Vilja að háskólanám verði náttúrulegt framhald af menntaskóla

Nemar ehf. er fyr­ir­tæki sem stendur fyrir því að hjálpa nem­endum að standa sig í háskóla. Hugsjón þeirra er að gera háskóla­nám eins og nátt­úru­legt fram­hald af mennta­skóla, og ætla þeir að búa til nám­skeið sem sett verða á netið og nemar geta fengið aðgang að. Stofn­end­urnir nema nú hag­fræði og við­skipta­fræði við Háskóla Íslands. Eftir að hafa byrjað í Háskól­anum fannst þeim ganga fremur illa í nám­inu – eins og að mennta­skóla­námið, sem varði í heil fjögur ár, hefði ekki verið nóg til að búa þá undir háskóla­námið. Kjarninn hitti Arnar Kjart­ans­son og Stein­grím Þór Ágústs­son og tók þá tali.

Hvers konar gátt er nema­gáttin?

„Nema­gáttin eru upp­haf­lega hugsuð sem nám­skeið í glósun, skipu­lags- og minnis­að­ferðum en við vildum ganga skref­inu lengra og taka upp efn­is­leg nám­skeið til þess að setja á netið. Nám­skeiðin eiga að auð­velda skóla­göng­una og verða meðal ann­ars efn­is­leg þar sem farið verður yfir helstu hug­tök og kenn­ingar í hverjum áfanga innan deilda háskól­ans. Til að byrja með verður farið yfir nám­skeið í Háskóla Íslands en ef vel gengur munum við taka upp efni nám­skeið fyrir skólum.“

Hvaðan kom hug­myndin að nema­gátt­inni?

„Hug­myndin að Nema­gátt­inni varð til eftir að við byrj­uðum í Háskóla Íslands og tókum eftir því mikla stökki frá mennta­skóla og upp í háskóla. Nýnemar eru með ólíkan grunn, koma frá frá­brugðnum skólum og úr mis­mun­andi deildum. Það er t.d. ekk­ert sjálf­gefið að nýnemar á við­skipta eða hag­fræði­deild hafi verið á við­skipta- og hag­fræði­deild í mennta­skóla. Það getur því verið mikið stökk fyrir nýnema að byrja í Háskóla, oft hefur stór hluti nem­enda nýlega lært efni fyrstu annar og kenn­arar þyngja próf í sam­ræmi við það. Það gerir námið erf­ið­ara fyrir þá sem hafa verri grunn, en það er ástæðan fyrir Nema­gátt­inni.“

Hvaða breyt­ingar viljið þið sjá með Nema­gátt­inni?

„Við viljum að nem­endur geti lært á skil­virkan og hag­kvæm­legan hátt og með því hækkað ein­kunnir sínar, burt­séð frá því námi sem þeir stunda. Með þessu getum við minnkað fall í háskól­anum og von­andi útskrifað fleiri sér­fræð­inga út í sam­fé­lagið. Nemendur geta einnig sparað sér óþarfa fall í háskóla sem ber með sér gríð­ar­legan kostnað og tíma. Háskóla­árin eiga að vera skemmti­leg og eft­ir­minni­leg, en auknar kröfur í námi hafa ollið því að fólk vinnur oft yfir sig. Það veldur óþarfa kvíða og streitu sem við viljum reyna að koma í veg fyrir. Nám­skeiðin eru á formi jafn­ingja­fræðslu, sem þýðir að eldri og reynd­ari nem­endur kenna þeim sem nú eru í fag­inu. Þannig getum við skapað störf sem henta háskóla­nem­endum vel sem vinna með námi þar sem þeir fá að kenna það sem þeir hafa áhuga á.“

Verk­efnið á Karolina Fund er hægt að finna hana hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár