Katrín sögð gera kröfu um að verða forsætisráðherra

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður Vinstri grænan rædd­ust saman í síma í gær, um stöð­una í stjórn­mál­unum, að því er segir í Morg­un­blað­inu.

Átt hafa sér stað þreif­ingar um stöð­una í stjórn­mál­unum og mögu­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður milli Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Hafa þau öll rædd saman í síma um stöðu mála, og hafa öll áhuga á því að leiða rík­is­stjórn ef það kemur til þess að flokk­arnir hefja form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður. 

Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag, og er þar einnig vísað til þess að Sigurður Ingi og Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, styðji Katrínu sem for­sæt­is­ráð­herra ef það næst sam­staða um mál­efna­stöðu til að vinna eftir.

Eins og kunn­ugt er sigldu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna, Vinstri grænna, Pírata, Fram­sókn­ar­flokks og Sam­fylk­ing­ar­innar í strand, og var það and­staða Fram­sóknar sem mestu réði í þeim efnum. Innan flokks­ins var hræðsla um að aðeins eins manns meiri­hluti væri af tæpur, í sam­starfi fjög­urra flokka.

Milli ann­arra flokka hafa einnig verið þreif­ingar og ljóst er að ýmis­legt getur gerst, enda mögu­leikar á stjórn­ar­myndun margir.

Rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins hefði 35 þing­menn á móti 28 þing­mönnum stjórn­ar­and­stöðu­flokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár