Katrín segir áherslur VG í skattamálum ekki eiga að koma neinum á óvart

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs, segir að áherslur VG í skatta­málum eigi ekki að koma neinum á óvart.

„Við lofum nefni­lega ekki auknum útgjöldum í heil­brigð­is­þjón­ustu og skóla­málum (sem allir segj­ast vilja) nema við teljum að við getum aflað tekna á móti og að þeirra tekna sé aflað með rétt­látum hætti. Að sjálf­sögðu er þetta vinstrisinnuð stefna en það er nú ekki hægt að saka okkur um að hafa siglt undir fölsku flaggi í þeim efnum,“ segir Katrín í færslu á Facebook-síðu sinni í dag.

Katrín segir að ein­hverjir séu nú að „missa sig vegna umræðna um skatta­mál.“ Fjallað var um það bæði í Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu í morgun að mis­mun­andi skatta­stefnur séu eitt helsta ágrein­ings­málið í við­ræðum flokk­anna fimm sem nú eiga í form­legum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum.

„Því er rétt að benda á að Vinstri græn hafa lagt þunga áherslu á það að farið verði í kerf­is­breyt­ingar sem miða að því að auka jöfnuð og draga úr mis­skipt­ingu í sam­fé­lag­inu. Í því felst að sótt verði fram í heil­brigðis-, mennta- og vel­ferð­ar­málum sam­hliða umbótum í skatta­málum sem ann­ars vegar miða að því að fjár­magna þessa sókn og hins vegar að því að velta skatt­byrði af lág- og milli­tekju­hópum yfir á hátekju­hópa,“ skrifar Katrín.

Hún segir að til þess að hægt verði að ráð­ast í nauð­syn­legar aðgerðir í heil­brigðis- og mennta­málum og leið­rétta kjör aldr­aðra og öryrkja, þurfi rík­is­stjóður auknar tekjur. „Þessar tekjur viljum við tryggja með því að taka á skattsvikum sem var­lega eru áætluð um 80 millj­arðar á ári, með því að tryggja auknar tekjur af nýt­ingu sam­eig­in­legra auð­linda þjóð­ar­innar og kanna mögu­leika á því að skatt­leggja fjár­magnið sem þar er að finna. Þetta þýðir kerf­is­breyt­ingar í skatta­málum sem færa skatt­byrði af lág- og milli­tekju­hópum yfir á hátekju­hópa. Þannig aukum við jöfnuð og tryggjum að allir njóti þeirrar upp­sveiflu sem er í efna­hags­líf­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár