Afstaða lýsir yfir vantrausti á Fangelsismálastofnun og dómsmálaráðherra

Afstaða gagn­rýnir þær skorður sem settar hafa verið á heim­sóknir nán­ustu aðstand­enda fanga vegna COVID-19 sem félagið segir hafa áhrif á geð­heilsu fanga. Fang­els­is­mála­stjóri segir for­gangs­mál að tryggja órof­inn rekstur fang­elsa og skilur óánægju fanga.

Fangar hafa ekki fengið að hitta aðstandendur sína síðan kórónuveiran fór að láta aftur á sér kræla í ágúst.
Fangar hafa ekki fengið að hitta aðstand­endur sína síðan kór­ónu­veiran fór að láta aftur á sér kræla í ágúst. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Afstaða, félag fanga og ann­arra áhuga­manna um bætt fang­els­is­mál og betrun, hefur lýst yfir van­trausti á Fang­els­is­mála­stofnun, Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, dóms­mála­ráð­herra, og dóms­mála­ráðu­neytið vegna við­bragða þeirra við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem Afstaða sendi út fyrr í dag.

Í yfir­lýs­ingu Afstöðu segir að félagið hafi unnið ýmis verk að beiðni Fang­els­is­mála­stofn­unar frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn færð­ist yfir landið á sama tíma og fang­els­is­yf­ir­völd hafi sett fram fyr­ir­heit í betr­un­ar­málum sem ekki var staðið við. „Þetta hefur haft í för með sér óör­yggi og van­traust í garð yfir­valda sem Afstaða mun ekki sefa,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Einangrunin hafi áhrif á geðheilsu fanga

Þar segir einnig að að þær kvaðir sem lagðar hafi verið á fang­elsi lands­ins í kjöl­far far­ald­urs­ins valdi því að fangar ein­angr­ist og það hafi haft áhrif á geð­heilsu þeirra. Þá hafi sam­skipti fanga við ást­vini verið af skornum skammti: „Einnig hafa sam­skipti við fjöl­skyldu og vini verið skorin niður þannig að jafna má við að slitin séu. Engin eðli­leg sam­skipti hafa verið á milli fanga og ást­vina eða barna frá því á vor­mán­uðum.“

Afstaða bendir á að fangar séu við­kvæmur hópur þegar kemur að geð­heilsu og félags­legri ein­angrun og því sé ekki nægj­an­lega litið til mögu­legra nei­kvæðra áhrifa á heilsu þegar kemur að aðgerðum sem gripið hefur verið til til að draga úr hættu á COVID-19 smitum.

Tillögum Afstöðu hafnað

Félagið gagn­rýnir það að til­lögum þess sem fela í sér jafna ívilnun fyrir alla fanga hafi verið hafnað. Í yfir­lýs­ing­unni er ástæða höfn­un­ar­innar sögð vera sú að fangar hefðu nú þegar „fengið nægar íviln­anir í formi einnar tölvu fyrir heilt fang­elsi þar sem hægt er að tala við fjöl­skyldu sína, gjald­frjáls sím­töl í almanna­rými þar sem allir aðrir eru að hlusta og að ein­hverjir hefðu fengið að fara fyrr á Vernd,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

„Fang­els­is­yf­ir­völd hleypa sumum út í miðri afplánun en öðrum ekki, sumum hleypa þeir út á reynslu­lausn en öðrum ekki. Allir á sama stað í kerf­inu. Sumum hentu þeir út án þess að þeir hefðu átt í nokkur hús að venda,“ segir þar enn fremur.

Í til­kynn­ing­unni er það tekið fram að sam­starf Afstöðu og Fang­els­is­mála­stofn­unar hafi verið gott og náið og Afstaða stutt aðgerðir stofn­un­ar­innar, en geri það ekki lengur. Þá hvetur félagið fanga og aðstand­endur þeirra til að hafa sam­band við Afstöðu ef við­kom­andi telja að brotið hafi verið á sér með þeim aðgerðum sem gripið hafið verið til í far­aldr­inum.

Fangelsismálastjóri segist skilja reiði fanga og aðstandenda

„Ég gerir mér grein fyrir því að heim­sókna­bann í fang­elsum er óæski­legt og við grípum bara til þess því það telst nauð­syn­legt. Við­bragðs­á­ætlun gerir ráð fyrir á neyð­ar­stigi að það sé lokað fyrir heim­sóknir í fang­elsi,“ segir Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar um yfir­lýs­ingu Afstöðu og þá stöðu sem nú er uppi. Hann segir helsta mark­mið fang­els­is­yf­ir­valda vera að koma í veg fyrir að smit ber­ist inn í fang­elsin. Hægt sé að halda uppi eðli­legri starf­semi í fang­els­unum á meðan þau eru laus við smit.

„Við lok­uðum fyrir heim­sóknir 6. mars til 4. maí, meðan veiran var í hve mestri útbreiðslu í sam­fé­lag­inu og við opn­uðum þá 4. maí fyrir heim­sóknir náinna aðstand­enda og barna. Síðan þegar veiran fór aftur að láta á sér kræla í veru­legu magni í ágúst þá stöðv­uðum við heim­sóknir,“ segir Páll um tak­mark­anir á heim­sóknum.

Flókið verkefni að reka fangelsi á tímum COVID-19

„Við gerum okkur grein fyrir að það er fólgin í þessu aukin ein­angrun og við höfum áhyggjur af þessu og við ætlum að opna fyrir heim­sóknir náinna aðstand­enda og barna þegar neyð­ar­stigi hefur verið aflýst. Vonandi verður það innan skamms,“ segir Páll og bendir á að reynt hafi verið að koma til móts við fanga í ástand­inu. Boðið sé upp á gjald­frjáls sím­töl, raf­ræna AA fundi og hug­leiðslur auk þess sem þjón­usta félags­ráð­gjafa og sál­fræð­inga sé veitt með raf­rænum hætti. Þar að auki sé enn boðið upp á vinnu, kennslu og nám innan veggja fang­elsanna eins og venja er.

Páll nefnir að komið hafi upp smit í fang­elsum í lönd­unum í kringum okkur og þá hafi þurft að ein­angra alla sem í fang­els­unum eru. „Við höfum sloppið við það hingað til en þetta er flókið verk­efni. Við höfum misst tölu­verðan fjölda starfs­manna í sótt­kví á tíma­bilum og það er mjög mik­il­vægt að við getum haldið órofnum rekstri,“ segir Páll.

Einn fangi verið smitaður af COVID-19

Þrátt fyrir að tek­ist hafi að koma í veg fyrir útbreiðslu COVID-19 innan veggja fang­elsanna hefur einum smit­uðum fanga verið sinnt. „Það hefur komið upp smit innan einu fang­elsanna. Það var ekki vegna þess að sótt­varnir brugð­ust heldur fengum við upp­lýs­ingar um það frá lög­reglu að það væri á leið­inni fangi á leið í gæslu­varð­hald sem væri smit­aður af þess­ari veiru. En vegna þess að við höfum ekki verið með fang­elsin í 100 pró­sent nýt­ingu þá höfum við aðstöðu til þess að skilja hópana að og þessi ein­stak­lingur var í gæslu­varð­haldi með COVID og ekki í neinum sam­skiptum við aðra fanga og þetta smit dreifð­ist ekki um fang­elsin. Að öðru leyti hefur ekk­ert smit komið upp í fang­els­unum.“

Um til­lög­urnar sem afstaða nefnir í yfir­lýs­ingu sinni segir Páll lítið um þær að segja annað en að þetta séu til­lögur sem þurfi laga­breyt­ingar til að ná fram að ganga. Á síð­ustu árum hafi afplánun utan fang­elsa hlotið aukið vægi og nú getu fangar verið allt að 16 mán­uði á áfanga­heim­ili seinni hluta afplán­unar og allt að 12 mán­uði undir raf­rænu eft­ir­liti, með ökkla­band, á sínu eigin heim­ili. „Hvort það sé hægt að rýmka það frekar og hvort það sé vilji til þess er bara eitt­hvað sem þarf að skoða,“ segir Páll. Nú sé helsta for­gangs­málið að tryggja órof­inn rekstur fang­elsa og „halda líf­inu innan veggja fang­elsanna í eins eðli­legum skorðum og hægt er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár