Tilkomumikil náttúruundur á sólmyrkvahátíð

Marg­menni var sam­an­komið á sól­myrkva­há­tíð fyrir framan aðal­bygg­ingu Háskóla Íslands til að sjá tunglið ganga fyrir sól­ina, enda um fátíðan atburð að ræða. Sól­myrkvagler­augu voru af skornum skammti en fólk dó ekki ráða­laust og brá filmum, rafsuðu­glerjum, geisla­diskum og nammi­bréfum fyrir augun.

Full­trúar Stjörnu­skoð­un­ar­fé­lags Sel­tjarn­ar­ness leyfðu svo áhuga­sömum að horfa á sigð sól­ar­innar í stjörnu­kíkjum og öðrum mæli­tækjum. Var ekki að sjá annað en að fólki þættu þessi nátt­úru­undur nokkuð til­komu­mikil. Sól­myrkva­há­tíðin heldur svo áfram klukkan 17 í hátíð­ar­salnum í aðal­bygg­ingu HÍ.

Anton Brink, ljós­mynd­ari Kjarnans, var á ferð­inni og fylgd­ist með gangi him­in­tungl­anna og var við­staddur þegar fyrsta skóflustungan var tekin að hofi Ása­trú­ar­fé­lags­ins í Öskju­hlíð. Mynd­irnar má sjá hér að neðan.

Ítarlega var fjallað um sól­myrk­vann í Þætti um kúl hluti á þriðju­dag­inn þegar sjón­auk­arnir og annar bún­aður var próf­aður fyrir sjálfan myrk­vann. Þá er bent á Stjörnu­fræði­vef­inn þar sem sól­myrk­vinn í morg­unn er útskýrður.

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Jóhanna Harð­ar­dóttir kjal­nes­inga­goði blót­aði guð­unum við skóflustung­una í morgun. Hilmar Örn Hilm­ars­son alls­herj­ar­goði fylgd­ist með álengdar. Mynd: Anton Brink[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Hljóm­sveit lék tón­list í Öskju­hlíð að heiðnum sið. Mynd: Anton Brink[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Skóflustungan var tekin í morgun í til­efni skól­myrk­vans. Við­staddir mundu eftir geisla­disk­unum og horfðu í gegnum þá til að sjá tunglið ganga fyrir sól­ina. Mynd: Anton Brink[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Á sól­myrkva­há­tíð­inni á flöt­inni fyrir framan Háskóla Íslands voru hund­ruð manns, ungir sem aldnir, komnir saman til að fylgj­ast með. Sumir föndr­uðu sín eigin sól­myrkvagler­augu. Mynd: Anton Brink[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Mynda­vélar sáust víða á lofti og jafn­vel þó mælt sé með að myndir af sól­inni séu teknar með sér­stökum bún­aði þá sak­aði ekki að reyna sól­myrkvagler­augun góðu. Mynd: Anton Brink[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Full­trúar frá Stjörnu­skoð­un­ar­fé­lagi Sel­tjarn­ar­ness leyfðu áhuga­sömum að skoða sól­ina og tunglið í sjón­aukum af öllum stærðum og gerðum. Mynd: Anton Brink[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Ólafur Har­alds­son þjóð­garðs­vörður leið­beindi fólki. Mynd: Anton Brink[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Stjörnu­skoð­un­ar­fé­lag Sel­tjarn­ar­ness stóð fyrir því að öll grunn­skóla­börn á land­inu fengu gef­ins sól­myrkvagler­augu og hafa frætt kennrar­ana þeirra um stjörnu­fræði á síð­ustu vikum. Félagið hafði alls­konar skrýtin búnað til að skoða sól­ina og undur hennar. Mynd: Anton Brink[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Tungið hóf að ganga fyrir sól­ina um tutt­ugu mín­útur fyrir níu í morgun. Mynd: Anton Brink[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Eftir klukkan níu hafði tunglið gengið fyrir megnið af sól­inni og við á Jörðinni tókum eftir að það rökkvaði örlítið. Mynd: Anton Brink[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Sól­myrk­vinn náði svo hámarki í Reykja­vík klukkan 9:37 í morgun. Það kom á óvart hversu björt sólin var þrátt fyrir að aðeins 2,5% hennar næði að skína á mann­fjöld­ann fyrir framan Háskóla Íslands. Mynd: Anton Brink[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár