Segist ekki hafa sagt að það væri „grasserandi almenn“ spilling í lögreglunni

Rík­is­lög­reglu­stjóri segir orð hans um spill­ingu hafi verið oftúlkuð. Hann fær stuðn­ing í leið­ara Morg­un­blaðs­ins þar sem segir að lög­regla hefði ráðið „úrslitum í „bús­á­halda­bylt­ingu“ um að tryggja að múg­ur­inn bryti ekki niður lýð­ræð­is­legar stofn­anir“.

Haraldur Johanessen ríkislögreglustjóri.
Haraldur Johanes­sen rík­is­lög­reglu­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Har­ald­ur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri seg­ir um­mæli sín um spill­ingu í lög­regl­unni í við­tali við Morg­un­blaðið fyrir tæpum tveimur vikum síðan hafi meðal ann­ars byggt á því sem fram kom í skýrslu GRECO um varnir gegn spill­ingu hjá æðstu hand­höf­um fram­kvæmd­ar­valds og lög­gæslu á Íslandi. Ummælin hafi verið oftúlkuð i umræð­unni og að hann hefði ein­ungis verið að vísa til ábend­inga og við­var­ana sem sett voru fram í skýrsl­unni, auk ein­stakra mála sem komið hafa upp á und­an­förnum árum. „Orð mín um spill­ingu hafa fengið óvænt flug og verið út­færð í þá veru að ég hafi sagt að það sé grass­er­andi al­menn spill­ing inn­an lög­regl­unn­ar. Það hef ég aldrei sagt, hvorki í þessu við­tali né ann­ars staðar. Þannig að þeir sem halda þessu fram ættu að lesa þetta við­tal.“

Þetta kemur fram í við­tali við Harald í Morg­un­blað­inu í dag.

Í vik­unni lýstu átta af níu lög­reglu­stjórum lands­ins og for­manna­fundur Lands­sam­bands lög­reglu­manna yfir van­trausti á Har­ald. Þeir báru við­talið í Morg­un­blað­inu fyrir sig sem lyk­ilá­stæðu þeirrar ákvörð­unar. Í við­tal­inu sagði Haraldur meðal ann­ars að verið væri að reyna að hrekja hann úr emb­ætti með því að dreifa vís­vit­andi rang­færslum og róg­burði um hann. Þeir sem væru að gera það væru lög­reglu­menn sem teldu sig eiga harma að hefna gegn hon­um, meðal ann­ars vegna þess að hann hafi gripið inn í vegna starfs­hátta eða fram­komu þeirra eða vegna þess að þeir hafi ekki fengið stöður sem þeir sótt­ust eft­ir. Ef til starfs­loka hans kæmi myndi það kalla á enn ít­­ar­­legri um­­fjöll­un af hans hálfu um valda­bar­átt­una bak við tjöld­in.

Þá sagði Har­aldur að gagn­rýni hans á fram­göngu lög­reglu­manna ætti þátt í því sem hann kallar aðför gegn sér. Hann sagð­ist hafa bent á að spill­ing ætti ekki að líð­ast innan lög­regl­unn­ar. „Hluti af umræð­unni sem er að brjót­­ast fram núna er kannski einnig vegna þeirr­ar af­­stöðu minn­­ar. Ég hef til dæm­is bent á að það fari ekki sam­an að lög­­­reglu­­menn séu með­fram starfi sínu í póli­­tísku vaf­stri. Það fer að mínu viti ekki sam­­an.“ Umræða um bíla­­mál lög­­regl­unn­ar væri hluti af þeirri rógs­her­­ferð að óreiða sé í fjár­­­mál­um rík­­is­lög­­reglu­­stjóra.

Tekið til varna fyrir Harald í leiðaraskrifum

Það er einnig tekið til varna fyrir Harald í leið­ara Morg­un­blaðs­ins í dag, sem er í aldreif­ingu líkt og alla fimmtu­daga. Í leið­ar­anum, sem skrif­aður er annað hvort af Davíð Oddssyni eða Haraldi Johann­es­sen alnafna rík­is­lög­reglu­stjóra, að heldur ólík­legt sé að almenn­ingur viti út á hvað upp­hlaupið gegn rík­is­lög­reglu­stjóra gengur. „Jafnvel þeir sem fylgj­ast betur með helstu fréttum en aðrir og fá borgað fyrir það sjá enga glóru. Það hefur ekk­ert­komið fram í öllum þessum fréttum um að þessi emb­ætt­is­maður hafi brotið af sér. Þeir sem hafa lotið aga­við­ur­lögum af hans hendi neita því ekki að slík til­efni hafi verið fyrir hendi. Og fjarri er því að við­ur­lögin sýn­ist hafa verið úr takti við til­efnin. Einu efn­is­at­riðin sem að öðru leyti hafa verið nefnd í umræð­unni snú­ast um bún­inga og aldur og við­hald bif­reiða­flota.“

Leið­ara­höf­und­ur­inn segir síðan að „hin fámenna hug­rakka íslenska lög­regla réði úrslitum í „bús­á­halda­bylt­ingu“ um að tryggja að múg­ur­inn bryti ekki niður lýð­ræð­is­legar stofn­anir

þjóð­ar­innar. Sú hetju­dáð lifir í minn­ing­unni en jafn­framt fram­koma nokk­urra kjör­inna

full­trúa á Alþingi sem lögðu fjand­mönnum lýð­ræð­is­ins lið gegn lög­regl­unni.

Íslandi tókst á fyrstu vik­unum eftir áfallið að koma sínum málum í far­veg sem aðrar þjóðir, sem lentu í sam­kynja ham­förum, fundu ekki eða gátu ekki nýtt vegna þess að þær höfðu

afsalað sér loka­orð­inu. Og í fram­hald­inu skipti mestu að íslenskar hetjur í lög­reglu­lið­inu komu í veg fyrir að vel skipu­lögðum öflum með stuðn­ingi fjár­sterkra manna sem höfðu sumir verið helstu leik­endur í spil­inu sem felldi fjár­hags lands­ins, tæk­ist að laska lýð­veldið var­an­lega. Það er sér­stak­lega minn­is­stætt og sárt að „örygg­is­tækið RÚV“ ýtti undir sund­ur­lyndi í land­inu og hamp­aði æsingaröfl­unum. Sú stofnun hefur aldrei beðist afsök­unar á fyr­ir­lit­legri fram­göngu.“

Davíð Oddsson, annar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, var seðla­banka­stjóra á þeim fyrstu vikum sem vikið er að í leið­ar­anum, og sagðar eru hafa bjargað land­inu fyrir horn. Hann missti það starf snemma árs 2009.

Mál Haraldar til skoðunar í ráðuneytinu

Mál rík­is­lög­reglu­stjóra er nú til með­ferðar í dóms­mála­ráðu­neyt­inu og hefur Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, ráð­herra mála­flokks­ins, gefið sér nokkrar vikur til að finna lausn á því. Ein lausn væri að ráð­ast í skipu­lags­breyt­ingar innan lög­regl­unnar og færa t.d. starf­semi rík­is­lög­reglu­stjóra undir lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Enn sem komið er mun Haraldur hins vegar sitja áfram í starfi.

Í gær var svo greint frá því að Tryggvi Gunn­ars­son, Umboðs­maður Alþing­is, hefði sent bréf til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og spurt hvers vegna Har­aldur Johann­es­sen hafi ekki verið áminntur þegar hann sendi tveimur fjöl­miðla­mönnum bréf, sem höfðu fjallað um starf­semi rík­is­lög­reglu­stjóra og per­sónu Har­ald­ar, en bréf hans var skrifað á bréfs­efni rík­is­lög­reglu­stjóra.

Dóms­mála­ráðu­neyti Þór­dísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur komst að þeirri nið­ur­stöðu í lok maí að fram­ganga Har­aldar Johann­es­sen, rík­is­lög­reglu­stjóra, hefði verið ámæl­is­verð þegar hann sendi tveimur fjöl­miðla­mönnum bréf til að and­mæla umfjöllun á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár