Það veit einhver hver á Dekhill Advisors

Aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum, rann­sókn­ar­skýrsla um þá aðkomu og eft­ir­stand­andi ósvar­aðar spurn­ingar eru við­fangs­efni sjón­varps­þáttar Kjarnans í kvöld. Kjartan Bjarni Björg­vins­son er gestur þátt­ar­ins.

„Ég held að það sé öllum morg­un­ljóst að það er ein­hvers staðar fyrir hendi vit­neskja um hver eigi þetta félag. En stóra spurn­ingin er hvort sá eða sú það veit stíga fram og upp­lýsa það.“ Þetta segir Kjartan Bjarni Björg­vins­son, sem sat í nefnd sem rann­sak­aði aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum í jan­úar 2003.

Félagið sem Kjartan talar um er Dekhill Advisors Limited, sem fékk 2,9 millj­arða króna greidda árið 2006 vegna bak­samn­inga sem gerðir voru við kaupin. Þetta kemur fram í nýjasta þætti Kjarnans á Hring­braut, þar sem kaupin á Bún­að­ar­bank­anum og rann­sókn á þeim eru til umfjöll­unar. Þátt­ur­inn er frum­sýndur klukkan 21:30 í kvöld.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­inn­ar­segir að allar líkur standi til þess að „Kaup­þing sjálft eða aðilar því tengdir hafi verið raun­veru­legir eig­endur Dekhill Advisors eða notið þeirra fjár­muna sem þangað runn­u“. Allir stjórn­endur og starfs­menn Kaup­þings sem komu að mál­inu hafa hins vegar neitað að hafa hagn­ast fjár­hags­lega á því í svörum sínum til nefnd­ar­innar.

Kjartan segir að þetta sé ekki full­yrð­ing um hverjir eig­end­urnir séu, enda liggi að honum vit­andi ekki fyrir neinar skýrar og afdrátt­ar­lausar upp­lýs­ingar um hver eigi félagið né hverjir hafi notið hags­bóta af þeim fjár­munum sem þangað fóru. „ Það er kannski næsta verk­efni ykkar fjöl­miðla­manna og fleiri aðila úti í þessu sam­fé­lagi að upp­lýsa um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár