Tvö af hverjum þremur ríkisstjórnarfrumvörpum orðin að lögum

Þing kemur saman á nýjan leik á mánu­dag­inn, til þess að ljúka 145. lög­gjaf­ar­þingi áður en boðað verður til kosn­inga. Kjarninn ákvað af þessu til­efni að taka saman störf þings­ins á þessu þingi, sem lýkur vænt­an­lega í sept­em­ber.

64 frum­vörp frá rík­is­stjórn­inni hafa þegar orðið að lögum. Tólf mál frá rík­is­stjórn­inni bíða ennþá fyrstu umræðu í þing­inu, 18 mál eru í nefnd og tvö hafa verið afgreidd úr nefndum og bíða ann­arrar umræðu. Rík­is­stjórnin hefur boðað það að fleiri mál verði að öllum lík­indum lögð fram á þing­inu á næstu vikum.

Ólöf með flest frumvörp - Sigmundur fæst

Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra hefur verið dug­leg­ust ráð­herra við að leggja fram frum­vörp, en 27 frum­vörp hennar eru komin til þings­ins. Bjarni Bene­dikts­son kemur á eftir henni, hefur lagt fram 23 frum­vörp. Þau bera höfuð og herðar yfir aðra ráð­herra þegar kemur að fram­lagn­ingu frum­varpa, en Sigrún Magn­ús­dóttir umhverfis- og auð­linda­ráð­herra hefur komið fram með 12 frum­vörp á þessu þingi. Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra hefur átt sjö frum­vörp, Illugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra sex og Sigurður Ingi Jóhanns­son lagði líka fram sex frum­vörp sem sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Eygló Harð­ar­dóttir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra hefur komið fram með fimm frum­vörp og Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra einnig. Gunnar Bragi Sveins­son lagði fram tvö frum­vörp sem utan­rík­is­ráð­herra og Lilja Alfreðs­dóttir eitt frum­varp eftir að hún tók við þeirri stöðu í apríl. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son lagði fram tvö frum­vörp sem for­sæt­is­ráð­herra á liðnum vetri. Rétt er að taka fram að utan­rík­is­ráð­herra leggur iðu­lega mörg sín mál fram í formi þings­á­lykt­un­ar­til­lagna, og hafa 25 slíkar verið lagðar fram af utan­rík­is­ráð­herra á þessu þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár