Fjölmiðlanefnd mun ekki taka fyrir kvörtun Símans vegna fréttaflutnings RÚV

Fjöl­miðla­nefnd telur að ekk­ert hafi komið fram sem bendi til óeðli­legra tengsla aug­lýs­inga­sölu og frétta­flutn­ings Rík­is­út­varps­ins.

Samkvæmt nið­ur­stöðu fjöl­miðla­nefndar, sem Kjarninn hefur undir höndum, mun nefndin ekki taka kvörtun Magnúsar Ragn­ars­sonar, fram­kvæmda­stjóra sölu­sviðs Símans, vegna meintra dul­inna aug­lýs­inga í frétta­tíma RÚV 1. októ­ber síð­ast­lið­inn til frek­ari með­ferðar.

Í kvörtun­inni sagði að form­lega væri óskað rann­sóknar á óeðli­legum tengslum aug­lýs­inga­sölu og frétta­flutn­ings hjá Rík­is­út­varp­inu sjón­varpi. Til stuðn­ings kröf­unni var vísað til birt­ingar fréttar um Hafn­ar­torg í aðal­frétta­tíma sjón­varps þann 1. októ­ber síð­ast­lið­inn. Þá var í kvörtun­inni vísað til til­tek­inna atvika og rakið hvers vegna kvart­andi teldi frétt­ina brjóta gegn banni við duldum aug­lýs­ingum.

Á fundi fjöl­miðla­nefndar, sem hald­inn var 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn, fjall­aði nefndin um fram­an­greinda kvörtun og svör Rík­is­út­varps­ins vegna hennar. Í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar kemur fram að að teknu til­liti til umræddrar fréttar, svara Rík­is­út­varp­ins og fyr­ir­liggj­andi gagna telji nefndin ekk­ert fram komið sem bendi til óeðli­legra tengsla aug­lýs­inga­sölu og frétta­flutn­ings Rík­is­út­varps­ins. Því sé það nið­ur­staða nefnd­ar­innar að kvörtunin gefi ekki til­efni til frek­ari með­ferðar hjá nefnd­inni.

Rakel Þor­bergs­dóttir, frétta­stjóri RÚV, sagði þann 10. októ­ber síð­ast­lið­inn að um hreinan atvinnuróg væri að ræða. Í kvörtun Magnúsar væri að finna raka­lausar dylgjur og hug­ar­burð. „Sjálf­stæði frétta­stofu RÚV gagn­vart öðrum deildum fyr­ir­tæk­is­ins er algert og engin dæmi þess að eld­vegg­ur­inn milli frétta­stofu og aug­lýs­inga­deildar hafi verið rof­inn,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár