Framteljendur til skatts aldrei verið fleiri

Fram­telj­end­ur á skatt­grunn­skrá hafa aldrei verið fleiri en á grunn­skrá voru nú voru alls 297.674. Það eru 10.946 fleiri fram­telj­endur en fyr­ir ári sem er fjölg­un um 3,8 pró­sent. Alls skil­uðu 99,5 pró­sent fram­telj­enda raf­rænu skatt­fram­tali.

Fram­telj­end­ur á skatt­grunn­skrá hafa aldrei verið fleiri en á grunn­skrá voru nú voru alls 297.674. Það eru 10.946 fleiri fram­telj­endur en fyr­ir ári sem er fjölg­un um 3,8 pró­sent. Fram­telj­end­um á grunn­skrá hef­ur ekki fjölgað jafn­mikið síðan árið 2007 en þá fjölg­aði um 10.855.

[links]Skatt­ar 17.973 ein­stak­linga voru áætl­aðir en það er um 6,04% af heild­ar­fjölda. Nokk­ur hluti áætl­ana skýrist af fram­töl­um sem rík­is­skatt­stjóri vinn­ur fyr­ir fram­telj­end­ur en slík fram­töl hafa sömu rétt­ar­á­hrif og þegar skatt­stofn­ar eru áætl­aðir.

Á morg­un munu inn­eign­ir verða lagðar inn á banka­reikn­inga þeirra fram­telj­enda sem eiga inni hjá rík­is­sjóði eft­ir álagn­ingu. Þeir fram­telj­end­ur sem ekki hafa banka­reikn­ing geta vitjað inn­eigna hjá inn­heimtu­mönn­um rík­is­sjóðs, í Reykja­vík toll­stjóra.

Tekju­skattur og útsvar sveit­ar­fé­laga höfðu að mestu verið inn­heimt í stað­greiðslu. Álagning er end­an­legt upp­gjör skatta, auk þess sem lagt er á útvarps­gjald, gjald í Fram­kvæmda­sjóð aldr­aða, slysa­trygg­ing­ar­gjald vegna heim­il­is­starfa, og trygg­ing­ar­gjalds ein­stak­linga í eigin rekstri. Barna­bætur og vaxta­bætur eru þar að auki reikn­aðar við álagn­ingu.

Hefðbund­in papp­írs­fram­töl heyra brátt sög­unni til en nú skil­uðu 99,5 pró­sent fram­telj­enda ra­f­rænu skatt­fram­tali. Framtöl eru að mestu leyti unnin fyrir fram af rík­is­skatt­stjóra. Fram­tals­gerðin er að mestu leyti fólin í yfir­lestri og stað­fest­ingu upp­lýs­inga. Þannig hafa betri skil gagna og aðstoð við fram­telj­endur fækkað villum og ein­faldað fram­tals­gerð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár