Sýndarveruleiki í aðalhlutverki í nýjum leik frá CCP

Nýr tölvu­leikur frá CCP byggir á sýnd­ar­veru­leika og fram­kvæmda­stjór­inn segir það marka tíma­mót í sögu fyr­ir­tæk­is­ins.

Með augum söguhetjunnar.
Með augum sögu­hetj­unnar. Mynd: CCP

Tölvu­leik­ur­inn Gunjack frá íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu CCP kemur út í dag en það er fyrsti tölvu­leikur CCP sem krefst þess að spil­ar­inn noti sýnd­ar­veru­leika­búnað til að spila. Leik­ur­inn ger­ist í EVE-heim­inum þar sem EVE Online tölvu­leik­ur­inn ger­ist líka en það er lang­vin­sæl­asti tölvu­leikur CCP. Frá þessu var greint í frétta­til­kynn­ingu í morgun.

Notast verður við Samsung Gear VR-bún­að­inn til að spila leik­inn. Samsung-snjall­síma af sér­stakri gerð er komið fyrir í gler­augum sem not­and­inn ber svo á hausnum á sér auk heyrnatóla. Með hverri hreyf­ingu spilar­ans birt­ist ný mynd á skjánum svo það er eins og hann sé raun­veru­lega staddur á fjar­lægri plánetu að berj­ast við vél­menni.

„Sýnd­ar­veru­leiki mun skipa stóran sess í afþreyg­ing­ar­iðn­aði fram­tíð­ar­innar,“ lætur Hilmar Veigar Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri CCP, hafa eftir sér í frétta­til­kynn­ing­unni. Hann segir leik­inn því marka ákveðin tíma­mót í sögu fyr­ir­tæk­is­ins. 

Gunjack var að mestu þró­aður í Shangai þar sem CCP er með starf­stöð. Fram­leiðslu­stjóri leiks­ins, Jean-Charles Gaudechon, segir mark­miðið hafa verið að ná því besta út úr þess­ari nýju tækni sýnd­ar­veru­leik­ans. „Við þróun leiks­ins reyndum við að nýta þessa nýju tækni til hins ýtrasta þannig að spil­ari leiks­ins fari í annan heim þegar hann setur á sig Gear VR-bún­að­inn,“ er haft eftir Caudechon.

Fleiri fyr­ir­tæki og sam­tök hafa reynt sýnd­ar­veru­leik­ann til að færa það sem áður virt­ist óraun­veru­legt að vitum fólks. Má þar nefna UNICEF á Íslandi sem færði fólk í flótta­manna­búðir í Jórdaníu með sama bún­aði. Mögu­leikar tæk­is­ins eru því miklir, bæði í heimi afþreyg­ingar og upp­lýs­inga­miðlun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár