Fátækum fjölgar í Danmörku

Danir eru fátæk­astir Norð­ur­landa­þjóða. Fátækum fjölgar ört og nú efna dönsk hjálp­ar­sam­tök í fyrsta sinn í sög­unni til lands­söfn­unar fyrir fátæka Dani. 

Í nýlegri skýrslu Evrópsku hag­stof­unnar, Eurostat, kom fram að Danir eru fátæk­astir Norð­ur­landa­þjóða og þar hefur fátækum fjölgað á und­an­förum árum. Í nágranna­lönd­unum hefur fátækum hins vegar fækkað. Mörgum Dönum var brugðið þegar fjöl­miðlar greindu frá nið­ur­stöðum skýrsl­unnar. Mæli­kvarð­arnir sem Eurostat notar eru flóknir, meðal ann­ars hvort ein­stak­lingur hafi ráð að eiga þvotta­vél, síma og lita­sjón­varp, geti farið í viku­langt sum­ar­frí og borðað kjöt­mál­tíð annan hvern dag. Tæplega átján pró­sent Dana eru við fátækt­ar­mörk (samkv. mæli­kvörðum Eurostat), fyrir átta árum var talan rúm­lega sextán pró­sent.

Danskir þing­menn hafa lengi verið ósam­mála um hver opin­ber fátækt­ar­mörk skuli vera og hvort slík mörk séu í raun til. Þau opin­beru fátækt­ar­mörk sem rík­is­stjórn Helle Thorning - Schmidt skil­greindi árið 2013 hefur núver­andi rík­is­stjórn afnumið með þeim rökum að þau þjóni engum til­gangi.

1.októ­ber síð­ast­lið­inn tóku gildi ný lög í Danmörku um hámark fjár­hags­að­stoðar. Breyt­ingin varð til þess að hámarks­upp­hæð slíkrar aðstoðar lækk­aði tals­vert. Áhrifin komu strax í ljós og hjálp­ar­stofn­anir segja að beiðnum um aðstoð hafi fjölgað nokkuð síðan breyt­ingin tók gildi og telja að þeim muni fjölga veru­lega á næst­unni.

Hefð fyrir landssöfnunum til fátækra í öðrum löndum

Í Danmörku er löng hefð fyrir lands­söfn­unum. Um þær gilda strangar reglur og margs konar skil­yrði sem sam­tök þurfa að upp­fylla til að fá leyfi fyrir söfn­unum. Nokkrum sinnum á ári fara slíkar safn­anir fram með aðstoð stóru sjón­varps­stöðv­anna tveggja, DR og TV2, þá er gjarna lagt heilt kvöld undir söfn­un­ina og afrakst­ur­inn millj­óna­tugir. Flestar lands­safn­anir eru hins­vegar svo­nefndar götu­safn­anir, þá er staðið með söfn­un­ar­bauka á götum og torgum og auk þess gengið í hús og bankað uppá. Safn­ar­arnir þurfa að sýna sér­stök skil­ríki til að sanna að þeir séu starfs­menn við­kom­andi sam­taka. Eitt hafa þó þessar safn­anir átt sam­eig­in­legt: söfn­un­ar­féð hefur ætíð runnið til aðstoðar í fjar­lægum löndum. Þangað til nú.

Safnað fyrir fátæka Dani

Í byrjun nóv­em­ber til­kynnti stjórn danska hjálp­ræð­is­hers­ins að sam­tökin, í sam­vinnu við nokkur önnur sam­tök myndu efna til lands­söfn­unar 25. – 27. nóv­em­ber. Gengið yrði í hús og jafn­framt staðið á götum og torgum, við versl­anir og víðar. Það sem er sér­stakt við þessa lands­söfnun er að ekki verður safnað fyrir fátækt fólk í öðrum löndum heldur fyrir fátæka Dani. Formaður hjálp­ræð­is­hers­ins sagði í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske að þar á bæ hefði þess greini­lega orðið vart und­an­farið að blá­fá­tækum, þeim sem hvorki hefðu til hnífs né skeiðar, hefði fjölgað mjög að und­an­förnu. Þetta væri sorg­leg stað­reynd sem nauð­syn­legt væri að fyrir dönsku þjóð­ina að við­ur­kenna en fátækt hefði fram til þessa verið hálf­gert feimn­is­mál. Snemma á níunda ára­tug síð­ustu aldar neit­aði Poul Schluter, þá nýorð­inn for­sæt­is­ráð­herra, því að fátækt fyr­ir­fynd­ist í Danmörku. Hann sneri þó við blað­inu síðar og í nýársávarpi sínu 1987 sagði hann að fátækt væri vissu­lega til í Danmörku og það væri skylda stjórn­mála­manna að bregð­ast við, áður en það yrði of seint og yrði þjóð­ar­böl. Ýmsir urðu til að gagn­rýna þessi orð for­sæt­is­ráð­herr­ans en miðað við hina nýju skýrslu evr­ópsku hag­stof­unnar hafði hann mikið til síns máls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár