Kíkja daglega á jafnaðarmannaáttavitann

„Við munum stýra eftir jafn­að­ar­manna­átta­vit­anum,“ sagði Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur þegar hún kynnti nýja rík­is­stjórn lands­ins. Tuttugu ráð­herrar sitja í stjórn­inni, níu þeirra hafa áður verið ráð­herrar.

Danska ríkisstjórnin með Mette Frederiksen í fararbroddi.
Danska rík­is­stjórnin með Mette Frederik­sen í far­ar­broddi. Mynd: EPA

Þriggja vikna stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum í Danmörku lauk síð­ast­liðið mið­viku­dags­kvöld og stjórn­ar­skipti fóru fram dag­inn eftir, 27. júní. Jafn­að­ar­menn fengu 48 þing­sæti í kosn­ing­unum 5. júní en sam­an­lagt fengu mið- og vinstri­flokk­arnir, rauða blokkin svo­nefnda, 91 þing­sæti en 179 þing­menn eiga sæti á danska þing­inu, Fol­ket­inget. Löng hefð er fyrir minni­hluta­stjórnum í Danmörku en tæpir fjórir ára­tugir eru síðan Jafn­að­ar­menn sátu einir í stjórn.

Mette Frederik­sen leið­togi jafn­að­ar­manna lýsti því yfir þegar úrslit kosn­ing­anna lágu fyrir að hún myndi vilja reyna myndun minni­hluta­stjórnar, með stuðn­ingi flokka í rauðu blokk­inni, Sós­íal­íska þjóð­ar­flokks­ins, Radikale Venstre og Ein­ing­ar­list­ans. Viðræður þess­ara flokka hófust strax að loknum kosn­ingum og hafa staðið linnu­laust síðan. Frá upp­hafi var ljóst að þótt flokk­arnir væru sam­mála um margt voru ágrein­ings­efnin líka mörg. Að lokum tókst þó flokk­unum fjórum að ná saman og ljóst að stjórn undir for­ystu Mette Frederik­sen yrði að veru­leika.

Þegar Mette Frederik­sen, Morten Østergaard for­maður Radikale Venstre, Pia Olsen Dyhr for­maður Sós­íal­íska þjóð­ar­flokks­ins og Pernille Skipper tals­maður Ein­ing­ar­list­ans (sem hefur ekki for­mann) kynntu sam­komu­lagið lögðu þau fram 18 síðna plagg, eins­konar stefnu­yf­ir­lýs­ingu „Ret­fær­dig retn­ing for Danmark“. Þar er gerð grein fyrir þeim mark­miðum sem flokk­arnir vilja leggja áherslu á, en hvernig þessum mark­miðum skuli náð er ekki nákvæm­lega útfært.

Eftirlaunaréttur, málefni innflytjenda og útlendinga, umhverfismál

Í upp­hafi kosn­inga­bar­átt­unnar lögðu jafn­að­ar­menn mikla áherslu á breyt­ingar á eft­ir­launa­aldri. Rétt vinnu­lú­inna, þeirra sem vinna erfið lík­am­leg störf til að fara fyrr en aðrir á eft­ir­laun. Um þetta var mik­ill ágrein­ingur meðal full­trúa flokk­anna og á end­anum var nán­ast ekk­ert um þetta fjallað í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni. Mette Frederik­sen sagði í við­tali við danska sjón­varpið, DR, að þetta væri for­gangs­mál hjá sér og hún teldi full­víst að fyrir þessum breyt­ingum væri meiri­hluti á þing­inu.

Annað sem hart var tek­ist á um voru mál­efni flótta­fólks og hæl­is­leit­enda. Jafn­að­ar­menn höfðu tekið upp harða og óvægna stefnu, líkt og Danski þjóða­flokk­ur­inn hefur fylgt um ára­bil, sem sé að flótta­fólki og hæl­is­leit­endum skyldi, und­an­tekn­inga­lítið, vísað úr landi. Þetta gengur þvert á stefnu Radikale Venstre og Ein­ing­ar­list­ans og á end­anum urðu jafn­að­ar­menn að gefa veru­lega eftir og sem dæmi má nefna að nú getur flótta­fólk sem verið hefur í vinnu í Danmörku í tvö ár verið þar áfram, meðan við­kom­andi sinnir sama starfi hjá sama fyr­ir­tæki eða í hlið­stæðu starfi hjá öðru fyr­ir­tæki. Þetta er kúvend­ing. Í umræðu­þætt­inum „Debatten“ í danska sjón­varp­inu sagði tals­maður jafn­að­ar­manna að þetta ákvæði hefði áður verið til staðar þannig að þetta væri ekki kúvend­ing, fremur áherslu­breyt­ing. Talsmenn Ein­ing­ar­list­ans og Radikale Venstre sögðu aftur á móti að þeim hefði tek­ist að fá jafn­að­ar­menn til að breyta um kúrs.

Hætt hefur verið við ákvarð­anir fyrri rík­is­stjórnar um að gera smá­eyj­una Lindholm (7 hekt­arar) við suð­ur­odda Sjálands að eins­konar bið­stöð þar sem ein­stak­lingum sem hefði verið vísað úr landi yrði gert að dvelj­ast uns þeir yfir­gæfu Danmörku. Þessar fyr­ir­ætl­anir mættu mik­illi and­stöðu og eru nú fyrir bí.

Í flótta­manna­búð­unum Sjæls­mark á Norður-Sjálandi búa útlend­ingar sem hefur verið synjað um land­vist­ar­leyfi í Danmörku og bíða þess að verða sendir úr landi, en það getur tekið tíma. Í þessum búðum búa 90 börn og nýlega kom það fram í dönskum fjöl­miðlum að íbú­arnir fá ekki sjálfir að elda mat, heldur borða í mötu­neyti á staðnum. Þetta hefur verið harð­lega gagn­rýnt en Inger Støjberg ráð­herra inn­flytj­enda­mála í stjórn Lars Løkke Rasmus­sen blés á slíka gagn­rýni, svona væru regl­urnar. Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu stjórnar jafn­að­ar­manna segir að finna skuli við­un­andi lausn þannig að engin börn, eða barna­fjöl­skyldur búi á Sjæls­mark.

Þriðja atriðið sem sér­stök áhersla er lögð á í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni, er umhverfis- og lofts­lags­mál. Þar er að finna mun háleit­ari mark­mið en jafn­að­ar­menn höfðu áður sett sér, til dæmis er ætl­unin að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 70 pró­sent fram til árs­ins 2030, miðað við árið 1990. Þetta var bar­áttu­mál flokk­anna þriggja sem styðja minni­hluta­stjórn Mette Frederik­sen og stjórn­ar­flokk­ur­inn hefur nú beygt sig undir en jafn­að­ar­menn vildu miða við 60% minnkun. Í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni er lítið sem ekk­ert fjallað um hvernig skuli fjár­magna ýmsar fyr­ir­ætl­anir stjórn­ar­innar og stuðn­ings­flokk­anna og það hafa stjórn­ar­and­staðan gagn­rýnt. Lars Løkke Rasmus­sen fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra kallar stefnu­yf­ir­lýs­ing­una óska­lista.

20 ráðherrar, meðalaldurinn 42 ár

Mette Frederik­sen, sem er 41 árs og tveggja barna móðir, er yngsti for­sæt­is­ráð­herra í sögu Dan­merkur og ein­ungis ein kona hefur áður gegnt emb­ætt­inu, Helle Thorning-Schmidt á árunum 2011 til 2015. For­sæt­is­ráð­herr­ann er ekki nýgræð­ingur í póli­tík, 15 ára varð hún félagi í lands­sam­tökum ungra jafn­að­ar­manna, hún hefur setið á þingi frá árinu 2001 og verið for­maður flokks jafn­að­ar­manna frá árinu 2015. Hún er fædd og upp­alin í Álaborg, með háskóla­próf í stjórnun og sam­fé­lags­fræði og meist­ara­próf í mál­efnum Afríku. Hún gegndi emb­ætti atvinnu­mála­ráð­herra 2011 til 2014 og dóms­mála­ráð­herra 2014 til 2015. Per Frederik­sen, eldri bróðir Mette, sagði í við­tali við danska sjón­varpið að hún væri þrjósk og fylgin sér en jafn­framt rétt­sýn. Hún ætti auð­velt með að umgang­ast fólk og hann hefði alltaf vitað að hún ætti eftir að standa sig vel „þótt það sé kannski óraun­veru­legt að hún skuli vera orðin for­sæt­is­ráð­herra.“

Í rík­is­stjórn Mette Frederik­sen sitja 20 ráð­herrar, 7 konur og 13 karlar, með­al­ald­ur­inn er 42 ár. 9 úr þessum hópi hafa áður gegnt ráð­herra­emb­ætti. Nánustu sam­starfs­menn for­sæt­is­ráð­herr­ans eru Nicolai Wammen fjár­mála­ráð­herra, Jeppe Kofod utan­rík­is­ráð­herra og Nick Hækkerup dóms­mála­ráð­herra. Þessir þrír mynda, auk for­sæt­is­ráð­herr­ans, eins­konar ráð­herra­nefnd (koordinationsudvalg), sem hitt­ist að jafn­aði einu sinni í viku og fjallar um frum­vörp og ýmis stærri mál, áður en þau koma til kasta rík­is­stjórn­ar­innar allrar. Þess má geta að einn úr ráð­herra­hópnum, Mogens Jensen ráð­herra sjáv­ar­út­vegs, mat­væla- og jafn­rétt­is­mála (eins og það er orðað á heima­síðu flokks­ins) er for­maður Norræna félags­ins í Danmörku og verður nú sam­starfs­ráð­herra Norð­ur­land­anna fyrir hönd Dan­merkur.

Í lokin má geta þess að Mette Frederik­sen hefur til­kynnt að Margrethe Vestager, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­maður Radikale Venstre, sitji áfram í fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins fyrir hönd Dan­merkur en fimm ára tíma­bili hennar í fram­kvæmda­stjórn­inni hefði ann­ars lokið á þessu ári. Danskir stjórn­mála­skýrendur höfðu velt því fyrir sér hvort Mette Frederik­sen myndi velja ein­hvern úr sínum flokki, Jafn­að­ar­manna­flokknum til að taka við þessu mik­il­væga starfi innan ESB. Margrethe Vestager hefur verið nefnd sem hugs­an­legur næsti for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar­innar en í þeim efnum er allt óljóst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár