Sigurður Ingi staðfestur sem forsætisráðherra - Ekki sátt um aðra ráðherraskipan Framsóknar

Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, stað­festi rétt í þessu að Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður flokks­ins, verði næsti for­sæt­is­ráð­herra. Hann sagði einnig lík­legt að kosið yrði í haust. Hösk­uldur hélt að Sigurður Ingi hefði þegar rætt við fjöl­miðla­menn og til­kynnt um þetta. Það hafði hann ekki gert. Hösk­uldur sagði einnig að hann hefði viljað fá skýr­ari svör frá Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni flokks­ins og frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, um hvort hann ætli að sitja áfram á þingi. Þá sagði hann einnig frá því að Lilja Alfreðs­dóttir, sér­fræð­ingur í Seðla­bank­anum, fyrrum verk­efna­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyti Sig­mundar Davíðs og dóttir Alfreðs Þor­steins­sonar, yrði verk­efna­stjóri í ráðu­neyt­inu aftur.

Sig­mundur Davíð ræddi einnig stutt­lega við frétta­menn og sagði að næsti for­sæt­is­ráð­herra væri mjög traustur og góður maður og óskaði Íslend­ingum til ham­ingju með hann.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans stóð til að Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks, yrði næsti sjáv­ar­út­vegs- og lands­bún­að­ar­ráð­herra áður en að þing­flokks­fundur Fram­sókn­ar­flokks hófst. Ekki var hins vegar ein­ing um það innan þing­flokks­ins og þótti sumum þing­mönnum flokks­ins þeir eiga frekara til­kall til emb­ætt­is­ins en hann. Heim­ild­ar­menn Kjarnans nefna þar sér­stak­lega Höskuld Þór­halls­son, úr stærsta kjör­dæmi flokks­ins, og Vigdísi Hauks­dóttur, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, sem áður hefur verið gengið fram­hjá. Ekki náð­ist sátt um hver yrði næsti sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, eða aðra ráð­herra­skipan utan þess að Sigurður Ingi verði for­sæt­is­ráð­herra, og var þeirri vinnu frestað þangað til á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár