Maðurinn orðinn jarðfræðilegur orsakavaldur

Mann­kynið hefur haft svo mikil áhrif á jörð­ina að jarð­fræð­ingar telja tíma­bært að upp­færa hug­tökin sín.

Maðurinn eftir Leonardo da Vinci
Maðurinn eftir Leonardo da Vinci

Mann­kynið hefur haft svo mikil áhrif á jörð­ina að for­senda er fyrir því að nefna nýtt jarð­sögu­legt tíma­bil eftir mann­kyn­inu. Tíma­skeið þetta mundi binda enda á Hólósen-tíma­bilið sem jarð­fræð­ingar kalla venju­lega nútím­ann og mann­lífs­tími mundi hefj­ast. Hópur vís­inda­manna hefur lagt þetta til en margra ára rann­sóknir þurfa að fara fram áður en hug­takið fær form­lega merk­ingu.

Hólósen-tíma­bilið hófst fyrir 11.700 árum við enda síð­ustu ísaldar. Hólósen er merki­legt í jarð­sög­unni því sið­menn­ing manna hófst á þessu tíma­bili. Engin önnur dýra­teg­und, sem vitað er um, hefur haft jafn mikil áhrif á umhverfi sitt, nátt­úru og híbýli en mað­ur­inn. Nýja tíma­bilið sem lagt hefur verið til að hefj­ist nú heitir á ensku „Anthropocene“ og er dregið af gríska orð­inu „ant­hropos“ sem þýðir ein­fald­lega „maður“. Í laus­legri þýð­ingu mætti kalla þetta nýja jarð­sögu­lega tíma­bil „mann­lífs­tími“.

[quote font="0" align="right"]„Við erum að verða jarð­fræði­legur orsaka­valdur í sjálfu sér.“[/quote]

„Athafnir mann­kyns­ins eru að hafa óaft­ur­kræfar og þrá­látar breyt­ingar á jörð­inni,“ segir í grein eftir alþjóð­legan hóp vís­inda­manna undir for­ystu Colin Waters í tíma­rit­inu Science. „Við erum að verða jarð­fræði­legur orsaka­valdur í sjálfu sér,“ sagði Waters í sam­tali við Reuters-frétta­stof­una.

[adspot]

Lagt er til að upp­haf mann­líf­tím­ans verði um miðja 20. öld­ina. Það er merki­legur tíma­punktur í sögu mann­kyns; lok seinni heim­styrj­ald­ar­innar, gríð­ar­legar sam­fé­lags­legar breyt­ingar og hrað­ari tækni­væð­ing en nokkru sinni hefur þekkst ein­kennir ára­tug­ina um miðja síð­ustu öld. Hópurinn undir stjórn Waters segir upp­haf kjarn­orku­ald­ar­innar, mikla aukn­ingu í námu­greftri eftir stríðið, iðnað, land­búnað og notkun mann­gerðra efna eins og streypu og plast hverf­ast um þennan tíma­punkt. Því sé lagt til að upp­hafið verði miðað við miðja 20. öld.

Steypu má finna hvar­vetna í heim­inum og raunar svo víða að hægt væri að dreifa einu kílói af allri fram­leiddri streypu á hvern fer­metra yfir­borðs jarðar. Róm­verjar fundu upp steypuna til bygg­ingar mann­virkja, löngu fyrir Krists­burð. Nú er þessi blanda vatns og stein­efna meg­in­uppi­staða í bygg­inga­gerð manns­ins.

Margra ára rann­sóknir þurfa að fara fram áður en hug­takið „mann­lífs­tími“ verður form­lega notað yfir nýtt jarð­sögu­legt tíma­bil. Waters segir þessar rann­sóknir þurfa að snú­ast að hluta til um hvenær upp­haf­s­punkt­ur­inn verði settur. Aðrir vís­inda­menn hafa lagt til árið 1610 sem upp­haf mann­lífs­tíma, og miða það við útbreiðslu nýlendu­stefnu, sjúk­dóma og versl­unar um allan heim.

Í sam­tali við Reuters segir Erle Ellis, vís­inda­maður við Maryland-háskóla í Banda­ríkj­unum, að verði mann­lífs­tími form­lega við­ur­kenndur af vís­inda­sam­fé­lag­inu muni það hafa mikil áhrif á það hvernig mann­kynið skilur veru sína á jörð­inni. Ellis er í hópi vís­inda­mann­anna sem rit­uðu grein­ina í Science. Hann vill meina að hér sé um jafn veiga­mikla hug­ar­fars­breyt­ingu að ræða og þegar pólski stærð­fræð­ing­ur­inn Kóperníkus lagði til að og sýndi fram á að jörðin snérist í kringum sól­ina, en ekki öfugt á 16. öld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár