Stjórn Bakarameistarans ekki rætt endurgreiðslu hlutabóta þrátt fyrir hagnað

End­ur­greiðsla hluta­bóta 46 starfs­manna Bak­ara­meist­ar­ans hefur ekki verið rædd en til stendur að greiða arð til eig­enda fyrir rekstr­ar­árið í fyrra. „Ekkert óeðli­legt við þessa hluta­bóta­leið sem við vorum að nýta,“ segir stjórn­ar­for­maður og stærsti eig­andi.

Bakarameistarinn rekur níu bakarí víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu auk veisluþjónustu.
Bak­ara­meist­ar­inn rekur níu bak­arí víðs­vegar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu auk veislu­þjón­ustu. Mynd: Pexels

Rekstur Bak­ara­meist­ar­ans hefur verið með ágætum und­an­farin ár. Í nýbirtum árs­reikn­ingi fyrir árið 2020 kemur fram að hagn­aður félags­ins á því ári nam rúmum 22 millj­ónum króna. Hagn­að­ur­inn lækkar milli ára, var tæpar 62 millj­ónir í fyrra. Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hafði tölu­verð áhrif á rekstur félags­ins, líkt og segir í skýrslu stjórnar, en þar segir einnig að félag­inu hafi þó ekki verið gert að loka fyrir starf­semi. Félagið hyggst greiða eig­endum sínum arð fyrir síð­asta rekstr­arár en það er ekki til­greint hve háar arð­greiðsl­urnar munu verða. Arð­greiðslur á árinu 2020 námu 15 millj­ónum króna fyrir rekstr­ar­árið á undan, sem er tölu­verð lækkun frá 2019 þegar arð­greiðsl­urnar, fyrir und­an­gengið rekstr­arár, námu 55 millj­ónum króna.

Þrátt fyrir að fyr­ir­tækið hafi staðið af sér þau skakka­föll sem fylgdu kór­ónu­veiru­far­aldr­inum nýtti fyr­ir­tækið sér hluta­bóta­leið stjórn­valda. Alls voru 46 starfs­menn settir á hluta­bóta­leið í mars og apríl í fyrra sam­kvæmt skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar. Ekki stendur til að end­ur­greiða það fjár­magn sem greitt var til starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins í formi hluta­bóta.

“Ég tel ekk­ert óeðli­legt við þessa hluta­bóta­leið sem við vorum að nýta, þannig er það. Ég tel að við séum bara með gott fyr­ir­tæki sem stendur við sínar skuld­bind­ingar,” segir Sigþór Sig­ur­jóns­son í sam­tali við Kjarnann en hann á 95 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu og er stjórn­ar­for­maður þess.

Spurður að því hvort til greina komi að end­ur­greiða hluta­bæt­urnar segir Sigþór það ekki hafa komið til tals. „Við höfum ekk­ert rætt það, það hefur ekk­ert komið upp. Ég held að það sé allt eðli­legt við það sem við erum að gera þarna,“ segir Sigþór.

Ekki ætlunin að stöndug fyrirtæki nýti úrræðið

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um hafa fyr­ir­tæki sem standa traustum fótum og fóru klakk­laust í gegnum árið 2020 nýtt sér hluta­bóta­leið fyrir starfs­fólk sitt. Í áður­nefndri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar var sér­stak­lega vikið að því að úrræðið væri hafi verið frekar opið þegar því var fyrst komið á. Skilyrði fyrir nýt­ingu hluta­bóta­leið­ar­innar voru hert þegar úrræðið var fram­lengt en þá var gerð rík­ari krafa um tekju­skerð­ingu fyr­ir­tækja auk þess sem girt var fyrir það að eig­endur fyr­ir­tækja sem nýttu leið­ina gætu greitt sér arð, lækkað hlutafé, greitt óum­samda kaupauka eða keypt eigin bréf til árs­ins 2023. [links]

Í skýrsl­unni segir einnig að nokkuð frjáls­ræði hafi verið á túlkun lag­anna. „Í hópi þeirra aðila sem hafa nýtt sér hluta­starfa­leið­ina eru fyr­ir­tæki og fyr­ir­tækja­sam­stæður sem búa að öfl­ugum rekstri og traustum efna­hag en ekki verður séð af lög­unum og lög­skýr­ing­ar­gögnum að slíkt hafi verið ætl­unin.“ Þar kom einnig fram að sum fyr­ir­tæki höfðu boðað end­ur­greiðslur á hluta­bótum. Í apríl síð­ast­liðnum höfðu 88 fyr­ir­tæki end­ur­greitt alls 380 millj­ónir króna sem greiddar höfðu verið í hluta­bætur.

Rík­is­end­ur­skoðun gaf út aðra skýrslu um vinnu­mark­aðsúr­ræði sem kom út í des­em­ber í fyrra en í henni kemur fram að nýt­ing hluta­bóta­leið­ar­innar hafi minnkað um 60 pró­sent milli maí og júní í fyrra eftir að skil­yrði fyrir nýt­ingu úrræð­is­ins voru hert. Í skýrsl­unni segir að sam­drátt­inn mátti að hluta til rekja til hert­ari reglna, að hluta til vegna nýs úrræðis um greiðslu launa á upp­sagn­ar­fresti og að hluta til vegna þess að atvinnu­lífið hafði, að ein­hverju marki, tekið við sér.

Í umfjöllun um úrræðið í síð­ari skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar kom meðal ann­ars fram að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefði ekki úti­lokað að farið yrði fram á end­ur­greiðslu frá stönd­ugum fyr­ir­tækjum. Umræddur ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, sagði í við­tali við Vísi í maí í fyrra að það væri eðli­legt að fyr­ir­tæki myndu greiða til baka þann stuðn­ing sem ríkið hefði veitt þeim þegar betur áraði. Hann sagði fyr­ir­tæki sem ekki þyrftu á slíkum stuðn­ingi að halda en nýttu hann samt „reka rýt­ing í sam­stöð­una“ sem stjórn­völd hefðu kallað eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár