Stígamót: Réttarkerfið enn og aftur brugðist brotaþolum

Lögregla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðgun þegar maður sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem hann vissi að vildi ekki enda­þarms­mök. Stígamót bregð­ast við frétta­flutn­ingnum: „Ef sam­þykki er ekki fyrir hendi er um nauðgun að ræða.“

Stígamót telja að af frétt Stund­ar­innar um með­ferð kyn­ferð­is­brota­máls sé „ekki hægt að draga aðra ályktun en að rétt­ar­kerfið hafi enn og aftur brugð­ist brota­þolum kyn­ferð­is­of­beldis“. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem sam­tökin birta á Facebook.

Eins og fjallað er um í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar töldu lög­regla og rík­is­sak­sókn­ari ekki til­efni til að rann­saka hvort nauðgun hefði átt sér stað þegar maður setti lim sinn í enda­þarm 17 ára stúlku meðan hún svaf. Maðurinn við­ur­kenndi verkn­að­inn í yfir­heyrslu vegna ann­ars máls árið 2015 og sagð­ist hafa vitað að stúlkan, þá kærasta hans, væri mót­fallin enda­þarms­mökum. Lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hóf ekki rann­sókn, meint brot var ekki skráð í mála­skrá, stúlkunni ekki skip­aður rétt­ar­gæslu­maður og hún ekki látin vita af fram­burði manns­ins. Kvaðst mað­ur­inn sjálfur hafa verið sof­andi og taldi því lög­regla að hátt­semin gæti ekki talist nauðgun eða kyn­ferð­is­brot. Hefur nú rík­is­sak­sókn­ari kom­ist að sömu nið­ur­stöðu en sam­kvæmt bréfi emb­ætt­is­ins frá 11. júní 2019 verður „ekki séð að sak­born­ing­ur­inn hafi með fram­an­greindum fram­burði sínum verið að við­ur­kenna nauðgun eða lýsa ásetn­ings­verki“. Eftir að brota­þoli fékk upp­lýs­ingar um „játn­ing­una“ og kærði málið vís­aði rík­is­sak­sókn­ari því til rann­sóknar hjá lög­regl­unni á Suð­ur­landi.

Stígamót benda á að fyrir rúmu ári síðan sam­þykkti Alþingi breyt­ingar á skil­grein­ingu nauðg­unar í hegn­ing­ar­lögum, en með lög­unum hafi öll tví­mæli verið tekin af um að sam­þykki sé for­senda kyn­maka. 

„Við á Stíga­mótum höfum ítrekað sagt að lögin verði ekki til í ein­hverju tóma­rúmi. Þau mót­ast í gagn­kvæmum tengslum við sam­fé­lagið og hafa hingað til verið múl­bundin skil­grein­ingum á verkn­að­ar­lýs­ingu sem miðar við að lík­am­legu ofbeldi sé beitt, er það í engu sam­ræmi við reynslu­heim kvenna sem sjaldan berj­ast á móti. Þrátt fyrir að nauðg­un­ar­á­kvæð­inu hafi verið breytt þar sem áhersla er lögð á sam­þykki og kyn­frelsi, virð­ist rétt­ar­kerfið ekki vera í takti við þá breyt­ingu,“ segir í færslu sam­tak­anna.

„Breyt­ingar á nauðg­un­ar­á­kvæði hegn­ing­ar­laga voru liður í því að breyta við­horfum sem feðra­veldi for­tíðar hefur skapað og eimir sterkt af á ýmsum stöðum. Karlmenn eiga aldrei rétt á kyn­lífi með konu. Hvort sem það er í sam­bandi eða innan hjóna­bands. Kynlíf undir öllum kring­um­stæðum byggir á kyn­frelsi og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti þeirra ein­stak­linga sem taka þátt í því. Að okkar mati bregst rétt­ar­kerfið brota­þolum kyn­ferð­is­of­beldis reglu­lega. Það kemur fram í tíðum nið­ur­fell­ingum mála, fáum sak­fell­ingum og í þeim fáu til­fellum sem ger­andi er fundin sekur eru dóm­arnir mildir og í engu sam­ræmi við gróf­leika glæps­ins. Af frétt Stund­ar­innar er ekki hægt að draga aðra ályktun en að rétt­ar­kerfið hafi enn og aftur brugð­ist brota­þolum kyn­ferð­is­of­beldis. Ef sam­þykki er ekki fyrir hendi er um nauðgun að ræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár