Uppgangur með blikkandi viðvörunarljós

Níutíu og fimm pró­sent útflutn­ings­tekna Fær­ey­inga koma frá fiski og fiskaf­urðum. Fyrir utan síld og mak­ríl er lax­inn það sem mestu skiptir í þessu sam­hengi. Í þess­ari ein­hæfni felst mikil áhætta.

Það er mik­ill upp­gangur í Færeyjum. Fiskverð er hátt og þjóð­ar­fram­leiðsla á mann hærri en í Danmörku. Lands­menn eru orðnir fleiri en fimm­tíu þús­und og á síð­asta ári fóru á fjórða hund­rað þús­und manns um flug­völl­inn í Vogum, fleiri en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir þetta eru ákveðnar blikur á lofti hjá eyja­skeggj­unum í Atl­ants­hafi.

Fær­ey­ingar hafa bæði kynnst vel­gengni og erf­ið­leikum. Á tíunda ára­tug síð­ustu aldar áttu Fær­ey­ingar i miklum efna­hags­erf­ið­leikum. Aflasam­dráttur vegna minnk­andi kvóta, ásamt offjár­fest­ingu, olli því að rekstur fjöl­margra fyr­ir­tækja komst í þrot og við það missti fjöldi fólks vinn­una, skatt­tekjur dróg­ust saman. Erlendar skuldir voru gríð­ar­legar, íbú­arnir höfðu lifað um efni fram. Færeyski þjóð­ar­bú­skap­ur­inn var skyndi­lega á von­ar­völ. Margir sáu enga fram­tíð á eyj­unum og fluttu úr landi, ekki síst ungt fólk.

Færeyska lands­stjórnin neydd­ist til að leita aðstoðar Dana. Danir brugð­ust vel við en settu ströng skil­yrði fyrir lán­veit­ingum sínum. Fær­ey­ingum sveið sárt að verða að beygja sig undir skil­yrði Dana en áttu ekki ann­arra kosta völ.

Síðan þetta var hefur margt breyst. Núna er atvinnu­leysi lítið sem ekk­ert, útflutn­ingur á laxi hefur stór­auk­ist, nam jafn­gildi 70 millj­arða íslenskra króna í fyrra og afgangur á fjár­lögum þessa árs áætl­aður 401 milljón (6,6 millj­arðar íslenskir). Þetta hljómar óneit­an­lega vel.

Hagfræðingar hrukka ennið

Þótt almenn­ingur í Færeyjum sé ánægður með upp­gang­inn og brosi breitt eru hag­fræð­ing­arnir ekki jafn brosmildir. Það gildir jafnt um heima­menn í Færeyjum og hag­fræð­inga Danska Seðla­bank­ans. Lars Rhode er for­maður stjórnar Seðla­bank­ans, hann er jafn­framt for­maður sér­stakrar áhættu­mats­nefndar (Det System­iske Risikoråd) en nefndin var sett á lagg­irnar fyrir nokkrum árum og er ætlað að hafa auga með fjár­mála­mark­aðnum og aðvara stjórn­mála­menn­ina ef, og þegar, bank­arnir sýna ekki nægi­lega aðgæslu varð­andi útlán og taka of mikla áhættu. Á síð­asta ári hafði nefndin uppi aðvör­un­ar­orð vegna fær­eysku bank­anna. Fyrir skömmu lagði ráðið til við danska atvinnu­mála­ráð­herr­ann að kröfur um eig­in­fjár­auka fær­eysku bank­anna yrðu auknar í þrjú pró­sent. Sam­bæri­leg tala danskra banka er hálft pró­sent. Ef ráð­herr­ann fylgir þessum ábend­ingum þýðir það að mögu­leikar fær­eyskra banka til útlána tak­markast nokkuð og það dregur úr spennu í hag­kerf­inu. Danski Seðla­bank­inn var­aði síð­ast­liðið haust við ofþenslu í fær­eysku efna­hags­lífi. Bankinn benti á að líkt og áður hefði gerst í upp­sveiflum hefði opin­beri geir­inn ekki staðið á brems­unni og það hefði aukið neysl­una. „Þessi mikla neysla er ekki til þess fallið að skapa festu í efna­hags­líf­inu, þetta er end­ur­tekn­ing þess sem áður hefur gerst“. Það er með öðrum orðum álit Danska Seðla­bank­ans að fær­eyskir stjórn­mála­menn hafi lítt eða ekki lært af reynsl­unni.

Sveitarfélögin eyða alltof miklu

Formaður fær­eyska efna­hags­ráðs­ins sagði í við­tali við danskt dag­blað, fyrir nokkrum dögum að fær­eysk sveit­ar­fé­lög eyði allt of miklu fé til margs konar fram­kvæmda. Það spenni upp launin í bygg­inga­iðn­að­inum og víðar „það sé bensín á eld­inn“. Í Færeyjum eru 30 sveit­ar­fé­lög sem hafa mjög víð­tæka sjálfs­stjórn á mörgum sviðum. „Það er engin leið að mið­stýra fjár­málum sveit­ar­fé­lag­anna“ sagði áður­nefndur for­maður. „Í dag eru þau alltof mörg og þar reyna allir að ota sínum tota.“

Danski Seðla­bank­inn og fær­eyska efna­hags­ráðið eru sam­mála um að æski­legt væri að land­stjórnin myndi hægja á eða fresta fram­kvæmdum. Það hefði umtals­verð áhrif og drægi úr þensl­unni.

Allt veltur á fiskinum, Rússum og Bandaríkjamönnum

Níutíu og fimm pró­sent útflutn­ings­tekna Fær­ey­inga koma frá fiski og fiskaf­urðum. Fyrir utan síld og mak­ríl er lax­inn það sem mestu skiptir í þessu sam­hengi. Í þess­ari ein­hæfni felst mikil áhætta. Ekki bætir úr skák að meira en helm­ingur alls útflutn­ings fer til tveggja landa, Rúss­lands og Banda­ríkj­anna. Rússar kaupa næstum þriðj­ung alls útflutn­ings eyja­skeggja og Banda­ríkin um það bil fimmt­ung, einkum lax. Færeyjar eru und­an­skildar þeim við­skipta­þving­unum sem Rússar beita gegn Evr­ópu­sam­band­inu. Og hvað varðar skyndi­legan áhuga Banda­ríkja­manna á fær­eyskum laxi teng­ist hann því að sjúk­dómar hafa herjað á laxa­stofna í Chile. Þeir stofnar eru hægt og rólega að ná sér á strik og þá er ekki víst að áhugi Banda­ríkja­manna á fær­eyska lax­inum verði jafn­mik­ill og verið hefur um skeið. Fær­eyskir laxa­stofnar geta líka sýkst. Það eru sem sé of mörg egg í of fáum körfum.

Þeim gömlu fjölgar

Ald­urs­sam­setn­ing fær­eysku þjóð­ar­innar mun breyt­ast veru­lega á næstu ára­tugum. Nú eru um það bil 6 þús­und Fær­ey­ingar eldri en sjö­tugir. Eftir fjöru­tíu ár verður þessi tala 11 þús­und. Fólki á vinnu­aldri, frá 16 ára til 66 ára mun jafn­framt fækka.

Þótt nú um stundir gangi allt vel í Færeyjum er það ekki að ástæðu­lausu að hag­fræð­ing­arnir hrukka ennið. Upp­gang­ur­inn í efna­hags­líf­inu getur fengið skjótan endi, útflutn­ings­tekj­urnar hvíla á alltof fáum stoðum og loks þýðir breytt ald­urs­sam­setn­ing færri vinn­andi hendur og fleiri eldri borg­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár