Leiðtogar heimsins leggja áherslu á gott samstarf við Trump

Leið­togar áhrifa­mestu þjóða heims sendu Donald Trump heilla­óskir í morgun. Lang­flestir lögðu áherslu á áfram­hald­andi sam­starf á alþjóða­vísu.

Xi Jinping og Vladimir Pútin.
Xi Jinping og Vladimir Pútin. Mynd: EPA

Helstu leið­togar alþjóða­stofn­ana og banda­lags­þjóða Banda­ríkj­anna hafa sent Donald Trump ham­ingju­óskir eftir að ljóst var að Trump verði næsti for­seti Banda­ríkj­anna. Repúblikan­flokk­ur­inn hlaut einnig meiri­hluta í báðum þing­deildum banda­ríska þings­ins.

Nær allir þjóð­ar­leið­togar lögðu áherslu áfram­hald­andi sam­starf á alþjóða­vísu en Trump lagði meðal ann­ars áher­lsu á í kosn­igna­bar­áttu sinni að hann myndi rifta við­skipta­samn­ingum á alþjóða­vísu.

Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, sendi Trump heilla­óskir frá Brussel í morgun og seg­ist hlakka til að vinna með nýkjörnum for­seta. „Við stöndum frammi fyrir ögrandi nýju heims­ör­ygg­is­á­standi,“ sagði Stol­ten­berg og taldi til ofbeldi 21. ald­ar­innar; ný form hern­aðar, netárásir og hryðju­verkaógn.

Trump lagði mikla áherslu á í kosn­inga­bar­áttu sinni að aðild­ar­ríki NATO myndu, í hans valda­tíð, leggja til þær fjár­hæðir sem þær hafa skuld­bundið sig til að greiða til NATO. Ísland er meðal aðild­ar­ríkja NATO og er þar minnsta aðild­ar­ríkið og eina ríkið sem hefur ekki her. Ísland er meðal þeirra landa sem hefur ekki greitt að fullu þær fjár­hæðir sem samn­ing­ur­inn utan um Atl­ants­hafs­banda­lagið gerir kröfu um.

Ljóst er að Stol­ten­berg leggur áherslu á að nýr leið­togi Banda­ríkj­anna fóstri NATO í stað þess að slíta það í sundur. „Banda­lagið okkar hefur stefnt saman helstu vina­þjóðum Banda­ríkj­anna á tímum friðar og ófriðar í nærri 70 ár. Sterkt Atl­ants­hafs­banda­lag er gott fyrir Banda­ríkin og gott fyrir Evrópu,“ skrifar hann.

Leið­togar öfga­hægr­is­ins í Frakk­landi voru meðal þeirra sem voru fyrstir til að óska Trump til ham­ingju. Marie Le Pen, leið­togi Front National, var ánægð með úrslitin og óskaði „frjálsri amer­ískri þjóð“ til ham­ingju á Twitter. Helsti ráð­gjafi Le Pen, Florian Phil­ippot, tví­taði: „Þeirra ver­öld er að hrynja, okkar ver­öld er að verða til.“

Leið­togar Bret­lands og Banda­ríkj­anna stæra sig oft af „sér­stöku sam­bandi“ þjóð­anna enda hafa þessi ríki verið afar traustir banda­menn á alþjóða­svið­inu síðan í seinni heim­styrj­öld­inni. Þar ráða ekki síst efna­hags­legir hags­munir ferð­inni. Kosn­inga­bar­átta Brexit-liða gekk til dæmis ekki síst um að Bretland myndi líta enn frekar vestur yfir Atl­ants­hafið frekar en austur yfir Erma­sundið í efna­hags­legum skiln­ingi.

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sendi Donald Trump ham­ingju­óskir í morgun og fagn­aði hinu „sér­staka sam­bandi“ Bret­lands og Banda­ríkj­anna; sam­eig­in­legum gildum um „frelsi, lýð­ræði og einka­fram­tak“. May hafði áður gagn­rýnt kosn­inga­bar­áttu Donalds Trump.

Margir leið­togar Íhalds­flokks­ins – flokks Theresu May – hafa hins vegar lýst yfir áhyggjum sínum af utan­rík­is­stefnu Trump. Breska blaðið The Independent greinir frá því að ein­hverjir hafi kallað utan­rík­is­stefnu nýrra stjórn­valda „skelfi­lega yfir­borðs­kennda“. Einn ráð­herra í rík­is­stjórn May lét hafa eftir sér: „Spurn­ingin er hvort hann hafi nokkra hug­mynd um ástandið í Mið-Aust­ur­löndum. Mun hann taka afstöðu til útþenslu ísra­el­skra land­nema­byggða, svo dæmi sé tekið. Hann veit eflaust ekk­ert um það.“

Nigel Farage, helsti tals­maður Brexit og leið­togi UKIP-flokks­ins í Bret­landi, kallar kjör Donalds Trump bylt­ingu í Banda­ríkj­unum á sama hátt og Brexit-atkvæða­greiðslan var bylt­ing í Evr­ópu­sam­band­inu. Farage er sagður vera á leið til Banda­ríkj­anna til fundar við Trump.

Frá Rúss­landi barst skeyti frá Vladimir Pútín til kosn­inga­vígis Donalds Trump. Pútín óskar nýjum for­seta vel­gengni í nýju starfi og lagði áherslu á að end­ur­reisn sam­bands Rúss­lands og Banda­ríkj­anna væri mik­il­vægt, ekki aðeins fyrir þessi tvö lönd heldur heim­inn allan. Hann sagð­ist vona að kjör Trump myndi leiða til upp­byggi­legrar sam­ræðu milli Moskvu og Washington sem byggi á jafn­ræði og virð­ingu.

Leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa boðið Trump til fundar við sig. Donald Tusk, for­seti Evr­ópu­þings­ins, og Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB, vilja funda með honum um mál­efni Banda­ríkj­anna og Evr­ópu­sam­bands­ins. „Í dag er mik­il­væg­ara en nokkru sinni fyrr að styrkja tengslin yfir Atl­ants­hafið,“ skrifa þeir í bréfi til Trump.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár