Nánast allir sáttir með störf Guðna Th.

97 pró­sent lands­manna sem taka afstöðu eru sáttir við störf Guðna Th. Jóhann­es­sonar, for­seta Íslands. Þetta er nið­ur­staða skoð­ana­könn­unar sem Stöð 2 og Frétta­blaðið létu fram­kvæma og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Sú lita óánægja sem mælist með störf for­set­ans mælist helst í Suð­ur­kjör­dæmi og hjá kjós­endum Flokks fólks­ins. Í báðum til­fellum eru þó ein­ungis um fimm pró­sent aðspurðra ósáttir við störf Guðna sem for­seta Íslands.

Guðni Th. tók við emb­ætti for­seta Íslands 1. ágúst síð­ast­lið­inn. Hann var kjör­inn for­seti með 39 pró­sent greiddra atkvæða. Í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga hafði fylgi hans mælst mun hærra, og mæld­ist hann meðal ann­ars með tæp­lega 70 pró­sent fylgi í þremur könn­unum í röð.

Hann hefur verið mikið í sviðs­ljós­inu að und­an­förnu í kjöl­far þess að erf­ið­lega hefur gengið að mynda rík­is­stjórn. Alls hafa for­svars­menn þriggja stjórn­mála­flokka fengið stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð og reynt að mynda nýja rík­is­stjórn, án árang­urs. Sem stendur er eng­inn með umboðið en búist er við að for­set­inn muni grípa til ein­hverra aðgerða í næstu viku og færa nýjum aðila umboð til að mynda stjórn.

Hér er hægt að lesa tíu stað­reyndir um Guðna Th.sem Kjarninn tók saman í til­efni þess að hann tók við emb­ætti for­seta í sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár