Segir að Gylfi verði ekki seldur fyrir minna en fjóra milljarða

Sigurður Aðal­steins­son, faðir knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Sig­urðs­sonar, segir það sína til­finn­ingu að sonur sinn verði ekki seldur frá Swansea fyrir minna en 24 millj­ónir punda, um fjóra millj­arða króna. Þetta er haft eftir honum í Við­skipta­blað­inu í dag. Þegar Gylfi var seldur til Swansea árið 2014 var kaup­verðið um tíu millj­ónir punda en hann hefur alls verið seldur fyrir um fimm millj­arða króna milli félaga á ferli sínum, og er lang­dýr­asti íslenski leik­mað­ur­inn frá upp­hafi. Verði Gylfi keyptur á því verði sem faðir hans nefnir í Við­skipta­blað­inu er ljóst að um verður að ræða langstærstu sölu á íslenskum knatt­spyrnu­manni sem nokkru sinni hefur átt sér stað. Sigurður reiknar þó með að Gylfi skrifi frekar undir nýjan samn­ing hjá Swansea en að hann færi sig um set.

Áhuginn á íslenskum knatt­spyrnu­mönnum og íslenskri knatt­spyrnu hefur stór­auk­ist í kjöl­far frammi­stöðu lands­liðs­ins á EM í Frakk­landi. Greint var frá því víða í fjöl­miðlum í gær að Ragnar Sig­urðs­son sé m.a. undir smá­sjá stór­liða í ensku úrvals­deild­inni. Þar hafa Totten­ham, Leicester og Liverpool verið nefnd til sög­unnar.

Við­skipta­blaðið fjallar um þann hagnað sem ýmsir hafa af árangrinum og greinir m.a. frá því að Knatt­spyrnu­sam­band Íslands hafi þegar tryggt sér að jafn­virði um 1,9 millj­arða króna í verð­launafé frá Evrópska knatt­spyrnu­sam­band­inu UEFA. Takist íslenska lið­inu að sigra Frakka á sunnu­dag­inn kemur sú upp­hæð til með að hækka í 2,5 millj­arða króna. Þá segir að teikn séú á lofti að land­kynn­ingin sem fylgi frammi­stöð­unni muni geta haft umtals­verð áhrif á ferða­þjón­ustu hér­lendis og rætt er við umboðs­mann­inn Ólaf Garð­ars­son og Sigurð Aðal­steins­son, föður Gylfa Sig­urðs­sonar, um þau áhrif sem árangur lands­liðs­ins muni hafa á þá stráka sem spili vel á mót­inu. Erfitt sé að segja með ein­hverri vissu um hversu mikið áhrifin verði á verð og laun leik­manna en Ólafur segir t.d. að ef ein­hvert lið vilji kaupa Ragnar Sig­urðs­son frá Krasn­odar, þar sem hann spilar í dag, muni það nær örugg­lega þurfa að greiða á bil­inu fimm til sjö millj­ónir punda fyrir, þrátt fyrir að Ragnar sé orð­inn þrí­tugur.

Flugsæti og fjárhagsleg eftirköst

Morg­un­blaðið fjallar líka um EM-ævin­týrið í blaði dags­ins. Þar er meðal ann­ars greint frá því að mik­ill fjöldi flug­sæta til Frakk­lands sé í boði um helg­ina svo þeir íslensku stuðn­ings­menn sem vilji geti kom­ist þangað til að sjá leik Íslands og heima­manna á sunnu­dag. Í frétt Morg­un­blaðs­ins segir að bæði Icelandair og WOW muni fjölga ferðum og að Icelandair hafi um tíma verið með það í bak­hönd­inni að leigja breið­þotu fyrir verkið. Þá séu allskyns aðrir aðilar að bjóða upp á sér­ferðir, m.a. knatt­spyrnu­mað­ur­inn Grétar Sig­finnur Sig­urðs­son, Eskimo Travel, Netmiði og aug­lýs­inga­stofan 23 og ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Circle Air.

Morg­un­blaðið beinir einnig sjónum sínum að fyr­ir­sjá­an­legum eft­ir­köstum hins mikla stuðn­ings við íslenska lands­liðið á fjár­hag stuðn­ings­manna. Í blaði dags­ins er rætt við Ástu Sigrúnu Helga­dóttur, umboðs­mann skuld­ara, sem segir að leiða megi líkur á því að ein­hverjir eigi í greiðslu­vand­ræðum að loknu móti.

Íslend­ingar hafa lagt sig alla fram í stuðn­ingi við íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu í kjöl­far vel­gengni þess í Frakk­landi. Margir hafa óvænt keypt sér flug­far til Frakk­lands til að missa ekki af tæki­fær­inu að sjá lands­liðið spila á stór­móti. Reynsla fyrri ára sýni að eftir sumar- og jóla­frí fjölgi umsóknum hjá emb­ætt­inu, en þær hafa verið um 130 tals­ins á mán­uði á þessu ári. Þá hefur þegar komið fram í fréttum að korta­notkun Íslend­inga í Frakk­landi var allt að 1.200 pró­sent meiri frá miðjum júní í ár en hún er þar í landi á með­al­ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2016

Fréttirem2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
Fréttirem2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
Pistillem2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
Erlentem2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
Erlentem2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár