May vill svigrúm til að undirbúa Brexit

Theresa May hitti Angelu Merkel í Berlín í dag.
Theresa May hitti Angelu Merkel í Berlín í dag. Mynd: EPA

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur beint þeim til­mælum til Angelu Merkel, kansl­ara Þýsklands, að hún muni þurfa meiri tíma til að und­ir­búa úrsögn Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu. May er nú í Berlín á sínum fyrsta fundi með Merkel eftir að hún varð for­sæt­is­ráð­herra á dög­unum.

Merkel hefur hvatt nýja rík­is­stjórn Bret­lands til að ganga hratt til verks og eyða óviss­unni um Brexit snar­lega. Bretar kusu úrsögn úr ESB í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í lok júní. Bresk stjórn­völd hafa enn ekki sent inn form­lega úrsagn­ar­beiðni til ráða­manna í Brussel.

Talið er að fundur May og Merkel muni að mestu snú­ast um útgöngu Bret­lands úr ESB, flótta­manna­vandan í Evrópu og hryðju­verkaógn. May hefur þegar óskað eftir því að Bretland gegni ekki for­mennsku í Evr­ópu­ráð­inu á næsta ári, en röðin er nú komin að Bretum, en hvert aðild­ar­ríkj­anna 28 gegna þessu hlut­verki í sex mán­uði í senn.

Eftir fund May með Merkel flýgur hún til Parísar þar sem hún hittir Francois Hollande, for­seta Frakk­lands. Á báðum fundum mun May útskýra hvers vegna úrsögnin taki svo langan tíma. Samkvæmt heim­ildum The Guardian er það vegna þess að enn eiga bresk stjórn­völd eftir að ráð­færa­sig við Skota, Walesverja og Norður-Íra um hvernig haga eigi fram­hald­inu.

Málefni inn­flytj­enda eru Theresu May mjög hug­leikin. Hún sagði í sér­stökum spurn­inga­tíma til for­sæt­is­ráð­herra á breska þing­inu í dag að minnka þyrfti straum inn­flytj­enda til lands­ins. Það var eitt af helstu bar­áttu­málum þeirra sem börð­ust fyrir úrsögn úr ESB í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár