Eldflaugaskot Norður-Kóreu eru farin að ógna Japönum

Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, for­dæmir eld­flauga­skot Norður-Kóreu. Hann segir ítrek­aðar ógn­anir Norður-Kóreu ógna heims­friðnum.

Kim Jong-un spókar sig í Pjongjang. Hann hefur haldið uppi sömu stefnu og faðir sinn síðan hann tók við sem leiðtogi árið 2011.
Kim Jong-un spókar sig í Pjongj­ang. Hann hefur haldið uppi sömu stefnu og faðir sinn síðan hann tók við sem leið­togi árið 2011. Mynd: EPA

Norður-Kórea skaut með­al­drægri eld­flaug á loft og beinti henni að strönd Japans áður en hún féll í hafið í morgun. Yfirmenn í jap­anska hernum segja að nú fari ógn Norður-Króreu gagn­vart nágranna­ríkjum sínum vax­andi.

Her­mála­yf­ir­völd í Suður-Kóreu sögðu að eld­flaug­ar­skotið hefði farið á loft um tveimur tímum eftir að svipað eld­flaug­ar­skot mistókst. Seinni eld­flaugin hafi ferð­ast 400 kíló­metra, meira en hálfa vega­lengd­ina að suð­vest­ur­strönd japönsku eyj­ar­innar Honshu. Reuters greinir meðal ann­ars frá.

Eld­flauga­skotið þykir sýna að Norður-Kóreu hefur orðið ágengt í eld­flauga­smíði sinni sem hingað til hefur þótt nokkuð léleg á alþjóð­legan mæli­kvarða. Ítrek­aðar til­raunir Norður-Kóreu með eld­flauga­skot og kjarn­orku­vopn sýni mót­þróa stjórn­valda í Pjongj­ang gegn fjölda­mörgum þving­un­ar­að­gerðum Örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna.

„Við vitum ekki hvort þetta telj­ist sem heppnað eld­flaug­ar­skot hjá Norður-Kóreu,“ er haft eftir Gen Nakatani, varn­ar­mála­ráð­herra Japans. „Norður-Kórea hefur þó sýnt getu sína með þessum með­al­drægu eld­flaugum. Ógnin við Japan vex um leið.“

Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, var einn þeirra sem gagn­rýndi eld­flauga­skotin í morgun. „Þessar ítrek­uðu ógn­anir grafa undan öryggi í heim­inum og hamla umræðum. Norður Kórea verður að upp­fylla skyldur sínar gagn­vart alþjóða­lögum, hætta að ógna með eld­flauga­skotum og hætta að storka nágrönnum sínum.“

Norður-Kórea hótar Japan, Suður-Kóreu og Banda­ríkj­unum reglu­lega með stríðs­yf­ir­lýs­ingum. Jafnvel þó ekki hafi til átaka komið síðan Kóreu­stríð­inu lauk óform­lega árið 1953 þá var aldrei gert sam­komu­lag um stríðs­lok. „Stjórnin í Norður-Kóreu verður að fara að átta sig á algeri ein­angrun sinni í heim­inum,“ lét Park Geun-hye hafa eftir sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár