstu vikum, en ljóst er að þótt gagn­rýnendur séu skept­ískir á fram­haldið, þá þykir hvorki krúnu­þyrstum áhorf­endum né stjórn­endum Netflix komið nóg.

Sjötta og síð­asta ser­ían er nú þegar á teikni­borð­inu og því spáð að hún fari í loftið í nóv­em­ber 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár