Uppskrift að stórkostlegu mómenti

„Þetta er svo mögnuð hátíð, stofnuð af lista­mönnum, rekin af lista­mönnum,” segir Helga Björg Kjerúlf framkvæmdar­stýra Sequences X. „Það er svo mikil gróska í myndlist á íslandi og alltaf samvinna,” segir hún ennfremur um hátíðina sem fram fer 15. október - 24. október.

Sequences real time art festival er lista­hátíð sem hefur sannarlega fest sig í sessi og fangað athygli list­unnenda útí heimi og heima. Hátíðin hófst árið 2006 og var haldið ár hvert í þrjú ár, en varð að tvíæringi árið 2009. Semsagt, haldið annað hvert ár síðan. Tíunda Sequences hátíðin gengur í garð um helgina, og þvílík veisla, þvílíkt listafólk og þvílík dagskrá. Hillbilly ræddi við Helgu Björg Kjerúlf, framkvæmdar­stýru hátíðarinnar um viðburðina sem í boði verða þetta árið. Upplýsingar um alla lista­mennina, viðburði og þétta dagskrá má finna á sequences.is

Kominn tími til

Kominn tími til er yfir­skrift hátíðarinnar í ár, en afhverju er tími til kominn?. „Yfir­skriftin vísar í mómentið. Hvernig hugmyndir kvikna innan ákveðins samfélags og hefur áhrif á breytingar. Með tímanum hvernig hlutir þróast. Tíminn breytist og mennirnir með, en samt í einhverskonar spíral. Með hugmyndum getum við hreyft við tímanum,“ segir Helga Björg.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár