Jón Trausti segir viðbrögð Sigmundar Davíðs kunnugleg

Jón Trausti Reyn­is­son, rit­stjóri Stund­ar­innar, ræðir fyrstu við­brögð Sig­mundar Davíðs við Klaust­urs-upp­tök­unum í Silfrinu í morgun. Hann segir árásir stjórn­mála­manna á fjöl­miðla oft vera leið til að „geng­is­fella gagn­rýni“.

Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar.
Jón Trausti Reyn­is­son, rit­stjóri Stund­ar­innar. Mynd: Skjátskot/Rúv

Jón Trausti Reyn­is­son rit­stjóri Stund­ar­innar lýsti áhyggjum sínum af orð­ræðu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, í tengslum við Klaust­urs­upp­tök­urnar í Silfrinu í morgun. Hann segir við­brögð Sig­mundar vera þekkta aðferð stjórn­mála­manna til að „geng­is­fella gagn­rýni“ og grafa undir fjöl­miðlum. „Fyrstu við­brögð Sig­mund­ar Davíðs Gunn­laugs­son­ar eru svo­lítið kunn­ug­leg. Það er, að ráð­ast á fjöl­miðla,“ seg­ir Jón Trausti Reyn­is­son.

„Ekki um annað að ræða en að brotist hafi verið inn í síma einhvers“

[links]Daginn eftir að fyrstu fréttir af „klaust­urs-upp­tök­unum“ voru birtar á vef Stund­ar­innar og DV, birti Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, stöðu­færslu um málið á Facebook-síðu sinni. Í stöðu­færsl­unni segir hann að ef á Íslandi séu stund­aðar hler­anir á einka­sam­tölum stjórn­mála­manna þá hljóti það að telj­ast alvar­legt mál. „Hafi verið gerð hljóð­upp­taka af fundi þeirra sex þing­manna sem þar eru nefndir hlýtur það að telj­ast alvar­legt mál. Hóp­ur­inn sem vísað er til sat einn úti í horni og því ekki um annað að ræða en að brot­ist hafi verið inn í síma ein­hvers þeirra sem þarna voru staddir eða beitt hler­un­ar­bún­aði,“ segir í stöðu­færsl­unni.

Sig­mundur líkir upp­tök­unum við þegar útsend­arar blaðs­ins News of the World hler­uðu sím­töl stjórn­mála­manna og ann­ars þekkts fólks. „Það athæfi var litið alvar­legum augum og gripið til aðgerða í sam­ræmi við það. Ég vona að sú verði raunin á Íslandi líka. Ann­ars eru íslensk stjórn­mál og íslenskt sam­fé­lag gjör­breytt,“ segir Sig­mundur Davíð í stöðu­færslu sinni.

„Þegar stjórnmálamenn skjóta sendiboðann“

Í Silfrinu gerir Jón Trausti athuga­semdir við við­brögð Sig­mundar og segir ýmsan lær­dóm hægt að draga af við­brögð­unum. „Hann byrj­ar strax að vísa í til­felli frá Bret­landi þar sem fjöl­miðlar voru sak­sótt­ir vegna hler­un­ar­mála,“ seg­ir Jón Trausti. „Þetta er ein­kenni á mjög óheil­brigðu ferli í umræðu í stjórn­mál­um, þegar stjórn­mála­menn taka að skjóta sendi­boð­ann.“ Jón segir þetta jafn­framt vera leið sumra stjórn­mála­manna út úr umræð­unni, að „geng­is­fella gagn­rýni“ með þessum hætti.

Jón Trausti bendir á að Sig­mundur Davíð hefur gert árásir á fjöl­miðla að sinni taktík. „Sami stjórn­mála­maður hef­ur gert það að sinni helstu taktík, að hjóla í RÚV og koma fram með sam­særis­kenn­ing­ar um RÚV og aðra fjöl­miðla“. [adspot]

Fanney Birna Jóns­dóttir, þátta­stjórn­andi Silf­urs­ins, bendir á að þessar aðferðir sem Jón Trausti talar um hafi áður verið not­aðar hér á landi sem og ann­ars staðar í heim­inum en hún bendir á að þetta virð­ist ekki hafa virkað í þetta skiptið hjá Sigmundi.

Jón Trausti vísar þá til lög­banns sýslu­manns á Stund­ina og segir „það er bara ár síðan við feng­um yf­ir­völd inn á rit­stjórn­ar­skrif­stof­una hjá okk­ur,“ seg­ir hann. „Þannig að nú þegar við erum ári síðar að fjalla um erfið mál í stjórn­mál­um, þá kall­ar stjórn­mála­maður bein­lín­is eft­ir því að yf­ir­völd fari í okk­ur. Það er auð­vitað óþægi­legt og svona hálf­part­inn of­beldis­kennt.“

„Ég vona að fólk greini sem mest þessi við­brögð og sjái að þarna er ákveðin taktík sem er skað­leg,“ segir Jón Trausti að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár