Þingflokksformaður Framsóknar snýr aftur eftir veikindaleyfi

Þórunn Egils­dóttir þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins snýr aftur til starfa á Alþingi í dag eftir að hafa verið í veik­inda­leyfi vegna brjóstakrabba­meins síðan í mars í fyrra. Hún seg­ist full þakk­lætis fyrir góðan árangur í þeirri glímu.

Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Þórunn Egils­dóttir, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þórunn Egils­dóttir, þing­maður og þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, snýr aftur til starfa á Alþingi í dag eftir að hafa verið í veik­inda­leyfi síðan í mars í fyrra. Þá greind­ist hún með brjóstakrabba­mein og þurfti að fara í harða með­ferð til að vinna bug á mein­inu.

„Liðið ár hefur verið bæði lær­dóms­ríkt og krefj­andi. Full þakk­lætis fyrir góðan árangur horfi ég bjart­sýn og hress til fram­tíð­ar­innar,“ segir Þórunn í færslu sem birt var á Facebook-síðu Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í gær.

Þar birti Þórunn mynd af sér ásamt Þórarni Inga Pét­urs­syni, vara­þing­manni flokks­ins í kjör­dæm­inu, sem tók þing­sæti Þórunnar í veik­inda­leyf­inu. Hún þakkar honum fyrir að stíga inn með stuttum fyr­ir­vara og leysa sig af „með miklum sóma.“

Þórunn er þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og hefur verið í því emb­ætti allt frá 2016, en Willum Þór Þórsson hefur leyst hana af frá því að hún fór í leyfi.

Hún hefur setið á þingi frá árinu 2013 og á sæti í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, alls­herjar- og mennta­mála­nefnd og kjör­bréfa­nefnd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár