Þingveturinn framundan: „Hræddur um að það verði ekki farið í stórsókn í neinum málaflokki“

Nýtt þing hefst þriðju­dag­inn 11. sept­em­ber. Kjarn­inn tók nokkra þing­menn úr mis­mun­andi flokkum tali um þing­vet­ur­inn framundan og áherslu­mál flokk­anna þetta árið. Í þetta skiptið var það Bergþór Ólason vara­þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins.

Nýtt þing hefst fljót­­­lega, nánar til­­­­­tekið þriðju­dag­inn 11. sept­­­em­ber. Rík­­­is­­­stjórnin mun leggja fram fjár­­­lög á fyrsta fundi, sem segja má að verði í raun fyrstu fjár­­­lög þess­­­arar rík­­­is­­­stjórnar þar sem vænt­an­­­lega má sjá stefn­u­­­mótun hennar þar sem fjár­­­lög síð­­­asta árs voru lögð fram sér­­­stak­­­lega seint vegna rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­slit­anna og kosn­­­inga.

[links]Kjarn­inn tók nokkra þing­­­menn úr mis­­­mun­andi flokkum tali um þing­vet­­­ur­inn framundan og áherslu­­­mál flokk­anna þetta árið. Í þetta skiptið var það Bergþór Ólason vara­for­maður þing­flokks Mið­flokks­ins.

Hóflegt svigrúm til aukningar

„Það verður auð­vitað áhuga­vert að sjá hvernig rík­is­stjórnin leggur fram mál í fjár­lög­unum. Miðað við fjár­mála­á­ætl­un­ina ætti að vera hóf­legt svig­rúm til aukn­ingar á ýmsum sviðum. En það er hins vegar verið að kalla mjög eftir veru­legri útgjalda­aukn­ingu, til dæmis í sam­göngu­mál­unum og víðar. Ég er hræddur um að það verði ekki farið í stór­sókn í neinum mála­flokki. Í því sam­hengi verður áhuga­vert að sjá líka sam­göngu­á­ætl­un­ina sem verður vænt­an­lega lögð fram ein­hverjum dögum síðar.“

Tryggingagjaldið þurfi að lækka

Bergþór segir Mið­flokk­inn hafa miklar áhyggjur af þróun kjara­við­ræðn­anna sem framundan eru. „Ég held að lausnin í þess­ari þröngu stöðu sem nú er uppi hljóti að vera sú að stjórn­völd og aðilar vinnu­mark­að­ar­ins setj­ist niður og formi lausnir þar sem ríkið leggur sitt af mörkum, til að mynda með breyt­ingum í skatta­málum. Við sjáum til dæmis að trygg­inga­gjaldið hefur ekki verið lækkað sem neinu nemur þrátt fyrir stór­breyttar aðstæður í atvinnu­líf­inu árum saman. Mér reikn­ast til að gjald­takan hafi verið 19 millj­arðar árið 2018 umfram það sem hún hefði verið hefði skatt­stofn­inn verið sá sami og fyrir hrun. Ef menn færa slíkt í námunda við það sem það var áður þá skap­ast þar tals­vert svig­rúm fyrir fyr­ir­tækin til að gera betur við starfs­menn sína, hækka laun,“ segir Bergþór og bætir því við að ýmis­legt annað þurfi auð­vitað líka að koma til. „Að sér­eigna­sparn­að­ur­inn fái að nýt­ast áfram til nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána og margt fleira sem hið opin­bera getur komið að án þess að það kosti rík­is­sjóð endi­lega mikið.

Innviðirnir í Ísland allt

Mið­flokk­ur­inn mun að sögn Bergþórs leggja sína aðal­á­herslu á inn­viði sam­fé­lags­ins í vetur. „Vega­kerfið, inn­an­lands­flug og hafnir lands­ins svo dæmi sé tekið. Og svo auð­vitað líka hinu megin frá á heil­brigð­is­þjón­ust­una og lög­gæsl­unnar á for­sendum stefn­unnar okkar Ísland allt.“

1. desember verði frídagur

Bergþór segir að flokk­ur­inn muni end­ur­flytja mál sitt um full­veld­is­dag­inn sem frí­dag. „Við munum vænt­an­lega leggja fram frum­varp aftur um að 1. des­em­ber verði gerður að frídegi, sem verið teljum loka­hnykk við hæfi á hátíð­ar­höldum vegna 100 ára afmælis full­veld­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár