23 sækja um upplýsingafulltrúa dómsmálaráðuneytisins

Alls vilja 23 verða upp­lýs­inga­full­trúar Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra. Mörg þekkt and­lit meðal umsækj­enda.

Alls vilja 23 verða upp­lýs­inga­full­trúar Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra. Meðal umsækj­enda eru Þorbjörn Þórð­ar­son frétta­maður Stöðvar 2, Berglind „Festival“ Pét­urs­dóttir, texta­höf­undur og sjón­varps­kona á RÚV og Auðunn Arn­órs­son upp­lýs­inga­full­trúi breska sendi­ráðs­ins á Íslandi og bróðir Þóru Arn­órs­dóttur rit­stjóra sjón­varps­þátt­ar­ins Kveiks sem sýndur er á RÚV.

RÚV greindi fyrst frá.

Fleiri stöður upp­lýs­inga­full­trúa í stjórn­ar­ráð­inu hafa verið aug­lýstar og fylltar síð­ustu mán­uði. Þá sóttu umtals­vert fleiri um, en 75 sóttu um stöðu upp­lýs­inga­full­trúa utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í nóv­em­ber á síð­asta ári og tæp­lega 60 um stöðu upp­lýs­inga­full­trúa mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins í jan­úar.

Starf upp­lýs­inga­full­trúa var aug­lýst til umsóknar í byrjun mars. Í aug­lýs­ing­unni kemur fram að upp­lýs­inga­full­trúi beri ábyrgð á fjöl­miðla­tengslum og rit­stýrir vefjum ráðu­neyt­is­ins. Upp­lýs­inga­full­trúa er ætlað að vinna að kynn­ingu á starf­semi ráðu­neyt­is­ins og verk­efnum þess og vera ráð­herra, ráðu­neyt­is­stjóra og öðrum starfs­mönnum til ráð­gjafar um sam­skipti við fjöl­miðla. Hann fylgist með frétta­flutn­ingi af starf­semi ráðu­neyt­is­ins og ráð­herra og veitir fjöl­miðlum og almenn­ingi upp­lýs­ingar.

Þessi sóttu um stöð­una:

Aldís Gunn­ars­dóttir

Auðunn Arn­órs­son

Berglind Pét­urs­dóttir

Björn Friðrik Brynj­ólfs­son

Björn Sigurður Lárusson

Eyþór Gylfason

Gró Ein­ars­dóttir

Guðmunda Sig­urð­ar­dóttir

Guð­mundur Albert Harð­ar­son

Guð­mundur Heiðar Helgason

Guðrún Óla Jóns­dóttir

Hulda Birna

Inga Dóra Guð­munds­dóttir

Kolbrún G. Þor­steins­dóttir

Ragnar Auðunn Árnason

Sólveig Fríða Guð­rún­ars­dóttir

Stefanía Hrund Guð­munds­dóttir

Tinna Garð­ars­dóttir

Torfi Geir Sómon­ar­son

Viktor H. Andersen

Þorbjörn Þórð­ars­son

Þórdís Vals­dóttir

Ösp Ásgeirs­dóttir

Fréttin hefur verið upp­færð. Áður sagði að 25 hefðu sótt um en tveir þeirra drógu umsóknir sínar til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár