684 ára ráðgáta um svarta dauða leyst – tennur úr fyrstu fórnarlömbum lykillinn

Í ára­tugi hafa vís­inda­menn reynt að kom­ast að því hvar hin mjög svo mann­skæða pest, svarti dauði, átti upp­runa sinn. Nýjar rann­sóknir benda til að far­ald­ur­inn hafi sprungið út árið 1338 á svæði sem Kirgistan er nú að finna.

DNA-rannsóknir voru notaðar til að svipta hulunni af því hvar og hvenær svarti dauði kom til sögunnar.
DNA-rann­sóknir voru not­aðar til að svipta hul­unni af því hvar og hvenær svarti dauði kom til sög­unnar. Mynd: Pexels

Formóðir bakt­ería sem vitað er að ollu pest­inni svarta dauða á 14. öld fannst nýverið við DNA-grein­ingu í tönn úr mann­eskjum sem höfðu lát­ist árið 1338 og verið jarð­aðar í graf­reit á svæði sem nú til­heyrir land­inu Kirgistan. Vís­inda­menn­irnir sem fram­kvæmdu rann­sókn­ina telja að nú hafi upp­runi far­ald­urs sem átti eftir að fella millj­ónir manna verið stað­festur. Þar með sé 684 ára gömul ráð­gáta loks leyst.

Svarti dauði var óhugn­an­legur sjúk­dómur sem barst með ógn­ar­hraða á þess tíma mæli­kvarða um alla Evrópu, Asíu, norð­ur­hluta Afríku og víðar á fjórt­ándu öld. Líklega hefur hann borist með versl­un­ar­leiðum milli land­svæða. Svo mann­skæður var far­ald­ur­inn að hann setti sam­fé­lög víða í mikið upp­nám. Ótti greip eðli­lega um sig.

Í ára­tugi hafa vís­inda­menn reynt að ráða gát­una um upp­runa hans og ýmsar til­gátur verið settar fram. Nú telur hópur vís­inda­manna, sem birta nið­ur­stöður sínar í grein í vís­inda­tíma­rit­inu Nature, sig hafa kom­ist eins nálægt lausn­inni og hægt er í augna­blik­inu.

Með DNA-rann­sókn á tönn tókst þeim að finna bakt­eríu sem er náskyld öðrum sem á eftir komu og stað­fest er að ollu sjúk­dómnum nokkrum árum síðar.

„Við höfum fundið upp­runann í tíma og rúmi sem er í raun mjög merki­legt,“ hefur breska blaðið Guardian eftir Johannes Krause, pró­fessor við Max Planck-stofn­una í Leipzig. Stofn­unin sér­hæfir sig í þró­un­ar­fræði og mann­fræði­rann­sóknum. Bakt­er­ían sem fannst er ekki aðeins for­móðir afbrigða sem vitað er að ollu svarta dauða heldur einnig móðir afbrigða margra bakt­ería sem enn finn­ast á jörð­inni.

Vís­inda­teymið kom fyrst saman er Philip Slavin, sagn­fræð­ingur við Háskól­ann í Stirling, hafði upp­götvað skyndi­legt og mikið mann­fall á síð­ari hluta fjórða ára­tugs 14. aldar með rann­sóknum á graf­reitum í nágrenni stöðu­vatns­ins Issyk-Kul á svæði sem nú til­heyrir Kirgistan. Í görð­unum voru hund­ruð leg­steina á gröfum fólks sem lát­ist höfðu á ára­bil­inu 1248-1345. Það sem Slavin upp­götv­aði var að mjög margir sem grafnir voru i görð­unum höfðu lát­ist á aðeins tveimur árum; 1338-1339. Á sumum stein­unum stóð að dán­ar­or­sök hafi verið „mawtānā”, sem er forn­sýr­lenskt orð yfir drep­sótt.

Frekari rann­sókn Slavin leiddi svo í ljós að um þrjá­tíu beina­grindur hefðu verið grafnar upp á níunda ára­tug átj­ándu aldar. Slavin og sam­starfs­menn hans köf­uðu ofan í dag­bækur þeirra sem stóðu að upp­greftrinum og komust að því hvar lík­ams­leif­arnar væri að finna. Þegar það lá fyrir tóku aðrir vís­inda­menn við kefl­inu og hófu að gera DNA-rann­sóknir. Í því teymi voru m.a. Krause og Maria Spyrou, pró­fessor við Tübingen-háskóla í Þýska­landi.

Rannsökuðu líkamsleifar sjö eintsaklinga

Krause, María og félagar gerðu rann­sóknir á tönnum úr sjö mann­eskjum sem höfðu verið grafnir í görð­unum við vatnið. Þeim tókst að ein­angra bakt­eríu sem veldur eitla­bólgu (kýla­veiki) úr þremur þess­ara ein­stak­linga. Sú bakt­ería var greind og eins og fyrr segir komust vís­inda­menn­irnir að því að hún væri for­móðir bakt­ería sem ollu svarta dauða í Evrópu átta árum síðar.

Teymið komst enn­fremur að því að nán­asti „ætt­ingi“ þess­arar bakt­eríu væri að finna í nag­dýrum á þessu sama svæði. Fólk getur enn þann dag í dag sýkst af eitla­bólgu en þar sem hrein­læti er mun betra nú en fyrir nokkrum öldum og færri eru í miklu og tíðu nábýli við rottur hefur það komið í veg fyrir að bakt­er­ían nái að stökk­breyt­ast í mönnum og valda skæðum far­öldrum líkt og hún gerði áður fyrr.

„Það sem við fundum í tengslum við graf­reit­inn var for­móðir nokk­urra afbrigða [sem ollu svarta dauða] og þess vegna er þetta eins og stóri hvellur plág­unnar,“ sagði pró­fess­or­inn Krause á blaða­manna­fundi þar sem nið­ur­stöð­urnar voru kynntar.

Far­sóttin sem síðar var kölluð svarti dauði (á lat­ínu mors nigra) gekk yfir Evrópu um miðja 14. öld og er áætlað að um einn fjórði til þrír fjórðu hlutar íbúa álf­unnar hafi lát­ist. Þessi til­tekni far­aldur pest­ar­innar barst ekki til Íslands, senni­lega vegna þess að þeir sem höfðu sýkst í Noregi, þaðan sem mest var siglt til lands­ins á þeim tíma, hafa dáið í hafi áður en þeir náðu til Íslands, segir í ítar­legri grein á Vís­inda­vefnum um svarta dauða. Síðan féllu sam­göngur fljótt niður vegna þess að þeir Norðmenn sem lifðu eftir hafa haft meira en nóg að sýsla heima fyrir. Að sögn ann­áls sigldi ekk­ert skip til Íslands árið 1350.

Eftir að þessi far­aldur gekk yfir var pestin land­læg víða í Evrópu, og minni háttar far­aldrar gengu næstu ald­irnar allt fram á 18. öld, stundum á nokk­urra ára­tuga fresti. Tveir slíkir far­aldrar náðu til Íslands, sá fyrri gekk hér á árunum 1402–04, sá síð­ari 1494–95.

„Um smit­leiðir pest­ar­innar höfðu menn lengi þá skoðun að hún liði yfir landið eins og þoku­móða, og voru til sögur um hvernig fólk hefði séð hana nálg­ast úr fjarska,“ stendur á Vís­inda­vefnum. En um alda­mótin 1900 kom upp afar mann­skæð kýla­pest í Kína og Indlandi, svo mann­skæð að fljótt var giskað á að þarna væri á ferð sami sjúk­dómur og hafði verið kall­aður svarti dauði.

Lengi voru smit­leið­irnar mikil ráð­gáta, en eftir nokk­urra ára rann­sóknir kom í ljós að hann smit­að­ist ekki beint frá manni til manns heldur á milli manna með flóm sem lifðu aðal­lega á rottum. „Þegar rott­urnar drápust úr pest­inni leit­uðu flærnar á menn til að seðja hungur sitt og smit­uðu þá í leið­inni,“ segir á Vís­inda­vefnum.

Lungnapest?

Skömmu síðar kom svo í ljós að sami sjúk­dómur gat líka gengið frá manni til manns sem lungna­pest og var þá ennþá mann­skæð­ari, drap nán­ast alla sem veikt­ust. „En engu er lík­ara en að vís­inda­heim­ur­inn hafi verið svo stoltur af ráðn­ingu sinni á smit­leið kýla­pest­ar­innar að haldið var dauða­haldi í að þannig hlyti mið­alda­plágan í Evrópu að hafa smit­ast.“

En síð­ustu ára­tugi hefur þeirri skoðun vaxið fylgi í Evrópu að svarti dauði hafi frá upp­hafi gengið sem lungna­pest um álf­una.

Um fyrri far­ald­ur­inn, sem gekk yfir Ísland í upp­hafi fimmt­ándu aldar, segir á Vís­inda­vefnum að erfitt sé að áætla mann­fallið þar sem eng­inn viti hve margir Íslend­ingar voru á þessum tímum. En ef gert er ráð fyrir að þeir hafi verið um 50.000 fyrir pest­ina, eins og þeir voru þegar fyrsta mann­talið var tekið 1703, hafa mögu­lega um 25.000 manns fallið.

Í síð­ari far­aldr­inum við lok fimmt­ándu aldar eru líka til heim­ildir um að helm­ingur fólks í land­inu hafi týnt lífi vegna pest­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár