Grunur um að Íslendingar hafi verið fórnarlömb mansals á Sri Lanka

Kona sem stýrði mansals­hring á Sri Lanka sá um að finna börn fyrir samtökin Íslenska ættleiðingu á níunda áratugnum. Hollenskur tengi­liður samtak­anna kom á sambandi við konuna en fyrirtæki hans er sagt hafa tekið þátt í mansali á börnum. „Ég fékk hroll þegar fréttir af þessu bárust á dögunum og ég næ honum ekki úr mér.“ segir Engilbert Valgarðsson sem var formaður Íslenskrar ættleiðingar á þessum tíma.

Leynileg upptaka
Leynileg upp­taka Í hol­lenskri heim­ild­ar­mynd um ætt­leið­ingar frá Sri Lanka á átt­unda og níunda ára­tug síð­ustu aldar eru birt mynd­skeið úr hús­næði þar sem ætt­leið­ingar fóru fram.

Ættleiðingar á börnum frá Sri Lanka til Íslands voru stöðvaðar í lok mars árið 1986 eftir að hjón sem höfðu ættleidd barn þar létu dómsmála­ráðuneytið vita að pappírar sem fylgdu barninu væru hugsanlega falsaðir. Þá höfðu á níunda tug barna þegar verið ættleidd til Íslands frá Sri Lanka. Undan­farin sex ár hefur verið að koma í ljós að umfangs­mikil sala á börnum átti sér stað á þessum tíma í Sri Lanka. Erlendir fræðimenn og blaðamenn hafa rannsakað málið og komist að því að um var að ræða skipulagða glæpa­starfsemi. Fyrirtæki Hollend­ingsins Dammas Hordijk, sem var tengi­liður Íslands í ættleiðingar­málum á Sri Lanka, er sagt hafa tekið þátt í mansali á börnum og verið í viðskipta­sambandi við konu sem sögð var standa fyrir umfangs­miklu barnamansali. 

Málið komst í hámæli hér á landi eftir að umfjöllun um fölsuð ættleiðingar­gögn barna sem ættleidd höfðu verið frá Sri Lanka til Íslands, …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár