Brynjar: Rauðhærðir og skeggjaðir lenda oft í þessu veseni

Aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra gefur lítið fyrir gagn­rýni á verk­lag lög­reglu í sam­bandi við leit að stroku­fanga.

Brynjar Níelsson aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.
Brynjar Níelsson aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Brynjar Níelsson fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra segir að þegar lög­regla leitar að eft­ir­lýstum mönnum fái hún ábend­ingar sem hún auð­vitað verði að kanna.

Þetta kemur fram í athuga­semd á Facebook þar sem hann er spurður hvort hann og dóms­mála­ráð­herra ætli að tjá sig um alvar­leika þess að lög­reglu­emb­ættið skuli hafa mætt í fullum skrúða í tvígang til að hand­taka 16 ára ung­ling sem hafði ekk­ert gert af sér annað en að vera brúnn og með „dreadlocks“. Brynjar var jafn­framt spurður hvort allir ungir brúnir menn og strákar þyrftu að vera heima hjá sér þangað til löggan hefur fundið mann­inn sem þeir töp­uðu.

„Það er ekki nýtt að slíkar ábend­ingar reyn­ist rangar og má segja að slíkt ger­ist í öllum svona málum. Rauð­hærðir og skeggj­aðir lenda oft í þessu ves­eni. Menn þurfa að vera sér­kenni­lega inn­rétt­aðir til að sjá ras­isma í þessu máli, og jafn­vel plebba­legir,“ skrifar hann.

Skelfilegt að hann hafi lent í þessu tvisvar – en lögreglan þarf að bregðast við ábendingum

[links]Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri sagði í sam­tali við RÚV í gær að það væri skelfi­legt að sak­laus drengur hefði í tvígang lent í að lög­regla hafði afskipti af honum því hún taldi hann vera stroku­fanga. Saklaus ung­menni ættu ekki að þurfa að verða fyrir afskiptum lög­reglu og sér­sveitar.

„Það er alveg skelfi­legt að hann skuli hafa lent í þessu í tvígang. En þarna er lög­reglan að bregð­ast við ábend­ingum um að þarna sé á ferð­inni sá ein­stak­lingur sem við erum að leita að og sak­laus drengur verður fyrir því að við þurfum að kanna rétt­mæti þess­ara ábend­inga,“ sagði Sigríður Björk.

Hún sagði að það væri flókið að koma í veg fyrir að svona gerð­ist vegna þess að lög­reglan vildi fá ábend­ingar frá almenn­ingi og þyrfti að bregð­ast við þeim. „En hins vegar þurfum við líka að tryggja það að ungt fólk hérna um göt­urnar án þess að verða fyrir afskiptum að ástæðu­lausu af hálfu lög­reglu og jafn­vel sér­sveitar.“

Sigríður Björk hitti for­eldra drengs­ins tvo daga í röð vegna atvikanna. „Þetta var bara mjög gagn­legt að setj­ast niður og fara yfir stöð­una, bæði þeirra upp­lifun og þeirra í raun og veru raun­veru­leika, reyna að setja sig inn í það. Og að sama skapi að fara yfir verk­ferla lög­reglu, finna út hvað við getum gert öðru vísi og betur. En þetta voru gagn­leg sam­töl en ég vona inni­lega að við þurfum ekki að setj­ast niður í þriðja sinn út af sömu ástæðu.“

„Aðstæður eru ekki ein­fald­ar, þær eru flókn­ar og menn und­ir álagi hjá lög­regl­unni“

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra sagði í sam­tali við mbl.is í gær að hann myndi eiga sam­tal við rík­is­lög­reglu­stjóra og óska eft­ir við­brögðum lög­reglu vegna máls­ins.

Að sögn Jóns er það afar óheppi­legt að svona lagað skuli eiga sér stað í þess­ari starf­semi lög­reglu og að það sé mik­il­vægt að læra af þessu.

Spurður hvort dóms­mála­ráðu­neytið hyg­ðist beina ein­hverj­um til­mæl­um til lög­reglu varð­andi verk­lag og fram­kvæmd leit­ar­inn­ar sagð­ist Jón ör­ugg­lega leita eft­ir upp­lýs­ing­um frá lög­reglu en ít­rek­aði að hvorki ráðu­neytið né ráð­herra gæti haft ein­hver af­skipti af ein­staka mál­um hjá lög­regl­unni.

Ráð­herr­ann sagði enn­fremur að sýna þyrfti lög­regl­unni skiln­ing. „Menn þurfa að hafa það í huga að þetta eru erf­iðar aðstæður sem lög­regl­an vinn­ur við og það þarf að sýna því skiln­ing.“

Benti hann á að lög­regl­an væri að leita að eft­ir­lýst­um ein­stak­lingi sem er tal­inn hættu­leg­ur um­hverfi sínu. „Aðstæður eru ekki ein­fald­ar, þær eru flókn­ar og menn und­ir álagi hjá lög­regl­unni.“

Krefst þess að lögreglan breyti verklagi sínu

Móðir drengs­ins sagði í sam­tali við Kjarnann í gær að hann hefði verið að algjöru áfalli eftir fyrra atvikið sem átti sér stað í strætó í fyrra­dag. Hann hefði fengið frí í vinn­unni í gær og hefðu þau mæðgin ætlað að eiga stund saman í bak­aríi í Mjódd­inni en í stað­inn mætti lög­reglan á svæðið. Hún sagði að það hefði verið nið­ur­lægj­andi.

Hún krefst breytts verk­lags án tafar þar sem barnið hennar sé nú fangi á eigin heim­ili fyrir glæp sem hann framdi ekki. Vit­und­ar­vakn­ing hjá lög­regl­unni og sam­fé­lag­inu sé brýn og nauð­syn­leg.

Dreng­ur­inn var sjálfur með ósk sem hann vildi koma á fram­færi: „Ég væri til í að geta stigið út úr mínu eigin húsi og vera með vinum mínum án þess að lög­reglan stoppi mig fyrir það hvernig ég lít út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár