Skýrsla um umfang skattaskjólseigna bíður framlagningar á Alþingi

Sér­stakur starfs­hópur sem fjár­mála­ráð­herra skip­aði, og átti að leggja mat á umfang fjár­magnstil­færslna og eigna­um­sýslu á aflands­svæðum, hefur lokið störfum og skil­aði af sér skýrslu í byrjun októ­ber. Skýrslan var kynnt í ráðu­neyt­inu í byrjun októ­ber, en var ekki kynnt fyrir Alþingi fyrir kosn­ingar.

Samkvæmt svari frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans um nið­ur­stöður starfs­hóps­ins er stefnt að fram­lagn­ingu og opin­berri kynn­ingu skýrsl­unnar þegar nýtt þing kemur saman.

Sigurður Ing­ólfs­son hag­fræð­ingur var for­maður starfs­hóps­ins, sem starf­aði frá því í vor. Hópurinn átti að meta umfang á aflands­svæðum og leggja mat á umfang eigna í skatta­skjólum. Þá átti hóp­ur­inn að meta mögu­legt tekju­tap hins opin­bera af umsvifum af þessu tagi.

Meðal ann­ars fékk hóp­ur­inn banda­ríska hag­fræð­ing­inn dr. James S. Henry til lands­ins til að funda með hópnum. Hópurinn var skip­aður í vor, og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra greindi frá því í byrjun sum­ars að hann bindi vonir við að hóp­ur­inn lyki störfum fyrir lok sum­ars og að hann myndi í fram­hald­inu kynna nið­ur­stöð­urnar í þing­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár