Tíu staðreyndir um ójöfn völd og áhrif kynjanna á Íslandi

Peningar og völd á Ísland til­heyra að mestu körlum. Þeir eru mun fleiri í flestum áhrifa­stöðum innan stjórn­mála, stjórn­sýslu og atvinnu­lífs. Fjallað var ítar­lega um málið í nýjasta sjón­varps­þætti Kjarnans. Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni hér.

1. Karlar stjórna landinu

Rík­is­stjórn­inni er stýrt af körlum, þrír karlar stjórna þeim þremur stjórn­mála­flokkum sem að henni koma. Karlar eru í meiri­hluta í rík­is­stjórn­inni þrátt fyrir að kynja­hlut­föll á Alþingi hafi aldrei verið eins jöfn. Konur hefðu raunar verið í meiri­hluta á Alþingi í fyrsta sinn ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði haft jafn­ari kynja­hlut­föll á sínum fram­boðs­listum en raunin varð.

2. Karlar eru meirihluti stjórnarmanna

Nýlegar tölur frá Hag­stof­unni sýna að hlut­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja á Íslandi stendur í stað milli ára. Konur eru 25,9 pró­sent stjórn­ar­manna í fyr­ir­tækjum á Íslandi. Frá árinu 1999 hefur hlut­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja hækkað úr 21,3 pró­sentum í 25,9 pró­sent. Þegar litið er til fyr­ir­tækja með 50 eða fleiri starfs­menn voru konur 32,3 pró­sent stjórn­ar­manna í lok síð­asta árs.

3. Lög um kynjakvóta ekki að virka almennilega

Lög um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja tóku að fullu gildi hér á landi í sept­em­ber 2013 og sam­kvæmt þeim ber fyr­ir­tækjum með 50 eða fleiri starfs­menn að tryggja að hlut­fall hvors kyns í stjórn sé ekki undir 40 pró­sent­um. Árið eftir það náði hlut­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja af þess­ari stærð hámarki, fór upp í 33,2 pró­sent, en hefur síðan farið lækk­andi aft­ur.

4. Karlar eru meirihluti framkvæmdastjóra

Konum fjölg­aði lít­il­lega í stöðum fram­kvæmda­stjóra í fyrra, en hlut­fall þeirra fór úr 21,9 pró­senti í 22,1 pró­sent. Sam­kvæmt því voru 2.932 konur í stöðu fram­kvæmda­stjóra hér á landi í lok árs­ins 2016. Hag­stofan greinir töl­urnar einnig eftir grein­um, og í aðeins einni þeirra eru konur í meiri­hluta fram­kvæmda­stjóra. Það er í félaga­sam­tök­unum og annarri þjón­ustu­starf­semi, þar sem konur eru 64 pró­sent fram­kvæmda­stjóra. Í fræðslu­starf­semi eru konur 45,6 pró­sent fram­kvæmda­stjóra og 39,6 pró­sent í heil­brigð­is- og félags­þjón­ust­u.

5. Karlar eru meirihluti stjórnarformanna

Í lok síð­asta árs voru konur 23,9 pró­sent stjórn­ar­for­manna lands­ins. Það gera 3.691 konu sem gegndi slíku starfi. Aftur eru konur ein­göngu í meiri­hluta stjórn­ar­for­mennsku­starfa í félaga­sam­tökum og annarri þjón­ustu­starf­semi, þar sem þær eru 58 pró­sent stjórn­ar­for­manna. Sömu sögu er svo að segja af stjórn­ar­mennsku kvenna, þær eru í meiri­hluta stjórna félaga­sam­taka og ann­arrar þjón­ustu­starf­semi, en hvergi ann­ars stað­ar.

6. Karlar stýra peningum á Íslandi

Kjarninn hefur síð­ast­liðin fjögur ár gert úttekt á stöðu kvenna á meðal æðstu stjórn­enda við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, félaga á leið á markað, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og –miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­sjóða. Úttektin nær til æðsta stjórn­anda hvers fyr­ir­tækis eða sjóðs. Nið­ur­staðan í ár, sam­kvæmt úttekt sem fram­kvæmd var í febr­úar 2017, er sú að æðstu stjórn­endur í ofan­greindum fyr­ir­tækjum séu 88 tals­ins. Af þeim eru 80 karlar en átta konur. Það þýðir að 91 pró­sent þeirra sem stýra pen­ingum á Íslandi eru karlar en níu pró­sent konur.

7. Karlar hafa alltaf stýrt peningum á Íslandi

Þegar Kjarninn fram­kvæmdi úttekt­ina fyrst, í febr­úar 2014, voru störfin sem hún náði yfir 88 tals­ins. Þá sátu 82 karlar í þeim störfum en sex konur. Hlut­falls­lega skipt­ingin var því þannig að karlar voru 93 pró­sent stjórn­enda en konur sjö pró­sent. Árið 2015 voru störfin 87, karl­arnir 80 og kon­urnar sjö. Hlut­fallið hafði því „lag­ast“ en var samt þannig að 92 pró­sent stjórn­enda voru karlar en átta pró­sent konur. Í fyrra var hlut­fallið það sama og árið áður. 92 pró­sent þeirra sem stýrðu pen­ingum hér­lendis voru karlar. Hlut­fallið hefur því nán­ast ekk­ert breyst á síð­ustu fjórum árum.

8. Lífeyrissjóðakerfið sérstaklega karlægt

Áhrifa­mestu leik­end­urnir á íslenskum fjár­mála­mark­aði eru líf­eyr­is­sjóð­irnir okkar. Samkvæmt nýj­ustu hag­tölum Seðla­banka Íslands var hrein eign þeirra 3.637 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Líf­eyr­is­sjóð­irnir, sem eru nú 25 tals­ins sam­kvæmt yfir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um eft­ir­lits­skyldra aðila, eru allt um lykj­andi í íslensku við­skipta­lífi. Þeir eiga meira en helm­ing skráðra hluta­bréfa annað hvort beint eða óbeint í gegnum sjóði sem þeir hafa fjár­fest í. Sjóð­irnir hafa líka fjár­fest mikið í óskráðum eignum og eru að sækja mikið á í útlánum til fast­eigna­kaupa, þar sem þeir geta boðið betri kjör en við­skipta­bank­arnir. Þá eru þeir helstu eig­endur skulda­bréfa á Íslandi.

Úttekt Kjarnans í febr­úar náði til 17 stjórn­enda líf­eyr­is­sjóða sem sumir hverjir stýra fleiri en einum sjóði. Af þessum 17 eru 15 karlar en tvær konur. Níu stærstu sjóð­irnir stýra um 80 pró­sent af fjár­magn­inu sem er til staðar í íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu. Þeim er öllum stýrt af körlum.

9. Karlar stýra skráðum félögum

Öllum skráðum félögum á Íslandi er nú stýrt af körlum. Auk þess er for­stjóri Kaup­hall­ar­innar karl­inn Páll Harð­ar­son.

10. Fleiri karlmenn forstöðumenn en konur

Konur eru 39 pró­sent for­stöðu­manna hjá stofn­unum rík­is­ins. Hlut­fallið hefur hækkað úr 37 pró­sentum í fyrra og 29 pró­sentum árið 2009. For­stöðu­menn hjá rík­inu voru 154 í jan­úar á þessu ári, og hafði fækkað um tvo á einu ári. Konur eru nú sam­tals 60 tals­ins meðal 154 for­stöðu­manna hjá rík­inu. Allar stofn­anir rík­is­ins eru með­taldar í kynja­bók­hald­inu, að und­an­skildum stofn­unum utan fram­kvæmda­valds­ins, Alþingi, stofn­unum þess og dóm­stól­u­m.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár