Styrkur þjóðfélags ekki mældur í hagvexti heldur framkomu við þá sem minna mega sín

Inn­lytj­enda­mál, mis­skipt­ing auðs og jafn réttur allra til grunn­mennt­unar og lækn­inga óháð efna­hag voru fyr­ir­ferða­mikil í fyrsta ára­móta­ávarpi Guðna Th. Jóhann­es­sonar, sjötta for­seta Íslands, sem flutt var á RÚV í dag.

Guðni Th. hóf ávarp sitt á því að fjalla stutt­lega um þann tíma sem hann hefur setið í emb­ætt­inu, en hann tók við því 1. ágúst síð­ast­lið­inn. Hann hafi upp­lifað að Íslend­ingar beri mikla virð­ingu fyrir emb­ætti for­seta Íslands en um leið megi hann ekki telja sig yfir aðra haf­inn. Öllum sé hollt að koma til dyr­anna eins og þeir eru klæddir og sagði Guðni Th. að Helgi Björns­son hafi orðað það þannig í nýlegu dæg­ur­lagi: „Vertu þú sjálfur, gerðu það sem þú vilt. Vertu þú sjálfur, eins og þú ert. Láttu það flakka, dans­aðu í vind­inum. Faðmaðu heim­inn, elsk­aðu.“

Ísland ekki lengur einsleitt samfélag

Guðni Th. sagði að sam­fé­lag okkar hafi lengi verið eins­leitt. Ekki væri langt síðan að Íslend­ingar voru nær allir í þjóð­kirkj­unni og öðrum kristnum trú­fé­lögum, hvítir á hör­und, áttu íslensku að móð­ur­máli og báru auð­sýni­lega íslenskt nafn. „Þetta er liðin tíð sem kemur ekki á ný. Fram­farir um okkar daga byggj­ast á fjöl­breytni; flæði hug­mynda og fólks um víða ver­öld. Um leið verðum við þó ætíð að tryggja og vernda grunn­gildi okkar; rétt­ar­ríki og vel­ferð­ar­sam­fé­lag þar sem mann­rétt­indi eru í hávegum höfð, jafn­rétti kynj­anna, trú­frelsi og ást­frelsi, mál­frelsi og menn­ing­ar­frelsi. Sömu­leiðis væri heilla­ráð að kynna fyrir þeim sem hér vilja setj­ast að þau þjóð­ar­ein­kenni sem hafa hjálpað okkur að kom­ast af á hinu harð­býla landi okkar: þraut­seigju og þrjósku, sam­stöðu þegar þörf krefur en sund­ur­lyndi þess á milli, og þá blöndu af aga­leysi og æðru­leysi sem kemur okkur í vand­ræði en út úr þeim aftur – og má draga saman í orð­tak­inu góða: „Þetta redd­ast.““

Mannkyninu mun aldrei farnast vel þegar fáir eiga svona mikið

For­set­inn sagði að hann hyggi að flestir Íslend­ingar séu ein­huga um að meg­in­stoðir okkar sam­fé­lags séu jafn réttur allra til grunn­mennt­unar og lækn­inga, óháð efna­hag. „Sátt virð­ist líka ríkja um nauð­syn þess að heil­brigðis- og mennta­kerfi lands­ins standi undir nafni. Sé þannig að verki staðið er minni hætta en ella á því að fólk fest­ist í fátækt og for­laga­fjötrum. Um leið eiga allir að geta spreytt sig, skarað fram úr, efn­ast, gert vel við sig og sína en goldið sann­gjarnan skerf til sam­fé­lags­þarfa. Höfum þó í huga að aukin mis­skipt­ing veldur sundr­ungu og spennu. Mannkyni mun aldrei farn­ast vel ef eitt pró­sent jarð­ar­búa á eins mik­inn auð og hin 99 pró­sentin til sam­ans. Ógn stafar af fjár­magns­skipu­lagi sem örfáir stýra og tekur ekki mið af hags­munum fjöld­ans. Þannig hafa Barack Obama Banda­ríkja­for­seti og vís­inda­mað­ur­inn Stephen Hawking nýlega kom­ist að orði og undir þessi sjón­ar­mið má taka.“

Guðni Th. sagði að styrkur ríkis og þjóð­fé­lags væri ekki met­inn eftir hag­vexti, þjóð­ar­fram­leiðslu, víg­bún­aði eða mann­fjölda. Þótt að við Íslend­ingar fögnum afrekum sam­landa okkar á sviði menn­ingar, vís­inda eða íþrótta séu þau ekki endi­lega til vitnis um kosti sam­fé­lags­ins. „Raun­veru­legur styrkur þess felst í því hversu vel er hlúð að sjúkum og öðrum sem þurfa á aðstoð að halda, fólki sem býr við fötlun eða þroska­skerð­ingu. Styrk sam­fé­lags má líka meta eftir því hvernig börnum er sinnt, hvernig búið er að öldruðum á ævi­kvöldi. Þetta eru allt saman mæli­kvarðar á lífs­gæði, mark­mið sem skipta mestu í bráð og lengd. Í sam­an­burði við mörg önnur ríki og okkar eigin for­tíð megum við vel við una. En við getum ætíð gert enn betur.“

Ný heimasíða opnuð

Í dag var ný heima­síða emb­ættis for­seta Íslands sett í loftið. Á fjár­auka­lögum 2016 kom fram að heima­síða for­seta­emb­ætt­is­ins hefði verið óbreytt í sextán ár og stefnt yrði að því að efna til útboðs um nýja slíka fari fram í haust. Áætl­aður kostn­aður var fimm millj­ónir króna. Guðni Th. sagði að það væri gaman að geta gert breyt­ingar á heima­síð­unni, sem hafi verið end­ur­hönnuð frá grunni. „Í upp­hafi var sú síða mark­verð nýj­ung, öflug frétta­veita sem varð öðrum í stjórn­kerf­inu kannski fyr­ir­mynd að ein­hverju marki. Slóðin er sú sama og fyrr, for­seti.is en nú er unnt að tengja upp­lýs­ingar þar við sam­fé­lags­miðla og færa fregnir með nútíma­legra yfir­bragði en áður. Síðar á þessu ári mun lands­mönnum jafn­framt gef­ast kostur á að heim­sækja Bessa­staði án þess að hafa bein­línis fengið um það boð. Á síð­unni nýju mun fólk geta skráð 2 sig í kynn­is­ferð um þjóð­höfð­ingja­setrið til að fræð­ast um þennan merka stað í sögu okkar og fam­tíð.“

Hægt er að lesa ára­móta­ávarp for­seta Íslands í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár