Lagt til að forseti megi aðeins sitja í 12 ár á Bessastöðum

Forseti Íslands má ekki sitja lengur en tvö sex ára kjör­tíma­bil að hámarki, verði frum­varps­drög um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar sem lögð hafa verið fram til kynn­ingar fram að ganga. Lagt er til að mælt verði fyrir um þing­ræði í stjórn­ar­skránni.

Lagt er til í frumvarpsdrögum að stjórnarskrárbreytingum að forseti megi einungis sitja tvö sex ára kjörtímabil að hámarki.
Lagt er til í frum­varps­drögum að stjórn­ar­skrár­breyt­ingum að for­seti megi ein­ungis sitja tvö sex ára kjör­tíma­bil að hámarki.

Forseti Íslands má ein­ungis sitja í tólf ár, tvö sex ára kjör­tíma­bil, og sá sem ætlar að bjóða sig fram til for­seta þarf að hafa til þess með­mæli frá 2,5 pró­sentum kjós­enda, sam­kvæmt drögum að frum­varpi til stjórn­ar­skrár­breyt­inga, sem lagt var fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í gær.

Ekkert hámark er í dag á þeim tíma sem for­seti má sitja í emb­ætti, kjör­tíma­bil eru fjögur ár og þeir sem vilja verða for­seti Íslands þurfa ein­ungis að safna 1.500 und­ir­skriftum frá kjós­endum til að fram­boð þeirra sé gilt.

Nokkur umræða fór fram í sam­fé­lag­inu um síð­ast­nefnda atriðið í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna um liðna helgi, enda hefur fjöldi með­mæl­enda staðið óbreyttur frá lýð­veld­is­stofnun, en þá voru 1.500 kjós­endur um 2 pró­sent þeirra sem voru á kjör­skrá.

Frum­varps­drögin lúta að breyt­ingum á þeim atriðum stjórn­ar­skrár­innar sem varða emb­ætti for­seta, rík­is­stjórn­inni og verk­efnum fram­kvæmda­valds, ásamt öðru. Þau voru samin af Skúla Magn­ús­syni hér­aðs­dóm­ara og dós­ent í sam­ráði við for­menn allra flokka sem eiga sæti á Alþingi.

Ekki verði fjallað um landsdóm í stjórnarskrá

Í drög­unum er lagt til að ákvæði um lands­dóm verði fellt úr stjórn­ar­skrá og að þingið fái heim­ild til þess að fela emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara að fara með ákæru­vald vegna ætl­aðra emb­ætt­is­brota ráð­herra. Sömu­leiðis er lagt til að almenn lög kveði á um ráð­herra­á­byrgð, en í sam­ráðs­gátt stjórn­valda er tekið fram nú sé unnið að end­ur­skoðun laga um ráð­herra­á­byrgð og laga um lands­dóm. Reikna má með að frum­vörp sem þau mál varða verði kynnt í sam­ráðs­gátt­inni í haust.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að gert sé ráð fyrir því að Alþingi taki afstöðu til þess með laga­setn­ingu hvort ástæða sé til að við­halda lands­dómi sem sér­dóm­stóli um ráð­herra­á­byrgð eða hvort málum um ráð­herra­á­byrgð verði fal­inn

Mælt sérstaklega fyrir um þingræði og það hvað þingið má gera ef forseti synjar lögum

Meg­in­mark­miðið með frum­varps­drög­unum er sagt vera að láta þennan kafla stjórn­ar­skrár­innar end­ur­spegla betur gild­andi rétt. Í sumum til­fellum er ein­fald­lega um minni­háttar orða­lags­breyt­ingar að ræða, en í öðrum er stjórn­ar­skráin sögð „þögul um mik­il­vægar gild­andi efn­is­reglur“ og þá þarf að bæta við ákvæðum.

Eitt slíkt til­felli varðar til dæmis þing­ræð­is­regl­una, en lagt er til að hún verði bundin í stjórn­ar­skrá og mælt sé fyrir um það að rík­is­stjórn eða ráð­herrar þurfi að segja af sér ef Alþingi lýsir yfir van­trausti á þá. Einnig er lagt til að að mælt verði fyrir um skyldu for­seta Íslands til þess að leita eftir áliti for­seta Alþingis og for­manna þing­flokka áður en tekin verði ákvörðun um þing­rof að til­lögu for­sæt­is­ráð­herra.

Að auki er lagt til að mælt verði sér­stak­lega fyrir um að Alþingi hafi heim­ilt til þess að fella úr gildi lög sem for­seti synjar stað­fest­ingar með því að nýta sér 26. grein stjórn­ar­skrár­innar og þá með þeim afleið­ingum að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um lögin fari ekki fram. Í grein­ar­gerð segir að deilt hafi verið um þetta frá því árið 2004, þegar Ólafur Ragnar Grímsson fyrr­ver­andi for­seti beitti ákvæð­inu í fyrsta sinn og neit­aði að stað­festa fjöl­miðla­lögin svoköll­uðu.

Einnig er lagt til að mælt verði sér­stak­lega fyrir um emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara í stjórn­ar­skrá, til þess að tryggja emb­ætt­inu sam­bæri­legt sjálf­stæði og vernd og dóms­vald­inu í land­inu.

Frestur til þess að gera athuga­semdir við frum­varps­drögin í sam­ráðs­gátt stjórn­valda rennur út 22. júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár