Mynd: EPA

Borgirnar þagna

Margar stór­borgir heims virð­ast nú mann­lausar, eru eyði­legar. Það er varla nokkur sála á ferli. Mann­lífið er horfið og þó að vorið sé að vakna víða í vest­ur­heimi verður bið á því að við fáum að njóta þess með sama hætti og áður.

Múgur og marg­menni. Mann­mergð. Þröng á þingi. Ys og þys. Kraðak. Aragrúi. Herskari fólks.

Fjöldinn allur af borgum víðs vegar um heim­inn þykir svo áhuga­verður að þangað þyrp­ast millj­ónir manna ár hvert til þess eins að berja dýrð­ina augum. Dýrð borg­anna getur tekið á sig ýmsar og ólíkar myndir. Hún getur falist í frægum lista­söfnum, stór­kost­legum bygg­ingum, spræku leik­hús- og tón­list­ar­lífi, fram­andi mat­ar­gerð. Hún getur falist í sög­unni, menn­ing­unni, hefð­unum og sið­unum.

Borg­irnar eru svo margar – svo ólíkar. Svo hríf­andi – svo lif­andi. En það er fyrst og fremst eitt sem dregur okkur að þeim öllum: Fólkið.

Brosandi fólk. Hlæjandi fólk. Syngj­andi fólk. Dansandi fólk. Fólk að vinna. Leiðast, faðm­ast, kyss­ast. Fólk að elda, borða, drekka. Lifa.

Fólkið er nú farið af göt­unum og torgin eru tóm. Leik­húsin og söfnin líka. Taktfast fóta­tak á stein­lögðum stéttum hefur þagnað. Það er hljótt, eng­inn kliður.

Borg­irnar virð­ast mann­lausar, eru eyði­legar. Það er varla nokkur sála á ferli. Mann­lífið er horfið og þó að vorið sé að vakna víða í vest­ur­heimi verður bið á því að við fáum að njóta þess með sama hætti og áður.

En þetta er allt þarna enn þá. Allar glæsi­legu bygg­ing­arnar, versl­an­irnar, bar­irnir og veit­inga­húsin, gos­brunn­arnir, stytt­urnar og listi­lega byggðar brýrnar. Allt bíður þetta eftir því að lítil veira með krans um sig miðja missi þrótt­inn og gef­ist upp.

San Salvador innan um eldfjöllin

San Salvador er höf­uð­borg Mið-Ameríku rík­is­ins El Salvador. Borgin er nokkuð hátt yfir sjáv­ar­máli og umkringd eld­fjöllum. Þar var hart barist í borg­ara­styrj­öld­inni á síð­ari hluta 20. aldar en síð­ari ár hefur hún dregið að fjölda ferða­manna og er auk þess menn­ingar- og fjár­mála­kjarni lands­ins.

22. mars 2020: Hundruð dúfna sitja á Gerardo Barrios-torg­inu í San Salvador. Í El Salvador hefur útgöngu­bann verið sett á.

Litasprengjan Barcelona

Lofts­lagið er svo blítt í spænsku borg­inni Barcelona. Og sand­ur­inn á strönd­unum svo mjúkur og hlýr. Auðugt lista­líf og allar þessar guð­dóm­lega fögru bygg­ingar láta engan gest ósnort­inn. Skringi­legu húsin hans Gaudí lyfta and­anum og þröngu göt­urnar í gamla mið­bænum, þar sem fjöl­mörg veit­inga­hús er að finna, eru eins og leik­mynd í kvik­mynd.

23. mars 2020: Boqueria-mark­að­ur­inn í Barcelona er mann­laus á tíunda degi alls­herj­ar­lok­unar í borg­inni.

Lífið í og undir London

London, höf­uð­borg Bret­lands, á sér tvö þús­und ára langa sögu og for­tíðin er þar næstum því áþreif­an­leg. Áin Thames og brýrnar yfir hana hafa svo oft sést í kvik­myndum og sjón­varps­þáttum að þeir sem heim­sækja London í fyrsta sinn rata næstum því um hana. Lífið er svo ekki síst neð­an­jarðar. Lest­ar­kerfi undir göt­unum og öllum sögu­frægu bygg­ing­unum er rúm­lega 400 kíló­metrar að lengd.

23. mars 2020: Fjórar konur, lík­lega ferða­menn, með and­lits­grímur fyrir framan Eros-stytt­una í Piccadilly Circus í London, dag­inn fyrir alls­herjar útgöngu­bann. Barir, veit­inga­hús, lík­ams­rækt­ar­stöðvar og fleira er nú lokað og allir eiga að halda sig heima.

Undur Dresden

Fyrir heims­styrj­öld­ina síð­ari var þýska borgin Dresden kölluð „skart­gripa­skrínið“ því þar var að finna fjöl­skrúð­ugt lista­líf og glæstar bygg­ingar. Í loft­árásum stríðs­ins voru margar þeirra jafn­aðar við jörðu og aðrar skemmd­ust mikið. End­ur­bætur stóðu í ára­tugi og ferða­menn koma þangað til að skoða sig um og njóta nálægð­ar­innar við Saxelfur, ána sem rennur um borg­ina.

22. mars 2020: Hjól­reiða­maður fer yfir Bláa und­rið, brú í Dresden, að kvöld­lagi. Í Þýska­landi er fleiri en tveimur bannað að koma saman nema að þeir séu úr sömu fjöl­skyld­unni.

Feneyjar: Drottning Adríahafsins

Allir þekkja nafnið Feneyjar, borg­ar­innar á Norð­austur-Ítalíu. Sérstaða hennar er mikil; hún teygir sig yfir fjölda lít­illa eyja í Fen­eyja­lón­inu og á milli þeirra eru síki. Flestir íbú­arnir ferð­ast milli borg­ar­hluta með almenn­ings­bátum en ferða­menn fara um borð í gondól­ana sem róið er um síkin og hafa löngum verið ímynd róm­an­tíkur.

22. mars 2020: Gondól­arnir í Feneyjum liggja við bryggjur. Vatnið í síkj­unum er að verða tært eftir að ferða­mönnum var meinað að koma þangað og það grugg­ast ekki lengur í kjöl­fari smá­bát­anna vin­sælu.

Manilla – paradís karókí-söngvarans

Höf­uð­borg Asíu­rík­is­ins Fil­ipps­eyja er þekkt fyrir blóm­legt næt­ur­líf. Það eru karókí-barir á hverju götu­horni og eng­inn skamm­ast sín fyrir að stíga þar á stokk. Hún er líka þekkt fyrir miklar umferð­ar­teppur. Það vanda­mál er í augna­blik­inu úr sög­unni.

24. mars 2020: Heim­il­is­lausir Fil­ippsey­ingar fá skjól í íþrótta­húsi í Manilla. Þingið hefur veitt for­set­anum Rodrigo Duterte enn meiri völd vegna neyð­ar­á­stands­ins sem lýst hefur verið yfir í land­inu.

Strandlíf og menning í Sydney

Það ættu allir að heim­sækja áströlsku stór­borg­ina Sydney að minnsta kosti einu sinni á lífs­leið­inni, segir á mörgum ferða­síðum á net­inu. Hún er ekki aðeins þekkt fyrir óperu­húsið glæsi­lega og Hafn­ar­brúna sér­stæðu heldur einnig fyrir fjörugt strand­líf. Eftir skoð­un­ar­ferð um borg­ina er upp­lagt að setj­ast niður við hafið, sóla sig í stund­ar­korn eða fá sér drykk á næsta strand­bar. Saga Sydney er líka áhuga­verð. Það var þar sem kapteinn Cook kom að landi og land­nám Breta í Ástralíu hófst.

22. mars 2020: Bondi-ströndin í Sydney er alla jafna þakin sól­dýrk­endum á þessum árs­tíma. Þangað koma líka margir til að baða sig í heitum sjónum, ganga eða skokka. Strönd­inni hefur nú verið lokað og ýmis sam­komu­bönn tekið gildi.

Framsýnin við völd í Curitiba

Curitiba í suð­ur­hluta Brasilíu er meðal ann­ars kunn fyrir ein­stakt borg­ar­skipu­lag þar sem áhersla er lögð á græn svæði. Þar var mið­bænum strax á sjötta ára­tugnum breytt í göngu­götur. Borg­ar­yf­ir­völd voru líka á undan sinni sam­tíð þegar kom að end­ur­vinnslu og að hlúa að heim­il­is­lausum.

21. mars 2020: Prestur í Curitiba predikar yfir myndum af safn­að­ar­börnum sínum. Hann hvatti þau til að vera heima en að senda sér myndir í tölvu­pósti. Nú þegar hefur hann fengið yfir 170 þús­und myndir.

París er borg ástarinnar

París þarf vart að kynna. Íslend­ingar fara þar í þús­unda­tali ár hvert til að njóta menn­ingar, lista og hinnar þekktu frönsku mat­ar­gerðar. París hefur löngum verið kölluð borg ást­ar­innar og við Eiffel-turn­inn fagra eru bón­orð (alla jafna) borin fram dag­lega.

23. mars 2020: Maður með plast­poka fyrir vit­unum gluggar í bók við Eiffel-turn­inn í París. Í Frakk­landi hafa útgöngu­bönn verið sett á.

Los Angeles er borg engla og drauma

Hún er kannski ekk­ert sér­stak­lega spenn­andi þegar kemur að arkítektúr en hin sól­ríka Los Angeles bætir það upp með ýmsum öðrum hætti. Tísku­versl­anir í löngum röðum á hverri götu höfða til sumra, ríkra manna hverfin til ann­arra en strend­urnar til flestra. Los Angeles, borg englanna, er einnig oft kölluð borg draumanna enda er þar mekka kvik­mynda­iðn­að­ar­ins í Banda­ríkj­unum að finna, sjálfa Hollywood.

21. mars 2020: Lítil umferð er á götum bíla­borg­ar­innar Los Angeles eftir að rík­is­stjór­inn fyr­ir­skip­aði borg­ar­búum að halda sig heima.

Útsýnið í Lissabon

Lissabon, höf­uð­borg Portú­gals, er stundum kölluð San Francisco Evrópu. Það þarf þó ekk­ert að tengja hana við aðra borg, hún er sér­stök á sinn eigin hátt. Hún er hafn­ar­borg og teygir byggðin sig upp í hæðir allt í kring. Veit­inga­húsin eru þekkt fyrir ein­staka sjáv­ar­rétti og verð­lagið er lágt miðað við aðrar evr­ópskar borgir. Lissabon er ein af þessum full­komnu borgum til að njóta menn­ingar, fara í göngu­ferðir og slappa af á strönd­inni – allt í einni og sömu ferð­inni.

22. mars 2020: Bráða­birgða­sjúkra­húsi komið upp í Portúgal. Neyð­ar­á­standi hefur verið lýst yfir í land­inu.

Katmandú við rætur Himalaja-fjalla

Katmandú, höf­uð­borg Nepals, er í um 1.300 metra yfir sjáv­ar­máli. Hún er þó engu að síður í dal að nepölskum mæli­kvarða því allt umhverfis hana rísa Himalaja-fjöllin. Borgin er þekkt fyrir líf­legar og lit­skrúð­ugar trú­ar­sam­komur. Margar bygg­ingar hennar eyðilögð­ust í jarð­skjálft­anum mikla árið 2015 en unnið hefur verið að end­ur­bótum.

23. mars 2020: Maður gengur um ann­ars tómar götur Katmandú. Neyð­ar­á­stand ríkir og allt er lokað í að minnsta kosti sjö daga.

Bleiku kirsuberjatrén í Tókýó

Tókýó er höf­uð­borg Japans. Hún er ekki aðeins áhuga­verð fyrir áhuga­fólk um tækni og vís­indi heldur einnig þá sem unna feg­urð nátt­úr­unnar. Kirsu­berja­trén með sínum fögru blómum draga margan ferða­mann­inn að á vorin. Þau eru ekki lengi í blóma, aðeins í um viku ár hvert.

22. mars 2020: Par lyftir barni sínu upp að blóm­strandi kirsu­berjatrjánum í Tókýó. Yfirvöld hafa hvatt gesti til að draga úr skoð­ana­ferðum í hópum að trjánum fögru sem eru einmitt núna í miklum blóma. Vor­boð­inn ljúfi í austri.

New York, New York

New York er suðu­pottur fjöl­menn­ingar. Hvað sem þig langar að borða, hvað sem þig langar að sjá – New York mun ekki valda þér von­brigðum. Hverfin fimm, sem öll hafa sín sér­kenni, eru hvert útaf fyrir sig heim­sókn­ar­innar virði. Skýja­kljúfarnir gnæfa hátt til him­ins á Man­hattan og bygg­ingar sem áður voru þær hæstu í heimi, Empire State og Chyrsler-bygg­ingin, virð­ast lágreistar í sam­an­burð­inum.

23. mars 2020: Hjól­reiða­maður hjólar yfir Time Square í New York. Allri starf­semi í borg­inni hefur verið hætt nema þeirri sem telst brýn. Borgin er nú miðja far­ald­urs­ins í Banda­ríkj­unum.

Sólskinsborgin Madrid

Veðrið er gott í Madrid, höf­uð­borg Spánar, allt árið um kring. Hún er spænsk í gegn og þangað fara ferða­menn til að kynn­ast hinni „raun­veru­legu“ spænsku menn­ingu. Mat­ar­gerð er þar í hávegum höfð og bygg­ingar frá 15. öld bjóða upp á ferða­lag aftur í tím­ann. Og aftur að veðr­inu: Madrid er sól­rík­asta borg Evrópu, þar skín sú gula í yfir 300 daga á ári.

23. mars 2020: Starfs­maður hjúkr­un­ar­heim­ilis í Madrid gægist út á milli glugga­tjald­anna. Spán­verjar mega ekki fara út af heim­ilum sínum nema að brýna nauð­syn beri til.

Gestrisnin í Róm

Róm á Ítalíu er líkt og París í hugum margra sér­lega róm­an­tísk borg. Hún er ein sú elsta í Evrópu enda var hún í þús­undir ára mið­punktur heims­velda hvers tíma. Sagan, list­irnar, arkítekt­úr­inn. Allt þetta lokkar for­vitið fólk til sín. En það gera íbúar Rómar líka enda hafa kann­anir sýnt að þeir eru meðal gest­risn­ustu borg­ar­búa Evrópu.

23. mars 2020: Mannlaus mið­bær Rómar á Ítalíu. Lögreglu- og her­menn standa vörð um útgöngu­bönn sem sett hafa verið á. Ítalir eiga að halda sig heima og flest er lokað utan mat­vöru­versl­ana og apó­teka.

Mumbai er borg draumanna

Ind­verska borgin Mumbai er ein sú þétt­býlasta í heimi. Járn­brautin sem um hana liggur flytur alla jafna fleiri far­þega á hvern kíló­metra en allar aðrar járn­brautir í heim­inum. Ferða­menn heim­sækja Mumbai meðal ann­ars til að verða vitni að hinni gríð­ar­legu mann­mergð, þar sem ilmur af krydd­uðum mat og hróp og köll sölu­manna renna saman í stór­kost­lega upp­lifun. En í henni fær nátt­úran líka að njóta sín og í Sanjay Gandhi-þjóð­garð­inum fyllir blóma­angan og fugla­söngur loftið. Þar búa líka tígris­dýr.

23. mars 2020: Íbúar fjöl­býl­is­húss í Mumbai klappa og berja í potta og pönnur á svölum sínum. For­sæt­is­ráð­herr­ann bað fólk að halda sig alfarið heima og þakka heil­brigð­is­starfs­fólki fyrir vel unnin störf klukkan fimm síð­degis alla daga með þessum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár