Vigdís Jakobsdóttir
Vigdís Jak­obs­dóttir „Mér finnst það ein­fald­lega vera mann­réttndi að hafa aðgang að hinni menn­ing­ar­legu sam­ræðu því það veitir okkur raun­veru­legt aðgengi að því að hafa áhrif á menn­ingu okkar og sam­fé­lag. Það hefur í raun verið minn drif­kraftur alveg síðan ég var krakki að jafna rétt fólks. Stuðla að jöfn­uði. Að fleiri fái notið sín og fái að virkja kraft­inn sem býr í fólki, helst öllum í sam­fé­lag­inu. Við höfum öll eitt­hvað að gefa og fram að færa. Það er í raun drifið mitt.“ Mynd: Golli

Menning er gáttin að samfélagslegri þátttöku

Vigdís Jakobs­dóttir, listrænn stjórn­andi Lista­hátíðar í Reykjavík, er trú kjörorði hátíðarinnar að list og menning séu ekki forréttindi heldur réttur allra. Raunar kjarna þessi orð sýn hennar sem byrjaði að mótast þegar hún var önnur af tveimur grænmetis­ætum á Ísafirði, sextán ára með hausinn á kafi í bókum. Nú er nýbúið að kynna dagskrá lista­hátíðar – sem er í takt við kjörorðið. En lista­hátíðin hefst 1. júní.

Árið var bara 1996 og nútíminn lúrði í uppsiglingu þegar Vigdís Jakobs­dóttir, listrænn stjórn­andi Lista­hátíðar í Reykjavík, fjár­magnaði kornung háa fjár­upphæð upp á eigið sjálfdæmi til að safna saman krökkum í Önundar­firði á Vestfjörðum og leiðbeina þeim í leiklist.

Þetta var sumarið eftir snjó­flóðið á Flateyri og meira en rúmu ári eftir snjó­flóðið á Súðavík.

Hún vildi gera eitthvað fyrir ungmenni á Vestfjörðum í kjölfar þeirra hörmunga sem snjó­flóðin voru.

Strax þá trú þeirri sannfæringu að aðgengi að menningu valdefli manneskjuna á þann hátt að hún geti orðið öflugri þátt­takandi í samfélaginu. Hún leigði Holt í Önundar­firði og réð matráðs­konu, auk þess að fara í ferðalag með ungmennin um Vestfirði þar sem þau sýndu eigin leik­sýningu á tíu stöðum.

Sumarið eftir snjóflóðið

Það var þá sem undir­rituð kynntist henni fyrst á sumar­kvöldi, sjálf að slíta unglings­skónum þegar hún villtist inn á námskeiðið á einhverju …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár