Nú má spila bingó á föstudaginn langa

Alþingi sam­þykkti í gær að fella niður ákvæði í lögum um helgi­daga­frið sem bannar til­tekna þjón­ustu, skemmt­anir og afþr­ey­ingu á til­greindum helgi­dögum þjóð­kirkj­unnar. Á meðal þess sem bannað var í lög­unum var að standa fyrir bingó á helgi­dögum.

Alþingi sam­þykkti í gær frum­varp um breyt­ingar á lögum um helgi­daga­frið. Frum­varpið kveður á um að felld verði niður ákvæði í lögum um helgi­daga­frið sem banna til­tekna þjón­ustu, skemmt­anir og afþr­ey­ingu á til­greindum helgi­dögum þjóð­kirkj­unnar. Alls greiddu níu þing­menn gegn frum­varp­inu, allt þing­menn Mið­flokks­ins.

Verður hver að fá gera með sínu lagi

Sigríðar Á. Andersen, þing­konu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lagði fram frum­varpið en þing­flokkur Pírata hafði tvisvar áður lagt fram frum­varp þess efnis. Samkvæmt vef Alþingis er mark­miðið með lög­unum að auka frelsi til atvinnu­rekstrar á helgi­dögum þjóð­kirkj­unnar og koma til móts við þá sem njóta vilja þjón­ustu og afþrey­ingar á þessum dögum.

Í Facebook-færslu Sigríðar um sam­þykkt frum­varps­ins segir að nú hafi verið hrundið úr vegi síð­ustu hindr­unum við að veita og njóta þjón­ustu á til­greindum helgi­dögum þjóð­kirkj­unnar. „Ég lagði á það áherslu í fram­sögu­ræðu minni að með frum­varp­inu væri ekki stefnt að því að draga úr vægi helgi­daga­friðs. Umræddir dagar eru hluti af okkar kristnu arf­leifð og þess er sjálf­sagt að minn­ast er þeir renna upp. Það verður hins vegar hver að fá að gera með sínu lagi. Sá friður sem æski­legt er að ríki þessa daga sem aðra er einkum innri friður hvers og eins okkar. Sú ró verður ekki fengin með lögum,“ segir Sigríður.[adspot]

Bingó sérstaklega bannað

Í lögum um helgidag segir að á helgidögum sé eftirfrandi starfsemi óheimil; skemmtanir, svo sem dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eða á öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að. Hið sama gildir um opinberar sýningar og skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur svipuð spil fara fram. Auk þess eru markaðir og verslunarstarfsemi, svo og önnur viðskiptastarfsemi óheimil. Ákveðin starfsemi er þó undanþegin banninu þar á meðal starfsemi lyfjabúða og bensínstöðva.

Samkvæmt lögunum eru helgidagar þjóðkirkjunnar, sunnudagar, annar dagur jóla, nýársdagur, skírdagur, annar dagur páska, uppstigningardagur og annar dagur hvítasunnu. Auk þess föstudagurinn langi, páskadagur , hvítasunnudagur og aðfangadagur jóla frá kl. 18.00 og jóladagur til kl. 6.00 að morgni næsta dags

Félagið Vantrú er meðal þeirra sem gagnrýnt hafa lögin en félagið hefur staðið fyrir árlegu ólöglegu bingó Vantrúar á föstudaginn langa. „Það er auðvitað öllum í sjálfsvald sett að spila ekki bingó og gera ekki neitt skemmtilegt af trúarástæðum en það er rangt að þvinga alla til að fara að því," sagði Sindri Guðjónsson, formaður Vantrúar, í samtali við Vísir í fyrra.

Nú er hins vegar ekki lengur bannað að bjóða upp tiltekna þjónustu, skemmtanir og afþreyingu á tilgreindum helgidögum þjóðkirkjunnar, en áfram verður þó óheimilt að trufla guðsþjónustu, kirkjulegar athafnir eða annað helgihald með hávaða eða öðru því sem andstætt er helgi viðkomandi athafnar samkvæmt lögunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár