Arðsemi Landsbankans langt frá markmiði

Arðsemi eig­in­fjár Lands­bank­ans var 4,1 pró­sent á fyrri hluta þessa árs sam­an­borið við 10,8 pró­sent á sama tíma­bili í fyrra. Starfs­fólki bank­ans hefur fækkað um hátt í 60 á und­an­förnum 12 mán­uðum.

Höfuðstöðvar Landsbankans eru við Austurstræti 11.
Höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans eru við Aust­ur­stræti 11. Mynd: Landsbankinn

Lands­bank­inn hagn­að­ist um tæpa 5,6 millj­arða króna á fyrri helm­ingi þessa árs, þar af hagn­að­ist bank­inn um 2,3 millj­arða á öðrum árs­fjórð­ungi. Hagnaður bank­ans dregst veru­lega saman á milli ára en á fyrri hluta árs­ins 2021 hagn­að­ist bank­inn um 14,1 millj­arð króna. Lands­bank­inn birti upp­gjör sitt fyrir fyrstu sex mán­uði árs­ins í dag.

Arðsemi eig­in­fjár á tíma­bil­inu var 4,1 pró­sent sem er tölu­vert undir 10 pró­senta arð­sem­is­mark­miði bank­ans. Í til­kynn­ingu frá bank­anum segir að þetta skýrist einkum vegna lækk­unar á gang­virði hluta­bréfa­eignar bank­ans. Þar af nam arð­semi eig­in­fjár 3,5 pró­sentum á öðrum árs­fjórð­ungi. Á sama árs­fjórð­ungi í fyrra var arð­semi eig­in­fjár 9,8 pró­sent og á fyrri hluta árs­ins 2021 nam hún 10,8 pró­sentum.

Fjórðungs aukning í þjónustutekjum

Rekstr­ar­tekjur bank­ans lækka tals­vert milli ára. Þær námu rúmum 22,8 millj­örðum á fyrri helm­ingi þessa árs sam­an­borið við tæpa 30,3 millj­arða á sama tíma­bili í fyrra. Hreinar þjón­ustu­tekjur bank­ans námu rúmum 5,4 millj­örðum króna á fyrri hluta þessa árs og juk­ust um 24 pró­sent á milli ára. Aukn­ingin skýrist fyrst og fremst af vax­andi umsvifum í eigna­stýr­ingu og mark­aðsvið­skiptum, að því er fram kemur í til­kynn­ingu. Hreinar vaxta­tekjur juk­ust sömu­leiðis. Þær námu rúmum 21,4 millj­örðum á tíma­bil­inu sem er 13 pró­senta aukn­ing á milli ára.

„Aðrar rekstr­ar­tekjur voru nei­kvæðar um 4,0 millj­arða króna en voru jákvæðar um 6,9 millj­arða króna á sama tíma­bili árið 2021. Virð­is­breyt­ingar útlána eru jákvæðar um 43 millj­ónir króna það sem af er ári sam­an­borið við jákvæðar virð­is­breyt­ingar útlána upp á 2,8 millj­arða króna á sama tíma á síð­asta ári,“ segir í til­kynn­ingu bank­ans.

Starfsfólki hefur fækkað um tæplega 60

Kostn­aður bank­ans hefur lækkað lít­il­lega frá því í fyrra. Kostn­aður vegna launa og launa­tengdra gjalda fer úr tæpum 7,5 millj­örðum króna á fyrri helm­ingi árs­ins 2021, niður í rúma 7,3 millj­arða króna. Talsvert hefur fækkað í starfs­liði bank­ans en stöðu­gildi í lok júní voru 786 sam­an­borið við 844 á sama tíma í fyrra.

Annar rekstr­ar­kostn­aður er sá sami milli ára, rúm­lega 4,5 millj­arðar. Samtals lækkar rekstr­ar­kostn­aður því lít­il­lega milli ára. Kostn­að­ar­hlut­fallið hækkar aftur á móti úr 43,7 pró­sentum á fyrri helm­ing árs­ins í fyrra í 52 pró­sent á fyrri helm­ingi árs­ins í ár. Hækkun hlut­falls­ins skýrist af lægri tekjum.

Útlán jukust um 57,9 milljarða á tímabilinu

Eignir bank­ans námu 1.728 millj­örðum króna í lok júní og hafa lækkað um 1,7 millj­arða síð­asta árið. „Útlán juk­ust aftur á móti um 57,9 millj­arða króna á fyrri helm­ing árs­ins 2022. Í lok fyrri helm­ings árs­ins 2022 voru inn­lán frá við­skipta­vinum 935 millj­arðar króna, sam­an­borið við 900 millj­arða króna í árs­lok 2021, og höfðu því auk­ist um 35 millj­arða króna,“ segir í til­kynn­ingu bank­ans.

Eigið fé bank­ans var 267,7 millj­arðar við lok júní og eig­in­fjár­hlut­fall 24,9 pró­sent. Það hefur lækkað frá lokum síð­asta árs en þá var það 26,6 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár