Telur beitingu dagsekta í umgengnismálum oftast hafa skilað árangri

Fjórir ein­stak­lingar hafa þurft að greiða dag­sektir á grund­velli úrskurða sýslu­manns vegna umgengn­is­mála á árunum 2014 til 2018. 329 kröfur um beit­ingu dag­sekta sam­kvæmt heim­ild í barna­lögum til að þvinga fram umgengni hafa enn fremur verið settar fram.

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir dóms­mála­ráð­herra lítur því svo á að beit­ing dag­sekta í umgengn­is­málum skili þeim árangri í flestum til­vikum að umgengni sé komið á í sam­ræmi við úrskurð, dóm, dómsátt eða stað­festan samn­ing.

Þetta kemur fram í svari ráð­herr­ans við fyr­ir­spurn frá Höllu Gunn­ars­dóttur, vara­þing­manns Vinstri grænna, um dag­sektir í umgengn­is­málum.

Í svar­inu kemur jafn­framt fram að fjórir ein­stak­lingar hafi þurft að greiða dag­sektir á grund­velli úrskurða sýslu­manns vegna umgengn­is­mála á árunum 2014 til 2018. Þá hafi 329 kröfur um beit­ingu dag­sekta sam­kvæmt heim­ild í barna­lögum til að þvinga fram umgengni verið settar fram á þessum fjórum árum.

Dagsektir að jafnaði ekki greiddar

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru dag­sektir sem lagðar eru á með úrskurði að jafn­aði ekki greiddar. Samkvæmt emb­ætt­inu fer sýslu­maður ekki sjálf­krafa af stað með inn­heimtu dag­sekta þegar hann hefur kveðið upp úrskurð um álagn­ingu dag­sekta, en krafa um inn­heimtu þarf að koma fram frá þeim sem vill knýja fram umgengni.

Hjá sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa dag­sektir verið ákveðnar til 100 daga í senn. Í tveimur til­vikum, fram til árs­ins 2019, hafa verið greiddar 1.000.000 krónur í dag­sektir. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sýslu­mann­inum á Suð­ur­landi var úrskurðað um að for­eldri bæri að greiða dag­sektir í 100 daga eða þar til látið hefði verið af tálm­unum.

Dagsektir að hámarki 30.000 krónur á dag

Í svar­inu kemur enn fremur fram að sam­kvæmt barna­lögum hafi sýslu­maður heim­ild til að úrskurða um dag­sektir að hámarki 30.000 krónur á dag þar til látið er af tálm­unum, en að hámarki í 100 daga í senn. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sýslu­manns­emb­ættum sé í máls­með­ferð­inni kallað eftir gögnum sem veita upp­lýs­ingar um fjár­hag og félags­lega stöðu for­eldra og upp­hæð dag­sekta hagað í sam­ræmi við það að þær séu lík­legar til að við­kom­andi láti af tálm­unum. Ákvæðinu sé beitt af með­al­hófi, en forð­ast sé að hafa dag­sektir hærri en nauð­syn krefur.

Þá sé gagn­að­ila gef­inn kostur á að leggja fram gögn um fjár­hag sinn áður en upp­hæð dag­sekta sé ákveðin. Litið sé til þess hversu ein­beittur vilji sé til þess að tálma umgengni og í því sam­bandi sé litið til þess hvort áður hafi verið lagðar dag­sektir á sama aðila. Áfallnar dag­sektir falli niður þegar sýslu­maður telji að látið hafi verið af tálm­unum.

Fjórtán tilkynningar til barnaverndarnefndar

Þá kemur fram hjá ráð­herra að sam­kvæmt sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi 13 tikynn­ingar verið sendar til barna­vernd­ar­nefndar á árunum 2016 til 2018. Samkvæmt sýslu­mann­inum á Suð­ur­landi var send til­kynn­ing til barna­vernd­ar­nefndar í því máli sem kveð­inn var upp úrskurður um dag­sektir.

„Þau úrræði sem til staðar eru í barna­lögum þegar annað for­eldri kemur í veg fyrir umgengni for­eldris og barns eru í fyrsta lagi dag­sektir og í öðru lagi krafa um aðför. Í 48. gr. barna­laga, nr. 76/2003, kemur fram að umgengni við barn sam­kvæmt úrskurði, dómi, dómsátt for­eldra eða samn­ingi þeirra, stað­festum af sýslu­manni, verði þvinguð fram með dag­sektum tálmi sá sem hefur for­sjá barns hinu for­eldr­inu eða öðrum sem eiga umgengn­is­rétt við barnið að neyta hans. Samkvæmt 33. gr. a barna­laga er for­eldrum skylt að leita sátta áður en kraf­ist er úrskurðar um dag­sektir og höfðað er mál um aðför,“ segir í svar­inu.

Láti forsjárforeldri af tálmunum er tilgangi þvingunaraðgerða náð

Þá fjallar ráð­herra um athuga­semd í grein­ar­gerð við 48. grein barna­laga í frum­varpi til núgild­andi barna­laga en þar kemur meðal ann­ars fram að mik­il­vægt sé að hafa í huga að mark­mið dag­sekta og ann­arra þving­un­ar­að­gerða sé að koma umgengni sam­kvæmt lög­mætri ákvörðun á, það er að knýja fram efndir á ákvörð­un­inni.

„Láti for­sjár­for­eldri af tálm­unum sé til­gangi þving­un­ar­að­gerða náð. Dag­sekt­ar­úr­skurður sé þá ekki lengur aðfar­ar­hæfur og dag­sekt­irnar falli niður. Greiddar dag­sektir verða þó ekki end­ur­greiddar þótt látið sé af tálm­unum síðar.“

Þá segi í almennum athuga­semdum í grein­ar­gerð með frum­varpi til breyt­inga á barna­lögum er varðar umgengni­stálm­anir að leggja verði áherslu á að þegar svo háttar til að umgengn­is­úr­skurði sé ekki fram­fylgt af hálfu for­eldris sem barn býr hjá og grípa þurfi til aðgerða af hálfu yfir­valda til að koma á umgengni veg­ist á tvenns konar hags­munir. Annars vegar sé um að ræða hags­muni barns og for­eldris af því að njóta umgengn­innar og hins vegar hags­muni barns af því að fram­kvæmd umgengn­innar valdi því ekki of miklum erf­ið­leikum eða skaða.

Málin flókin og erfið

„Lög­fest­ing og fram­kvæmd þving­unar­úr­ræða verði að taka mið af þeirri hættu sem geti verið sam­fara því fyrir barn að þvinga fram umgengni með til­teknum ráðum. Skilyrði fyrir beit­ingu þving­unar sam­kvæmt ákvæðum lag­anna sé fyrst og fremst að úrskurð­ar­að­ili hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að for­eldri sem barn búi hjá tálmi umgengni. Þá kemur fram að mik­il­vægt sé að und­ir­strika að þau mál þar sem reyni á þvingun séu flókin og erfið.

Þar sé nær und­an­tekn­ing­ar­laust um að ræða djúp­stæðan eða langvar­andi ágrein­ing for­eldra sem geti átt sér ýmsar orsakir og reynst mjög erfitt að leysa. Ágrein­ingur af þessu tagi hafi alltaf áhrif á barnið sem eigi í hlut og barnið finni sig oft knúið til að taka afstöðu. Þá kemur jafn­framt fram að við­ur­lög séu nauð­syn­leg til þess að reyna að tryggja að barn fari ekki á mis við þá umgengni sem gagn­ast barn­inu best. Með við­ur­lögum sé einnig und­ir­strikað að tálmun sé brýnt brot á for­sjár­skyldum for­eldris. Hörð fram­ganga í þving­un­ar­málum eða refsi­kennd við­ur­lög geti hins vegar aukið deilu for­eldra til muna til skaða fyrir barnið. Þung við­ur­lög eða harka­legar afleið­ingar við umgengn­is­brotum geti einnig dregið úr líkum á því að for­eldri lýsi rétt­mætum áhyggjum af umgengni þegar það á við og að barn njóti nauð­syn­legrar verndar,“ segir í svar­inu.

Telja að dagsektarmál skili þeim árangri í umgengnismálum sem að er stefnt

Þá kemur fram að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ljúki miklum meiri hluta dag­sekt­ar­mála á annan hátt en með úrskurði sýslu­manns. Önnur mála­lok en úrskurður séu oft til marks um að umgengni hafi kom­ist á að nýju eða að minnsta kosti að þok­ast hafi í átt að sam­komu­lagi milli for­eldra, eftir atvikum með beit­ingu sátta­með­ferðar, eða öðrum úrræðum sem sýslu­maður getur beitt við með­ferð þess­ara mála. Dag­sekta­mál falli í sumum til­vikum niður sökum þess að máls­hefj­andi hættir að sinna þeim og megi ætla að í ein­hverjum þeirra til­vika hafi umgengni kom­ist á að nýju.

Í þeim til­vikum þar sem umgengni hefur kom­ist á að nýju, í kjöl­far þess að beiðni um dag­sektir hefur verið lögð fram, verði að mati emb­ætt­is­ins að ætla að beit­ing úrræð­is­ins hafi skilað árangri. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sýslu­mann­inum á Suð­ur­landi, með vísan til fyr­ir­liggj­andi töl­fræði hjá emb­ætt­inu, verður rekstur dag­sekt­ar­máls í yfir­gæf­andi fjölda til­fella til þess að umgengni kemst á, dag­sekt­ar­mál falla niður í kjöl­farið og ekki komi til úrskurðar nema í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum.

Þegar litið sé til þessa sé að mati emb­ætt­is­ins tví­mæla­laust hægt að draga þá ályktun að dag­sekt­ar­mál skili þeim árangri í umgengn­is­málum sem að sé stefnt. Hins vegar verði að líta til þess að í þeim und­an­tekn­ing­ar­til­fellum sem úrskurðað sé um dag­sektir í umgengn­is­málum virð­ist dag­sekt­irnar sjálfar ekki endi­lega skila til­ætl­uðum árangri. Hagur for­sjár­for­eldra geti jafn­framt skipt miklu máli, til dæmis ef for­sjár­for­eldri er eigna­laust eða efna­mikið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár