Eignir bankanna þriggja hafa aukist um þúsund milljarða frá 2008

Íslensku bank­arnir hafa hagn­ast um hátt í 500 millj­arða króna frá hruni. Allir eiga þeir nú eignir sem metnar eru á meira en þús­und millj­arða króna, en 65 pró­sent af fjár­mögnun þeirra eru inn­stæður almenn­ings.

Eignir stóru við­skipta­bank­anna þriggja, sem end­ur­reistir voru með handafli rík­is­ins eftir hrun, hafa auk­ist um tæpa þús­und millj­arða króna frá árs­lokum 2008, þegar arð­greiðslur sem greiddar hafa verið út úr þeim eru taldar með. Í fyrra fór eign­ar­safn þeirra allra yfir eitt þús­und millj­arða króna og sam­an­lagt eiga áttu Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki eignir sem metnar voru á 3.176 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Eigið fé þeirra var sam­an­lagt um 669 millj­arðar króna.

Samtals hafa bank­arnir þrír hagn­ast um 477,7 millj­arða króna frá því að þeir voru end­ur­reistir í októ­ber 2008. Þeir eru þó enn að langstærstu leyti fjár­magn­aðir með þeim inn­lánum lands­manna sem færð voru inn í bank­anna með neyð­ar­laga­setn­ing­unni í októ­ber 2008. Alls eru inn­lán við­skipta­vina 1.622 millj­arðar króna eða, eða 65 pró­sent af allri fjár­mögnun Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka. Þegar inn­lánum frá Seðla­banka Íslands og öðrum fjár­mála­fyr­ir­tækjum er bætt við hækkar það hlut­fall enn frekar, en Seðla­bank­inn og þorri fjár­mála­fyr­ir­tækja á Íslandi eru í eigu íslenska rík­is­ins.

Þetta er meðal þess sem hægt er að lesa út úr árs­reikn­ingum þeirra fyrir árið 2015 sem birtir voru í síð­ustu viku. Tveir af bönk­unum þremur eru í rík­i­s­eigu, Lands­bank­inn og Íslands­banki. Ríkið á einnig 13 pró­sent hlut í Arion banka á móti fyrrum kröfu­höfum, og núver­andi hlut­höfum, í Kaup­þingi.

Hagnaðurinn nemur hátt í 500 milljarða króna

Hagnaður stóru íslensku við­skipta­bank­anna hefur verið óheyri­legur sleitu­laust frá því að þeir voru stofn­aðir. Í fyrra setti Arion banki met í hagn­aði hjá sér þegar bank­inn græddi 49,7 millj­arða króna. Þar skipti mestu máli að hann seldi hlut sinn í í tveimur erlendum fyr­ir­tækjum, Refresco Gerber og Bakkavör. Samtals hefur bank­inn hagn­ast um 153,7 millj­arða króna frá því að hann var end­ur­reistur á grunni hins fallna Kaup­þings haustið 2008. Hagnaður síð­ust tveggja ára hefur skorið sig veru­lega úr, enda hefur rúm­lega helm­ingur alls hagn­aðar Arion banka komið á þeim árum. Bankinn hagn­að­ist því um hærri fjár­hæð árin 2014 og 2015 en hann gerði frá haust­mán­uðum 2008 og fram til loka árs 2013.

Lands­bank­inn hefur líka gert það ansi gott, og raunar hagn­ast banka mest frá hruni. Bankinn græddi 36,5 millj­arða króna í fyrra. Það skýrist að mestu vegna auk­ins hagn­aðar af hluta­bréfum og mark­aðs­skulda­bréfum og vegna leið­rétt­ingar á sölu­hagn­aði hlut­deild­ar­fé­lags hans. Samtals nemur hagn­aður Lands­bank­ans frá hruni 178,8 millj­örðum króna. Árið 2015 var, líkt og hjá Arion banka, algjört metár hjá Lands­bank­anum. Fyrra „met“ átti árið 2013 þegar hagn­að­ur­inn nam 29,8 millj­örðum króna.

Íslands­banki græddi 20,6 millj­arða króna í fyrra, sem var 2,1 millj­arði krónum minna en árið áður. Alls jókst virði hluta­bréfa og fjár­fest­inga í hlutafé hjá Íslands­banka um 74 pró­sent í fyrra. Eign bank­ans undir þeim lið, sem eru ann­ars vegar bréf skráð á markað og hins vegar óskráð bréf, fór úr 11,2 millj­örðum króna árið 2014 í 18,3 millj­arða króna í fyrra. Hækkunin er til­komin vegna virð­is­breyt­inga á eignum bank­ans og að mestu vegna hækk­unar á óbeinni eign hans í Visa Europe, í gegnum dótt­ur­fé­lag bank­ans Borgun.

Samtals hefur Íslands­banki hagn­ast um 145,2 millj­arða króna fá því að hann var end­ur­reistur á rústum Glitnis. Bankinn hefur náð þeim hagn­að­ar­ár­angri þrátt fyrir að hafa „aðeins“ grætt 1,9 millj­arð króna árið 2011. Ástæða þess að hagn­aður Íslands­banka var það lít­ill það árið var aðal­lega vegna áhrifa geng­is­lána­dóma og nið­ur­færslu á við­skipta­vild sem færð var á reikn­ing bank­ans það árið.

Samtals hafa end­ur­reistu við­skipta­bank­arnir þrír því hagn­ast sam­tals um 477,7 millj­arða króna frá því að þeir voru búnir til í kjöl­far hruns­ins.

Allir eiga yfir eitt þúsund milljarða

Eignir bank­anna hafa einnig vaxið gríð­ar­lega á þessu tíma­bili. Íslands­banki átti 658 millj­arða króna í eignum í lok árs 2008. Eigið fé bank­ans þá var 68 millj­arðar króna. Um síð­ustu ára­mót átti bank­inn eignir upp á 1.046 millj­arða króna. Eigið fé hans var orðið 202,2 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið 30,1 pró­sent.

Lands­bank­inn átti 1.037 millj­arða króna í lok árs 2008 og eigið fé hans þá var 157,6 millj­arðar króna. Eignir hans voru metnar á 1.119 millj­arða króna í lok síð­asta árs og eigið féð nú er 264,5 millj­arðar króna.

Arion banki átti eignir sem metnar voru á 641,2 millj­arða króna í lok árs 2008. Eigið fé bank­ans, sem þá hét Nýi Kaup­þings, var 76,9 millj­arðar króna. Í lok árs 2015 voru eignir Arion banka metnar á 1.011 millj­arða króna og eigið fé bank­ans var 202 millj­arða króna.

Árið 2015 var því árið sem eign­ar­safn allra stóru við­skipta­bank­anna fór yfir eitt þús­und millj­arða og sam­an­lagðar eignir þeirra í árs­lok voru 3.176 millj­arðar króna. Eignir bank­anna eru nú 840 millj­örðum krónum meiri en þær voru í árs­lok 2008. Þá á eftir að telja til þann arð sem þeir hafa greitt til hlut­hafa á tíma­bil­inu. Þeir hafa sam­tals greitt út 129,4 millj­arða króna í arð frá lokum hrunsárs­ins. Langstærstur hluti þeirra arð­greiðslna hafa verið greiddar af Lands­bank­anum, eða 82,6 millj­arðar króna.

Þegar arður sem greiddur hefur verið út úr Lands­bank­anum, Íslands­banka og Arion banka til eig­enda þeirra er lagður saman við hækkun á eign­ar­safni þeirra er ljóst að sam­an­lagt hefur hreinn ágóði þeirra frá lokum árs 2008, eftir skatta og gjöld, verið 969,4 millj­arðar króna.

Eigið féð rúmlega tvöfaldast þrátt fyrir arðgreiðslur

Eigið fé bank­anna, sá hagn­aður og virð­is­auki sem ekki hefur verið greiddur út í arð, hefur líka vaxið gríð­ar­lega á und­an­förnum árum. Sá vöxtur er að stórum hluta til­kom­inn vegna þess sem kallað er „óreglu­legir liðir“. Það er til dæmis sala á eignum eða hækkun á virði þeirra milli ára. Einhver ágóði sem er til­kom­inn vegna breytu sem eru ekki hluti af grunn­rekstri bank­anna.

Sam­an­lagt nam eigið fé Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka 302,5 millj­örðum króna í lok árs 2008. Um síð­ustu ára­mót þá nam það 668,7 millj­örðum króna. Það hefur því rúm­lega tvö­fald­ast á þessu tíma­bili þrátt fyrir að bank­arnir hafi, líkt og áður sagði, þegar greitt út 129,4 millj­arða króna í arð. Eig­in­fjár­hlut­fall bank­anna allra er afar hátt. Hjá Lands­bank­anum og Íslands­banka er það um 30 pró­sent en rúm­leg 24 pró­sent hjá Arion banka. Sterk rök eru fyrir því að bank­arnir þurfi að halda því háu til að geta tek­ist á við mögu­leg áföll í fram­tíð­inni og þær svipt­ingar og áskor­anir sem þeir þurfa óum­flýj­an­lega að takast á við þegar höftum verður lyft.

Hið mikla eigið fé gerir það hins vegar líka að verkum að erfitt gæti verið að selja bank­anna, líkt og að minnsta kosti hluti rík­is­stjórnar Íslands vill gera. Ef miðað er við að greitt verði ein króna fyrir hverja krónu sem bank­arnir eiga í eigið fé þyrftu áhuga­samir fjár­festar að greiða um 480 millj­arða króna fyrir þann 28,2 pró­sent hlut sem til stendur að selja í Lands­bank­anum og allt hlutafé Íslands­banka og Arion banka. Ljóst er að ekki margir inn­lendir fjár­festar, ef ein­hverjir, hafa getu til að kaupa slíka hluti með eigin fé utan líf­eyr­is­sjóð­anna, sem munu nær örugg­lega ekki kaupa alla bank­anna.

Fjármagnaðir með innstæðum okkar

Með neyð­ar­lög­unum sem sett voru 6. októ­ber 2008 var ákveðið að gera inn­stæður Íslend­inga að for­gangs­kröfum í þrotabú þeirra banka sem féllu næstu dag­anna á eftir. Í fram­kvæmd virk­aði hug­myndin þannig að nýir bankar voru end­ur­reistir á grunni þeirra sem féllu og allar inn­lendar inn­stæður Íslend­inga voru færðar inn í þá. Með því var tryggt að þær töp­uð­ust ekki og með þeim var hægt að fjár­magna nýju bank­anna, sem reistir voru á grunni hinna gömlu. Til að mæta þessum skuldum, því inn­stæður eru jú skuldir banka við við­skipta­vini sína, voru ferðar inn eignir úr þrota­bú­unum yfir í nýju bank­anna. Þær eignir hafa síðan ávaxt­ast mjög á und­an­förnum árum og umsýsla með þær útskýrir stóran hluta af ofur­hagn­aði bank­anna þriggja frá hruni.

Þótt að bönk­unum hafi tek­ist að koma miklu af eignum sínum í verð á þessum tíma þá hefur fjár­mögnun þeirra lítið breyst. Aðgengi þeirra að erlendum fjár­mála­mörk­uðum er tak­markað og kjörin sem þeim bjóð­ast fyrir skulda­bréfa­út­gáfu ekk­ert sér­lega beysin, þótt þau hafi lag­ast á und­an­förnum miss­erum. Þess vegna eru bank­arnir enn fjár­magn­aðir að langstærstu leyti af inn­stæðum lands­manna. Sam­an­lagt nema inn­stæður frá við­skipta­vinum þeirra allra 1.622 millj­örðum króna, eða rúm­lega 65 pró­sent af sam­an­lögðum skuldum bank­anna. Þegar inn­stæður Seðla­banka Íslands, sem er hluti af rík­inu, og ann­arra fjár­mála­stofn­anna, sem eru að mestu í rík­i­s­eigu, er bætt við hækkar þetta hlut­fall enn frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár