Kaupmáttur grunnatvinnuleysisbóta byrjaði að rýrna í júní

Grunnatvinnu­leys­is­bætur eru 313.729 krónur. Þær voru hækk­aðar um síð­ustu ára­mót í takti við spá um verð­bólgu. Raun­veru­leg verð­bólga hefur verið langt umfram spár. Atvinnu­leys­is­bæt­urnar hafa ekki verið hækk­aðar í takti við það.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson er félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son er félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Grunnatvinnu­leys­is­bætur voru hækk­aðar um 4,6 pró­sent um síð­ustu ára­mót í sam­ræmi við verð­lags­for­sendur fjár­laga fyrir árið 2022. Verð­bólgan hefur hins vegar verið mun meiri og í nýj­ustu útgáfu Pen­inga­mála Seðla­banka Íslands kemur fram að bank­inn geri nú ráð fyrir að hún verði 8,8 pró­sent að með­al­tali í ár.

Miðað við spá Seðla­bank­ans um verð­bólgu á árinu 2022 þyrfti því að hækka grunnatvinnu­leys­is­bætur, sem eru 313.729 krónum. á mán­uði miðað við 100 pró­sent bóta­rétt. um 4,2 pró­sent til við­bótar til að þær myndu halda verð­gildi sínu í lok yfir­stand­andi árs, eða um 13.177 krónur ofan á núver­andi bóta­fjár­hæð.

Þetta kemur fram í svari Guð­mundur Inga Guð­brands­sonar, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, málið sem svarað var skrif­lega á föstu­dag.

Kaupmáttur byrjaði að rýrna í júní

Í svar­inu segir að í verð­bólgu­spá Seðla­bank­ans sé ekki til­greind áætluð þróun verð­lags milli mán­aða á árinu og því sé ekki unnt að leggja mat á raun­rýrnun grunnatvinnu­leys­is­bóta sund­ur­liðað eftir mán­uðum. „Þegar verð­bólga innan árs­ins hefur hins vegar náð 4,6 pró­sentum byrja grunnatvinnu­leys­is­bætur að rýrna að raun­virði; með öðrum orðum hefur verð­bólgan þá unnið upp þær verð­bætur sem til­greindar eru í fjár­lögum fyrir árið 2022 sem ætlað var að mæta áætl­uðum verð­lags­hækk­unum á árinu 2022 [...] Því má ætla að kaup­máttur grunnatvinnu­leys­is­bóta hafi byrjað að rýrna að raun­virði í júní 2022.“

[adspot]Í svari ráð­herr­ans segir að ef þeim 13.177 krónum sem vanti upp á verð­bætur í árs­lok yrði jafn­skipt á síð­ustu sjö mán­uði árs­ins væri um að ræða 1.882 krónur á mán­uði.

Aðstæður á vinnumarkaði komu í veg fyrir hækkanir

Jóhann Páll spurði Guðmund Inga einnig hvers vegna grunnatvinnu­leys­is­bætur hefðu ekki verið hækk­aðar um sömu pró­sentu­tölu og bætur almanna­trygg­inga sam­hliða mót­væg­is­að­gerðum vegna verð­bólgu sem sam­þykktar voru á Alþingi 24. maí 2022? Hann spurði hann einnig hvort ráð­herr­ann teldi að fólk á grunnatvinnu­leys­is­bótum þyldi betur verð­hækk­anir en hópar sem komið var til móts við með beinum hætti með áður­nefndum lögum?

Í svörum Guð­mundar Inga segir meðal ann­ars að aðstæður á vinnu­mark­aði, þar sem skráð atvinnu­leysi hefur farið lækk­andi og eft­ir­spurn eftir starfs­fólki hafi verið mikil, hafi haft gert það að verkum að grunnatvinnu­leys­is­bætur hafi ekki verið hækk­aðar í takt við verð­bólgu. Þá sagði hann að með frum­varp­inu sem sam­þykkt var 24. maí 2022 hefði meðal ann­ars verið lagt til að greiddur yrði sér­stakur barna­bóta­auki og að hús­næð­is­bætur yrðu hækk­aðar í því skyni að draga úr áhrifum verð­bólgu á lífs­kjör við­kvæm­ustu hópa sam­fé­lags­ins. „Hvorki barna­bætur né hús­næð­is­bætur koma til frá­dráttar atvinnu­leys­is­bótum og má því ætla að fram­an­greindar aðgerðir hafi nýst ein­stak­lingum sem fá greiddar grunnatvinnu­leys­is­bætur og upp­fylla jafn­framt skil­yrði fyrir greiðslu hús­næð­is­bóta eða barna­bóta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár