Tíu staðreyndir um íslensku bankana

Það má segja að Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, sé guðfaðir þess íslenska bankakerfis sem við búum við í dag. Neyðarlög ríkisstjórnar hans, sem kynnt voru 6. október 2008, eru grunnur þess.
Það má segja að Geir H. Haarde, fyrrum for­sæt­is­ráð­herra, sé guð­faðir þess íslenska banka­kerfis sem við búum við í dag. Neyð­ar­lög rík­is­stjórnar hans, sem kynnt voru 6. októ­ber 2008, eru grunnur þess. Mynd: Skjáskot

1 - Íslensku við­skipta­bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki voru búnir til haustið 2008 eftir hrun banka­kerf­is­ins. Inn í þá voru settar eignir úr slita­búum fall­ina for­vera þeirra og inn­lendar inn­stæður. Enn þann dag í dag, sjö og hálfu ári eftir stofnun þeirra, eru inn­stæður almenn­ings uppi­staðan í fjár­mögnun þeirra. Sam­an­lagt nema inn­stæður frá við­skipta­vinum þeirra allra 1.622 millj­örðum króna, eða rúm­lega 65 pró­sent af sam­an­lögðum skuldum bank­anna. Þegar inn­stæður Seðla­banka Íslands, sem er hluti af rík­inu, og ann­arra fjár­mála­stofn­anna, sem eru að mestu í rík­i­s­eigu, er bætt við hækkar þetta hlut­fall enn frekar.

2 - Bank­arnir þrír hafa sam­tals hagn­ast um 477,7 millj­arðar króna frá árs­lokum 2008. Mestur var sam­an­lagður hagn­aður þeirra í fyrra, þegar þeir högn­uð­ust sam­tals um tæpa 107 millj­arða króna. Frá því að þeir voru end­ur­reistir á nýrri kenni­tölu hafa bank­arnir þrír greitt 129,4 millj­arða króna í arð til eig­enda sinna. Þorri þeirrar upp­hæðar hefur runnið til íslenska rík­is­ins þar sem Lands­bank­inn, sem er í eigu þess, hefur greitt út 82,6 millj­arða króna í arð á síð­ustu árum. Ríkið hefur auk þess átt hluti í Arion banka og Íslands­banka og fengið hluta af arð­greiðslum þeirra.

3 - Um síð­ustu ára­mót voru eignir bank­anna þriggja metnar á 3.176 millj­arða króna. Þær eru nú 840 millj­örðum krónum meiri en þær voru í árs­lok 2008 og þegar arð­greiðslum sem greiddar hafa verið út úr bank­anum er bætt við er ljóst að eignir þeirra hafa auk­ist að verð­gildi um tæp­lega eitt þús­und millj­arða króna á tíma­bil­inu.

4 - Eigið fé Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka er sam­an­lagt 669 millj­arðar króna. Það var 302,5 millj­arðar króna í lok árs 2008 og hefur því rúm­lega tvö­fald­ast síðan þá, þrátt fyrir arð­greiðslur til eig­enda.

5 - Bank­arnir þrír eru alls­ráð­andi á íslenskum mark­aði. Samkvæmt mæl­ingum Gallup er Lands­bank­inn með mesta mark­aðs­hlut­deild á ein­stak­lings­mark­aði, eða 36,1 pró­sent. Íslands­banki er með 31 pró­sent en Arion banki er með um 30 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Sam­an­lagt ráða þeir því yfir rúm­lega 97 pró­sent af við­skipta­banka­mark­aðnum.

6 - Laun hafa hækkað hraðar hjá fjár­mála­fyr­ir­tækjum en öðrum geirum á Íslandi eftir hrun. Með­al­heild­ar­laun full­vinn­andi starfs­manna í geir­anum hækk­uðu um 44,2 pró­sent á árunum 2010 til 2014 á meðan að heild­ar­laun allra stétta hækk­uðu um 28,8 pró­sent á sama tíma­bili. Auk þess voru starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja með hærri laun til að byrja með og því er krónu­tölu­hækkun þeirra mun meiri. Með­al­laun þeirra hækk­uðu um 234 þús­und krónur á tíma­bil­inu á meðan að laun allra stétta hækk­uðu að með­al­tali um 124 þús­und krónur.

Æðstu stjórn­endur bank­anna eru líka afar vel laun­aðir. Hösk­uldur H. Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, var með tæpar 4,7 millj­ónir á mán­uði í fyrra í laun. Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, var með tæpar 3,7 millj­ónir króna á mán­uði. Laun hennar munu þó lækka á þessu ári vegna eign­ar­halds rík­is­ins á bank­anum, en kjör Birnu falla þá undir ákvörðun Kjara­ráðs. Þar hittir hún fyrir Steinþór Pálsson, banka­stjóra Lands­bank­ans, sem var með 1,6 millj­ónir króna að með­al­tali í laun í fyrra. Laun hans voru þó hækkuð í des­em­ber 2015 í 1.950 þús­und krónur á mán­uði. Kjör stjórn­ar­for­manna bank­anna þriggja eru heldur ekk­ert slor. Tryggvi Pálsson (for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans) fékk 767 þús­und krónur á mán­uði í fyrra, Friðrik Soph­us­son, for­maður stjórnar Íslands­banka, 750 þús­und krónur, og Monica Caneman, for­maður stjórnar Arion banka, heilar, 1,7 millj­ónir króna á mán­uði. Stjórn­ar­fundir eru að jafn­aði einu sinni í mán­uði.

7 - Í Arion banka og Íslands­banka hafa einnig verið inn­leidd svokölluð kaupauka­kerfi, sem gera bönk­unum kleift að greiða starfs­fólki sínu bónusa. Sam­an­lagðar bón­us­greiðslur sem Arion banki og Íslands­banki skuld­bundu sig til að greiða vegna kaupauka­kerfa sinna í fyrra nema 977 millj­ónum króna. Bank­arnir tveir hafa sam­an­lagt gjald­fært tæpan tvo og hálfan millj­arð króna vegna bón­us­greiðslna á þremur árum. Lands­bank­inn, sem er að mestu í eigu rík­is­ins, er ekki með árang­urstengdar greiðslur. Um 1.400 núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn bank­ans fengu hins vegar hlut í bank­anum gef­ins árið 2013 og fá greiddan arð vegna hans. Gjörn­ing­ur­inn var liður í sam­komu­lagi frá árinu 2009, um fjár­hags­upp­gjör milli gamla og nýja Lands­bank­ans. Skatta­legt verð­mæti hluta­bréf­anna nam 4,7 millj­örðum króna þegar hann var afhentur.

8 - Bank­arnir borga allir háa skatta. Þeir greiða tekju­skatt, sér­stakan fjár­sýslu­skatt á hagnað, sér­stakan fjár­sýslu­skatt á fjár­mála­fyr­ir­tæki (svo­kall­aðan banka­skatt) og sér­stakan skatt á laun starfs­manna. Auk þess greiða þeir í Trygg­inga­sjóð inn­stæðu­eig­enda og fyrir rekstur Umboðs­manns skuld­ara og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Í fyrra námu greiðslur bank­anna vegna þess­ara gjalda yfir 30 millj­örðum króna.

9 - Í dag á ríkið Lands­bank­ann nán­ast að öllu leyti, allt hlutafé í Íslands­banka og 13 pró­sent hlut í Arion banka. Ríkið er eig­andi að um 80 pró­sent af allri grunn fjár­mála­þjón­ustu lands­ins. Banka­kerfið er líka rekið á ábyrgð skatt­borgar­anna í ljós yfir­lýs­ingar rík­is­stjórnar Íslands um að allar inn­stæður í íslenskum bönkum séu tryggðar frá því októ­ber 2008. Yfir­lýs­ingin hefur ekk­ert laga­legt gildi en stjórn­völd hafa sýnt það í verki að þau muni tryggja inn­stæður reyni á það. Því er kerfið, sem er að lang­mestu leyti fjár­magnað af inn­stæðum, rekið á ábyrgð skatt­greið­enda.

10 - Allir bank­arnir á Íslandi eru bestir á Íslandi. Þ.e. þeir hafa allir hlotið alþjóð­legar við­ur­kenn­ingar hjá erlendum tima­ritum sem bestu bankar á Íslandi. Arion Banki er bestur sam­kvæmt tíma­rit­inu The Banker, Íslands­banki bestur sam­kvæmt tíma­rit­inu Euromo­ney og Lands­bank­inn bestur sam­kvæmt tíma­rit­inu Global Finance Magazine. Vert er að taka fram að sækja þarf um að taka þátt í öllum þessum verð­launum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár