Persónuleg bók sem kafar ofan í erfiða hluti og samskipti við mismunandi fólk

Halldóra Sig­urð­ar­dóttir er að und­ir­búa útgáfu fyrstu bókar sinnar, Dauða egós­ins. Hún safnar fyrir útgáf­unni á Karolina Fund.

Halldóra Sigurðardóttir.
Halldóra Sig­urð­ar­dóttir. Mynd: Aðsend

Halldóra Sig­urð­ar­dóttir hefur starfað við þýð­ingar og leið­sögu­mennsku en hefur núna ákveðið að
gefa út sína fyrstu bók sem heitir Dauði egós­ins en þar kryfur hún mál­efni hjart­ans af mik­illi
ein­lægni.

Hvaðan kom þessi hug­mynd að skrifa þessa bók?

„Hún er eig­in­lega búin að vera að gerj­ast í mér í mörg ár en lengi vel vildi ég ekk­ert hafa með það að skrifa bók en ég fann sífellt fyrir meiri pressu og fann að ég yrði að koma upp­lif­unum mínum í orð og koma þannig þessum skila­boðum frá mér. Það hefur ýmis­legt gerst í mínu lífi og ýmsar upp­lif­anir sem höfðu mikil áhrif og í kjöl­farið fór ég að skoða fólk og aðstæður út fá öðru sjón­ar­horni og setja hlut­ina kannski í aðeins meira sam­hengi. Þetta er mjög per­sónu­leg bók þar sem ég kafa djúpt ofan í erf­iða hluti og sam­skipti við mis­mun­andi fólk.“
[adspot]Þú hefur starfað við þýð­ingar en ert að fara alveg inn á nýjan vett­vang, hvernig er sú til­finn­ing?

„Það var í byrjun mjög stressandi til­hugsun og ég veit ekki hversu oft ég hef hætt við og hugsað með mér „nei Dóra hvað ertu að gera?“ En svo kom að því að ég tók ákvörðun og það var ekki aftur snúið og nú hugsa bara með mér að það er spenn­andi að prófa eitt­hvað nýtt. Leið­sögu­mennskan er eins og flestir vita komin í hlé, hversu langt vitum við ekki en eitt­hvað verður maður að hafa fyrir stafni á meðan.“

Um hvað fjallar bókin?

„Það er frekar erfitt að segja í stuttu máli, ég vil líka ekki gefa alveg sögu­þráð­inn uppi en ég er aðal­lega að kryfja hvernig við erum búin að vera að horfa á lífið, þ.e. með aug­unum okkar og þessum hefð­bundnu skyn­færum og hvernig mörg okkar bregð­umst við, svo­lítið eins og lauf í vindi en það er að mínu mati til betri leið. Við mann­fólkið erum svo stór­kost­leg og svo miklu stærri og kraft­meiri en við gerum okkur grein fyrir og ég er svo­lítið að benda á það í þess­ari bók, þannig að skila­boðin eru mjög jákvæð í lokin þó ég þurfi að fara í gegnum erf­iða hluti til að útskýra það. Bestu sög­urnar að mínu mati eru sögur sem eru sannar og gefa les­and­anum einnig tæki­færi á að finna sig í sög­unum. Þetta er því mjög mann­leg bók og ég held að allir muni finna sig að ein­hverju leyti í henni.“

Þú þýddir Leynd­ar­málið var það ekki?

„Jú og ég fjalla aðeins um hana í bók­ina minni því þessi hún hafði gíf­ur­leg áhrif á mig þegar ég var að þýða hana og það er ekki laust við að ég hugsi með mér núna að þessi bók gæti jafn­vel komið að góðum notum í kjöl­far krepp­unnar sem við okkur blasir núna. Ég tel að hún geti hjálpað fólki að horfa á lífið sitt og krepp­una með öðrum augum og finna kraft­inn sem býr innra til að leysa öll þessi vanda­mál sem bíða okkar.“

Ertu langt komin með bók­ina?
„Já, ég er frekar langt komin með hana, er í fyrstu umferð að fara yfir text­ann og geri ráð fyrir að gefa bók­ina út í sumar, eða eins fljótt og mögu­legt er.“

Eitthvað sem þú vilt segja okkur að lokum?

„Já mig lang­aði til að deila með ykkur að þetta er mjög áríð­andi og krefj­andi verk­efni sem ég er að taka mér fyrir hendur, ég er að gefa ykkur hjarta mitt í þessa bók og mér þætti mjög vænt um ef þið mynduð leggja mér lið og styrkja útgáfu bók­ar­innar. Mig langar einnig að bæta við að ég ætla að gefa öllum föngum á Íslandi þessa bók og líka Kvenna­at­hvarf­inu, Vogi, Konukoti, Samhjálp og öllum þeim frá­bæru stöðum sem eru fyrir fólk í erf­ið­leikum, Það væri því dásam­legt ef þið gætuð hjálpað mér að láta þessa útgáfu verða að veru­leika.“

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár