Forsætisnefnd lækkar greiðslur til þingmanna

Ferða­kostn­aður og starfs­kostn­aður þing­manna verður lækk­aður um ríf­lega 100 þús­und krónur, sem sam­svarar um 150 þús­und króna launa­lækkun fyrir skatt. Þetta var ákveðið á fundi for­sætis­nefndar Alþingis í morgun að til­lögu Unnar Brár Kon­ráðs­dóttur, for­seta Alþingis.

„Ferða­kostn­aður lækkar um 54 þús. kr. sem jafna má til um 100 þús. kr. í launa­greiðslu, og starfs­kostn­aður lækkar um 50 þús. kr.; sam­an­lagt má jafna þess­ari lækkun við 150 þús. kr. fyrir skatt. Samkvæmt þessum breyt­ingum eiga því greiðslur til þing­mannna, þ.e. þing­far­ar­kaup og fastar mán­að­ar­legar greiðslur, að vera innan þeirrar launa­þró­unar sem orðið hefur frá því að kjara­ráð hóf að úrskurða um þing­far­ar­kaup árið 2006,“ segir í til­kynn­ingu frá Unni Brá.

Formenn stjórn­mála­flokk­anna á Alþingi fóru þess á leit við for­sætis­nefnd í des­em­ber síð­ast­liðnum að hún end­ur­skoð­aði reglur um þing­far­ar­kostnað, það er starfstengdar greiðslur til þing­manna, sem eru fastar mán­að­ar­legar greiðslur. Þetta var gert í tengslum við gagn­rýni sem kom fram á mikla hækkun á kjörum þing­manna, sem kjara­ráð ákvað á kjör­dag í lok októ­ber síð­ast­liðnum.

Sam­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs voru laun for­­seta Íslands hækkuð í 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­ar­­kaup alþing­is­­manna fór í 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­sæt­is­ráð­herra að með­­­töldu þing­far­­ar­­kaupi eru nú 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­arra ráð­herra að með­­­töldu þing­far­­ar­­kaupi 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun for­­sæt­is­ráð­herra voru áður tæp­­lega 1,5 millj­­ónir en laun for­­seta voru tæpar 2,5 millj­­ón­­ir.

Laun þing­manna hækk­uðu hlut­falls­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­sent. Krónu­tölu­hækkun launa þeirra var 338.254 krón­ur. 

Á fundi for­sætis­nefndar Alþingis var einnig sam­þykkt að taka núver­andi lög um þing­far­ar­kaup og þing­far­ar­kostnað til end­ur­skoð­unar, þar sem leið­ar­ljósið verði ein­földun og gagn­sæi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár