Bókmenntapælingar: Konur í ísskápum

Augljósi sögu­hvatinn sem aldrei deyr.

Ofbeldi gegn konum í glæpa­sögum, þáttum eða myndum er ekki nýtt af nálinni – og mætti frekar líta á það sem bókmenntaklisju en nýjung. Mannkynið hefur búið við frásagnir af þessu tagi allt frá Kamelot-ævintýrum um konu­rænandi risa­skrið­kvikindi til höfuðsins í kassanum í Se7en og vera má að þær hafi alltaf verið til. Vegna þess hve algengt ofbeldi gegn konum er hlýtur að vera þess vert að velta því fyrir sér hvort nauðsynlegt sé að finna því sess í skáldskap eða hvort það hafi hreinlega slæm áhrif, smætti konur og viðfangsvæði (e. objectify) þær.

Hugtakið „ísskápa­konur“, eða „women in refrigerators“, á við um það þegar morð á konu er notað sem tæki fyrir sögu­framvindu – og þá helst sem hvata fyrir karlkyns aðal­persónu til að hefja sína hetjusögu. Þannig er konan ekki með sinn eigin persónu­boga heldur er dauði hennar tæki til þess að færa söguna í ákveðna átt; …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár